Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 6
Sumarið er skemmtilegur tími hjá UMFÍ Unglingalandsmót Ungmenna- félags Islands eru eitt af flaggskip- um hreyfingarinnar. 11. Ungl- ingalandsmótið verður að þessu sinni haldið í Þorlákshöfn um verslunarmannahelgina, dagana 1.-3. ágúst. Umgjörð mótsins í Þorlákshöfn verður í alla staði glæsileg og vandað til verka í hvívetna. Mikið uppbyggingar- starf er að baki og stórglæsileg íþróttamannvirki blasa við sem notuð verða um ókomin ár. Þeir sem að mótinu standa sjá nú laun erfiðis síns og geta borið höfuðið hátt. Það þarf áræðni, þor og kjark til að ráð- ast í að halda svo stór mót sem þessi. Með sameiginlegu átaki allra þeirra sem að verkum hafa komið hefur tekist að koma upp aðstæðum sem allir geta verið stoltir af. Stór hópur sjálfboðaliða kem- ur að framkvæmd mótsins með einum eða öðrum hætti. Öll undirbúningsvinna verður létt- ari og er óhætt segja að framlag þeirra til mótanna sem og í hreyf- ingunni allri sé ómetanlegt. Þeim ber að þakka fyrir fórnfúst og frábært vinnuframlag. Framkvæmdaaðilar mótsins í Þorlákshöfn hafa lagt mikinn metnað í alla undirbúnings- vinnu. Unglingalandsmótin eru með stærstu íþróttamótum sem haldin eru hér á landi. Mótin eru kjörinn staður fyrir alla fjöl- skylduna til að koma á og eiga skemmtilega og ánægjulega daga um verslunarmannahelgina. Unglingalandsmótin hafa sann- að gildi sitt og á þau kemur sama fólkið ár eftir ár. Mótin draga til sín þúsundir gesta sem skemmta sér saman í heilbrigðu umhverfi. Ungmennafélag íslands stend- ur fyrir mörgum góðum verk- efnum. Þar ber að nefna Ung- menna- og tómstundabúðirnar á Laugum í Sælingsdal sem hafa heldur betur slegið í gegn. Starf- semin á Laugum hófst í byrjun árs 2005 og síðan hefur búðun- um vaxið fiskur um hrygg. Þangað sækja 9. bekkingar úr grunnskólum landsins og á síð- asta starfsári komu þangað hátt í 2.000 unglingar. UMFÍ er í samstarfi við íþróttalýðháskóla í Danmörku og hefur kvóti sá sem íslending- um stendur til boða verið full- nýttur á síðustu árum. Nám í slíkum skólum er mjög áhuga- vert og ekki síst þroskandi og nýtist síðan þátttakendum alla ævi. Forvarnaverkefnið Flott án fíknar stendur með blóma og hefur klúbbum fjölgað jafnt og þétt um allt land. Ungmennafélag Islands tók fyrsta skrefið með verkefnið Gæfuspor fyrr í sumar. Gæfu- spor er verkefni þar sem fólk 60 ára og eldri er hvatt til að fara út og ganga sér til ánægju og heilsu- bótar. Verkefnið hófst á fimm stöðum á landinu og í kjölfarið verður framhaldið skoðað með fleiri staði í huga. UMFÍ og Frjálsíþróttasamband Islands ráku saman frjálsíþróttaskóla á nokkrum stöðum úti á Iandi í sumar. Þessu verkefni var vel tekið og það heppnaðist í alla staði mjög vel. Göngum um Island er lands- verkefni UMFÍ. Verkefnið er unnið í samstarfi við ungmenna- félög um land allt, ferðaþjón- ustuaðila og sveitarfélög. ísland hefur að geyma mikinn fjölda gönguleiða og hafa verið valdar heppilegar gönguleiðir í hverju byggðarlagi. Fjölskyldan á fjall- ið er einn liður í verkefninu. Settir eru upp póstkassar með gestabókum á 24 fjöllum víðs vegar um landið, en öll þessi fjöll eiga það sameiginlegt að tiltölulega létt er að ganga á þau. Markmiðið er að fá fjölskyldur í létta fjallgönguferð og stuðla þannig að aukinni samveru, úti- vist og um leið líkamsrækt inn- an fjölskyldunnar. I nokkur ár hefur verið haldið úti vefsíð- unni www.ganga.is sem hefur að geyma yfir 800 gönguleiðir. Nýr og glæsilegur vefur var tekinn í notkun í sumar. Sumarið er skemmtilegur tími og vonandi að landsmenn nýti þann tíma vel saman. Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri UMFI veitir UFA og UMSE styrk úr verkefnasjóði Á stjórnarfundi Ungmennafélags Islands, sem haldinn var á Selfossi 25. apríl sl„ var m.a. ákveð- ið að veita Ungmennafélagi Akureyrar, UFA, og Ungmennasambandi Eyjafjarðar, UMSE, styrk úr verkefnasjóði UMFl vegna 26. Landsmóts UMFÍ, sem haldið verður á Akureyri dagana 9.-12. júlí 2009, upp á 1.500.000 kr. Einnig var samþykktur styrkur til Iþróttafélagsins Höfr- ungs á Þingeyri upp á 50.000 kr. vegna ritunar 100 ára sögu félagsins. Þá var samþykkt að fela fræðslunefnd að undirbúa átak í félagsmálafræðslu innan hreyf- ingarinnar næsta vetur. Unnið hefur verið að undirbúningi verkefn- isins Gæfuspor og hefur m.a. verið gerður samningur við sparisjóðina um samstarf þar að Iútandi. Verkefninu var ýtt úr vör 19. júní sl. Þá lagði stjórnin fram hugmyndir að kynnis ferð til Tékklands í tengslum við ISCA í nóv- ember nk. Skinfaxi 2. tbl. 2008 Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson. Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMF(. Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson, Ómar Bragi Stefánsson o.fl. Umbrot og hönnun: Indígó. Prentun: Prentmet. Prófarkalestur: Helgi Magnússon. Auglýsingar: Miðlun ehf. og Gunnar Bender. Ritnefnd: Björg Jakobsdóttir, formaður, Anna R. Möller og Sigurður Guðmundsson. Skrifstofa UMFl/Skinfaxa: Þjónustumiðstöð UMFl, Laugavegi 170-172, 105 Reykjavík. Sími: 568-2929 Netfang: umfi@umfi.is Heimasíða: www.umfi.is Starfsmenn: Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri, Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi, með aðsetur á Sauðárkróki, Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi og verkefnisstjóri forvarna, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri, Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóriSkinfaxa og kynningarfulltrúi, Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri. Stjórn UMFÍ: Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður, Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaformaður, Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri, Öm Guðnason, ritari, Hringur Hreinsson, meðstjórnandi, Einar Haraldsson, meðstjórnandi, Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi, Eyrún Harpa Hlynsdóttir, varastjórn, Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn, JóhannTryggvason, varastjórn, Einar Jón Geirsson, varastjórn. Forsíðumynd: Það er spenningur í Þorlákshöfn fyrir Unglingalandsmótinu sem verður haldið þar um verslunarmannahelgina. Ungviðið í Þorlákshöfn er þar ekki undan skilið og hér sést glaðbeittur hópur á leikjanámskeiði í sumar. Neðri myndin til vinstri er frá Flott án fíknar að Laugum í Reykjadal og sú til hægri frá Gæfuspori á Sauðárkróki. 6 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.