Skinfaxi - 01.05.2008, Page 22
Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi formaður UMFÍ:
Höldum glæsilegt Unglingalandsmót
I sumar, nánar tiltekið dagana 1. til 3.
ágúst, verður 11. Unglingalandsmót
UMFÍ haldið í Þorlákshöfn og er það
fyrsta Unglingalandsmótið sem haldið
er á sambandssvæði Skarphéðins, en
um leið sjöunda landsmótið sem haldið
er á sambandssvæðinu frá endurreisn
landsmótanna, með íjórða Landsmóti
UMFÍ sem haldið var í Fiaukadal 1940.
Aðkoma UMFl að framkvæmd Ungl-
ingalandsmótanna hin síðari ár, sem
meðal annars hefur falist í því að leggja
mótunum til þaulreyndan framkvæmda-
stjóra, Ómar Braga Stefánsson, landsfull-
trúa UMFl á Sauðárkróki, er lofsvert
framtak sem sparað hefur framkvæmda-
aðilum mótanna ómælda fjármuni og
fyrirhöfn, auk þess að flytja árangurs-
ríka þekkingu og reynslu frá einu móti
til annars.
Góðir Sunnlendingar og aðrir lands-
menn! Nú er fyrir alllöngu hafinn mikill
undirbúningur fyrir Unglingalandsmót-
ið sem haldið verður í Þorlákshöfn í
sumar. Þetta mót er jafnframt fyrsta
Unglingalandsmótið, sem haldið er á
sambandssvæði HSK eins og áður getur.
Það á því að vera mikill metnaður okkar
allra á sambandssvæðinu að vel takist til
í hvívetna.
Eins og málin ganga hjá íbúum Þor-
lákshafnar og stjórn HSK standa vonir
til að þetta mót verði eitt það glæsileg-
asta sem haldið hefur verið, frá því að
framkvæmd Unglingalandsmótanna
hófst með vel undirbúnu og vel sóttu
Unglingalandsmóti á Dalvík í umsjá
Ungmennasambands Eyjaíjarðar 1992.
Hafnarborgin okkar Sunnlendinga, Þor-
lákshöfn, í sveitarfélaginu Ölfusi, á sér
ekki langa sögu en þar hefur mannlíf og
menning hvers konar blómstrað með
undraverðum hraða á síðustu áratugum
sem landsmenn allir hafa tekið eftir og
hrifist af.
í árdaga byggðar í Þorlákshöfn, sem
segja má að hafi á sínum tíma hafist fyrir
tiltrú athafnamannsins Egils Thoraren-
sen, kaupfélagsstjóra á Selfossi, flutti
mikið af ungu, dugmiklu fólki þangað,
vítt og breitt úr byggðum Suðurlands og
svo miklu víðar að síðar. Frumbyggjarn-
ir, sem sumir hverjir eru enn í fullu íjöri
og afkomendur þeirra sem og aðrir íbúar
Hafsteinn Þor-
valdsson, fyrrver-
andi formaður
UMFl.
Þorlákshafnar, munu, ef ég þekki þá rétt,
leggja allan metnað sinn í þetta verkefni,
sem ég ætla að hvað undirbúning og
kostnað varðar sé með þeim stærri sem
þeir hafa tekist á við.
Góðir Sunnlendingar! Sýnum samtaka-
mátt okkar í verki með þessu dugmikla
fólki, stjórn HSK og heimafélögunum,
Ungmennafélaginu Þór, Knattspyrnu-
félaginu Ægi, Golfklúbbi Þorlákshafnar
og Hestamannafélaginu Háfeta. Setjum
okkur þau sameiginlegu markmið, eins
og okkur tókst að gera fyrir Landsmótið
á Laugarvatni 1965, að halda glæsilegasta
og ljölsóttasta aðal-Landsmót allra tíma.
Aðstaða öll og umgjörð í Þorlákshöfn
um verslunarmannahelgina í sumar
býður upp á þann möguleika, að við
gætum eftir mótið líka átt í sögu okkar
og minningasjóði, að minnsta kosti eitt
glæsilegasta Unglingalandsmótið sem
haldið hefur verið á Islandi. Stefnum að
því öll sem eitt, kæru vinir. Foreldrar,
afar og ömmur og aðrir fjölskyldumenn,
styðjum unga íþróttafólkið okkar. Það
er verðugt verkefni! Og þar við liggur
heiður okkar og sæmd, enda stutt að fara.
(H/inghoteJs ffér HAPPDRÆTTI gLjft HÁSKÓLA ÍSLANDS f" vænlegast til vinnings lÉKULDABÓLI FRYSTI OGKAUGEYMSLA MAN NVIT
VERKFRÆÐISTOFA
22 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands