Skinfaxi - 01.05.2008, Blaðsíða 23
Gísli Páll Pálsson, formaður HSK:
Unglingalandsmótin Kafa slegið í gegn
„Undirbúningur hefur í alla staði gengið
mjög vel og það er óhætt að segja að
íþróttaaðstaðan í Þorlákshöfn verður ein
sú glæsilegasta á landinu. Byggður hefur
verið alvörukeppnisvöllur og öll umgjörð-
in í kringum hann er í einu orði sagt stór-
kostleg. Það hefur verið frábær tími að
standa í þessum undirbúningi og heima-
menn í Þorlákshöfn hafa staðið sig frábær-
lega,“ sagði Gísli Páll Pálsson, formaður
HSK, í spjalli við Skinfaxa en héraðssam-
bandið er framkvæmdaaðili mótsins.
Gisli Páll sagði að HSK hefði áður sótt
um að halda Unglingalandsmót en ekki
fengið fyrr en núna. Hann sagði þetta
mikla áskorun og að allir hefðu lagst á
eitt að vinna vel að málum og gera mót-
ið hið glæsilegasta.
„Þó að HSK komi að undirbúningi og
framkvæmd mótsins þá er þáttur heima-
manna hvað stærstur í þessu ferli öllu
saman. Þeir hafa staðið sig eins hetjur
og hafa lagt mikinn metnað í alla fram-
kvæmdina."
Gísli Páll sagði að í sínum huga væru
Unglingalandsmótin skynsamlegasta og
skemmtilegasta fjölskylduhátíð sem hægt
væri að hugsa sér um verslunarmanna-
helgi.
„Unglingalandsmótin eru ein af
stærstu rósum í hnappagati UMFl’. Það
er í raun stórkostlegt að geta boðið upp
á þessi mót og það skuli takast að halda
áfengis- og vímuefnum frá mótunum.
Ég hef verið á fjórum mótum í röð og
skemmt mér konunglega. Unglingalands-
mótin hafa slegið í gegn og að taka upp
að halda þau á hverju ári var mikið gæfu-
spor fyrir hreyfinguna. Krakkarnir eru
ekkert að spá í það hverjir vinna heldur
hefur mér sýnst þetta snúast miklu
frekar um það að taka þátt og
vera með fjölskyldu sinni og
félögum. Við getum sagt fullum
fetum að mótin séu fjölskyldu-
og forvarnahátíð. Það að for-
Gísli Páll Pálsson,
formaður HSK.
eldrar fái þarna tækifæri til að vera með
börnunum sínum hefur svo mikið for-
varnagildi," sagði Gísli Páll.
Gísli Páll sagði að uppbygging íþrótta-
mannvirkja samhliða þessum mótum
gríðarlega mikilvæga. Ágætt dæmi um
það eru aðstæður sem nú eru til staðar
eftir mótið sem haldið var í Vík 2005.
„Íþróttahátíð HSK var t.d. í fyrsta
skiptið haldin utan sambandssvæðisins
í fyrra f Vík enda frjálsíþróttaaðstaðan
þar alveg fyrsta flokks. Mótin skilja eftir
sig mikið af góðum mannvirkjum sem
nýtast fólkinu á staðnum um ókomna
tíð. Vakning fyrir frjálsum íþróttum í
dag er töluverð og það er ekki síst að
þakka uppbyggingunni samhliða Ungl-
ingalandsmótunum,“ sagði Gísli Páll.
„Það verður gaman að vera í Þorláks-
höfn um verslunarmannahelgina og
enginn verður svikinn af að koma
þangað. Ég hvet fólk til koma og ég veit
að flestir, sem hafa verið á mótum áður,
koma aftur og aftur. Það er bara staðfest-
ing á því hvað rnótin eru skemmtileg,"
sagði Gísli Páll Pálsson, formaður HSK.
Ásvélar ehf Jarðvinnuverktaki
SÆRÖST
U2
EINN EINN TVEIR
Fjallabyggð
Finnur.
m
fflHT rftf.
Amcnn
MmítolnM
GG LAGNIRehf
PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA
Almenna
verkf ræðistofan
frA m Ú T U N
'“•OMAMMVIRKI
V SUÐURVERK HF.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands 23