Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 30
b, * , .jsm ~~~ f
Ný stjórn UÍA. Frá vinstri:
Gunnar Jónsson, Berglind Agnarsdóttir,
Stefán Bogi Sveinsson (framkvæmdastjóri),
Elín Rán Björnsdóttir og Gunnar
Gunnarsson.Á myndina vantar Jónas
Þór Jóhannsson.
Framhaldsþing UÍA á Egilsstöðum:
Starfið leggst
vel í mig
Ný stjórn Ungmenna- og íþróttasam-
bands Austurlands, UÍA, var kjörin á
framhaldsþingi á Egilsstöðum 9. júní sl.
Nýr formaður er Elín Rán Björnsdótt-
ir, Egilsstöðum, ritari er Gunnar Gunn-
arsson, Fljótsdal, gjaldkeri er Berglind
Agnarsdóttir, Fáskrúðsfirði, og Jónas
Þór Jóhannsson, Egilsstöðum, og Gunnar
Jónsson, Eskifírði, eru meðstjórnendur.
„Þingið gekk velfyrir sig en ný stjórn
kom saman eftirþingið þar sem ýmis mál
voru tekinfyrir. Ákveðið var aðfresta
formannafundi fram í september. Mér
líst vel á starfið en það er alveg Ijóst að
mikil vinna erfram undan. Efokkur
tekst aðfáfólk í lið með okkur œtti starf-
semin að ganga vel, “ sagði Elín Rán
Björnsdóttir, nýkjörin formaður UÍA.
Elín Rán hefur starfað mikið innan
hreyfingarinnar í gegnum tíðina og
keppti lengi undir merkjum UlA. Hún
kom að undirbúningi fyrir Landsmótið
á Egilsstöðum 2002 og var síðan starfs-
maður UÍA i þrjú sumur. Eins og hún
komst að orði er hún alin upp í hreyf-
ingunni.
„Það er ekki ástæða til annars en að
líta björtum augumfram á veginn,“
sagði Elín Rán.
Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri UMFl, sat framhaldsaðalfundinn.
Stefán Bogi Sveinsson ráðinn
framkvæmdastjóri UÍA
Stefán Bogi Sveinsson hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri UlA. Stefán Bogi
er lögfræðingur að mennt og hefur und-
anfarin tvö ár starfað sem lögmaður í
Reykjavík. Hann er ekJci ókunnugur
Austurlandi, fæddur á Héraði og hefur
búið í Jökulsárhlíð, á Vopnafirði og
síðast á Egilsstöðum þar sem hann nam
við ME. Faðir hans, Sveinn Guðmunds-
son, sat í stjórn ULA á sjöunda áratugn-
um. Sjálfur hefur Stefán mikla reynslu
af félagsstörfum. Hann spilaði fótbolta
og körfubolta með yngri flokkum Hatt-
ar, fótbolta með meistaraflokki Þristar
og keppti í kringlukasti á bikarmeist-
aramóti fyrir hönd UÍA. Stefán Bogi
hefur þegar tekið til starfa og mun stýra
skrifstofu UlA á Egilsstöðum.
HSV setur á stofn afreks- og styrktarsjóð
Héraðsþing HSV var haldið í Edinborgar-
húsinu á Isafirði laugardaginn 5. apríl sl.
Ein breyting varð í stjórninni, Óðinn
Geirsson gekk úr varastjórn og tók Þor-
gerður Karlsdóttir sæti hans. Stjórnina
skipa eftirtalið fólk: Jón Páll Hreinsson,
formaður, Jóhann Bæring Gunnarsson,
varaformaður, Maron Pétursson, gjald-
keri, Sigrún Sigvaldadóttir, ritari, Guðni
Ó. Guðnason, meðstjórnandi, Gylfi Þ.
Gíslason, varamaður, Erla Jónsdóttir,
varamaður, og Þorgerður Karlsdóttir,
varamaður. Á þinginu var ákveðið að
vera með framkvæmdastjóra í fullu
starfl.
Héraðsþingið samþykkti að veita fjór-
ar milljónir króna í Afreks- og styrktar-
sjóð HSV. Þessi upphæð verður höfuð-
stóll sjóðsins og má hann ekki koma
til úthlutunar heldur skal einvörðungu
gegna því hlutverki að efla sjóðinn enn
frekar á næstu árum. Tilgangur sjóðsins
er að styrkja þá einstaklinga eða hópa
innan HSV sem náð hafa umtalsverðum
árangri í iþrótt sinni. Eingöngu félagar
og keppnishópar innan HSV, sem stunda
íþróttir sem viðurkenndar eru af Iþrótta-
og Ólympíusambandi íslands (ÍSÍ), geta
sótt um styrk úr sjóðnum.
I reglugerð, sem samþykkt var á þing-
inu, segir að í stjórn sjóðsins skuli sitja
þrír menn og verði stjórnin skipuð á
héraðsþingi ár hvert. Eigi má velja ein-
staklinga til stjórnarsetu í sjóðnum er
gegna stjórnarsetu í aðildarfélagi innan
HSV. Varsla sjóðsins skal vera í höndum
Sparisjóðs Vestfirðinga. Tekjur sjóðsins
skulu vera: 10% af óskiptum lottótekj-
um, styrkir og gjafir til sjóðsins, árlegt
framlag Isafjarðarbæjar, árlegt framlag
fyrirtækja og vaxtatekjur.
30 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands