Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 25
FRÉTTIR ÚR HREYFINGUNNI
Friðrik Aspelund nýrformaður UMSB
Ný stjórn UMSB.
Frá vinstri: Ebba Pálsdóttir,
Friðrik Aspelund, Sigmar
Gunnarsson, Guðmundur
Sigurðsson og Berglind Long
86. þing Ungmennasambands Borgar-
fiarðar var haldið 13. mars sl. í Ásgarði
á Hvanneyri. Jóhanna Erla Jónsdóttir
hætti sem formaður UMSB eftir tveggja
ára setu í því embætti og Friðrik Aspe-
lund, sem hefur verið varaformaður síð-
ustu tvö ár, tók við sem formaður. Ný
inn í stjórn kom Berglind Long sem
varaformaður og Guðmundur Sigurðs-
son var endurkjörinn sem gjaldkeri.
Einar Haraldsson og Ásdís Helga
Bjarnadóttir frá UMFÍ sæmdu Veroniku
Sigurvinsdóttur og Álfheiði Marinós-
dóttur starfsmerld UMFÍ fyrir vel unnin
störf í þágu UMSB.
Stjórn UMSB veitti tvær viðurkenn-
ingar fyrir íslandsmeistaratitla en það
voru þeir Björgvin Hafþór Ríkharðsson
og Bjarki Pétursson sem hlutu þær við-
urkenningar, Björgvin fyrir Víðavangs-
hlaup íslands og Bjarki fyrir holukeppni
í golfi. Einnig veitti stjórn UMSB þeim
Sigurði Þórarinssyni og Trausta Eiríks-
syni viðurkenningar fyrir Norðurlanda
meistaratitla í körfuknattleik.
Landsmót UMFÍ í Norðurþingi 2015?
Á fundi æskulýðsnefndar Norðurþings
í vetur var samþykkt að setja saman
starfshóp til að vinna að umsókn fyrir
Landsmót UMFÍ 2015 sem haldið yrði
á Húsavík. Starfshópurinn er saman
settur af fulltrúum frá sveitarfélaginu,
HSÞ og starfsmanni sveitarfélagsins.
Landsmót UMFÍ var síðast haldið á
svæðinu á Húsavík sumarið 1987. Það
var síðan 19. mars sl. sem þessi hópur
Frá fundinum með UMFÍ á Húsavík.
átti fund með framkvæmdastjóra og
starfsmönnum UMFÍ á Húsavík til
að afla upplýsinga en ljóst er að ráðist
yrði í þó nokkrar framkvæmdir ef
Norðurþing sækti um mótið. Fundur-
inn var afar gagnlegur og er mikill
hugur í heimamönnum að sækja um
mótið. Málið er þó á byrjunarreit en
heimamenn munu á næstu vikum og
mánuðum setjast vel yfir málið.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 25