Skinfaxi - 01.05.2008, Page 18
Ölfus og Þorlákshöfn
að fornu og nýju
Merkisstaðir - áhugaverðir staðir:
Hjalli
Stórbýli og líklega elsti kirkjustaður í
Ölfusi en þar er nú kirkja úr steinsteypu
sem reist var 1928. Skafti Þóroddsson
lögsögumaður bjó þar til forna og þar
handtóku danskir hermenn Ögmund
Pálsson biskup 1541. Fyrr á öldum var
efnt til gleðisamkoma og vikivakadansa
í kirkjunni og er þaðan komið orðtakið
að glatt sé á hjalla.
Hraun
Neðst við Ölfusá er bærinn Hraun og
þar er ágætur veiðistaður þar sem mikið
er af sjóbirtingi og bleikju. Á Hrauni lét
Torfl Jónsson í Klofa taka Lénharð fógeta
af lífi árið 1502. Sagan segir að Lénharð-
ur hafi verið illur maður og ódæll og
farið um með miklum yfirgangi enda
fór svo að Sunnlendingar misstu þolin-
mæðina og drápu hann.
Alviðra
Alviðra er umhverfisfræðslusetur Land-
verndar og stendur undir Ingólfsfjalli,
rétt við Sogsbrú. Þar er tekið á móti
grunnskólanemum í umhverfisfræðslu
og á sumrin er fjölbreytt dagskrá fyrir
almenning.
Reykir
Fyrrum stórbýli austan Varmár þar sem
nú er hluti Landbúnaðarháskóla Islands.
Þarna er mikið jarðhitasvæði og veruleg
hvera- og jarðskjálftavirkni. Landnáma
segir að fyrsti ábúandi á Reykjum hafi
verið Karli, þræll Ingólfs Arnarsonar, og
sagnir eru um að Ingólfur sjálfur hafi
látist þar og verið heygður í Inghóli.
Aðrir frægir ábúendur voru m.a. Gissur
jarl Þorvaldsson og Oddur Gottskálks-
son, þýðandi Nýja testamentisins. Reyk-
ir voru kirkjustaður til 1908 þegar kirkjan
fauk af grunninum en áður hafði þurft
að flytja hana vegna þess að hver kom
upp í henni. Kirkjugarðurinn er enn þá
sýnilegur sunnan aðalbyggingar skólans.
Arnarbæli
Kirkju er getið á staðnum um 1200 og
var hún helguð heilögum Nikulási en
kirkja stóð í Arnarbæli til 1909. Þar er
forn og mikil tótt á svonefndu Þingholti
og er hún friðlýst. Tumi Sighvatsson bjó
þar um 1200 og Þorvarður Þórarinsson
1289 og skrifaði þar Njálu samkvæmt
tilgátu Barða Guðmundssonar þjóð-
skjalavarðar.
Herdísarvík
Þar eru friðlýstar gamlar menningar-
minjar svo sem fiskigarðar, verbúðir,
tættur af iveruhúsum og öðrum útihús-
um en þar var fyrrum kunn verstöð.
Einar Benediktsson skáld bjó í Herdís-
arvík síðustu æviár sín og gaf hann
Háskóla íslands jörðina árið 1935.
Selvogur
Selvogur er byggðarlag yst á nesinu aust-
an Herdísarvíkur og þar er lítið kaffihús
og tjaldstæði. Þar var áður allmikil
byggð og útræði á veturna. Vogsósar
voru löngum prestssetur þar til brauðið
lagðist af 1907. Frægasti ábúandi þar
var hinn fjölkunnugi prestur Eiríkur
Magnússon sem var uppi á 17. öld.
Strandarkirkja
Strandarkirkja er í Selvogi og er hún
vinsæl til áheita. Sagan segir að að sjó-
menn í lífsháska hafi heitið að byggja
kirkju þar sem þeir kæmu að landi ef
þeir kæmust lífs af. Þá sáu þeir skært
ljós, sigldu eftir því og lentu heilu og
höldnu. Ljósið kom frá skínandi veru
sem stóð í flæðarmálinu þar sem nú
heitir Engilsvík.
Raufarhólshellir
Hellirinn er rétt fyrir ofan efsta hjallann
á Þrengslavegi að norðanverðu. Hann er
talinn hafa myndast í sprungugosi sem
skildi eftir 11 km langa gígaröð. Hellir-
inn er um 1360 m langur, 10-30 m
breiður og upp undir 10 m hár. Víða
hefur hrunið úr þakinu og talsvert er
um ísingu þannig að erfitt getur reynst
að ganga hellinn á enda.
18 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands