Skinfaxi - 01.05.2008, Síða 26
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags íslands:
Reykjanesbær
Ásberg fasteignasala ehf,
Hafnargötu 27
Brunavarnir Suðurnesja,
Hringbraut 125
Golfklúbbur Suðurnesja,
Hólmsvelli Leiru
Hitaveita Suðurnesja, Brekkustíg 36
Reykjanesbær,Tjarnargötu 12
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum,
Iðavöllum 12
Slakki ehf, Stekkjargötu 51
Tannlæknastofa Einars Magnúss ehf,
Skólavegi 10
Verkfræðistofa Suðurnesja hf,
Víkurbraut 13
Verslunarmannafélag Suðurnesja,
Vatnsnesvegi14
Grindavík
Þorbjörn hf, Hafnargötu 12
Sandgerði
Sandgerðisbær, Miðnestorgi 3
Mosfellsbær
Álafossbúðin, Álafossvegi 23
Garðyrkjustöðin Gróandi, Grásteinum
Guðmundur S Borgarsson ehf,
Skeljatanga 4
Ingimundur Magnússon ehf, Breiðafit
Kjósarhreppur, www.kjos.is
Nýja bílasmiðjan hf, Flugumýri 20
Akranes
GTTækni ehf, Grundartanga
Híbýlamálun Garðars Jónssonar ehf,
Einigrund 21
(þróttabandalag Akraness,
Jaðarbökkum
Runólfur Hallfreðsson ehf, Krókatúni 9
Sýslumannsembættið á Akranesi,
Stillholti 16-18
Borgarnes
Borgarbyggð, Borgarbraut 14
Bókhalds- og tölvuþjónustan sf,
Böðvarsgötu 11
Eyja- og Miklaholtshreppur, Hofstöðum
Golfklúbbur Borgarness, Hamri
Landbúnaðarháskóli (slands, Hvanneyri
Laugaland hf, Laugalandi
Samtök sveitarfélaga í Vesturlands-
kjördæmi, Bjarnarbraut 8
Skorradalshreppur, Grund
Skógræktarfélag Borgfirðinga,
Brúarlandi
Sæmundur Sigmundsson ehf, Brákarey
Vegamót, þjónustumiðstöð,
Vegamótum
Verkalýðsfélag Vesturlands,
Sæunnargötu 2a
Stykkishólmur
Grunnskólinn í Stykkishólmi,
Skólastíg 11
Tindurehf, Hjallatanga 10
Grundarfjörður
Ferðaþjónustan Áning Kverná,
Eyrarsveit
Hótel Framnes
Ragnar og Ásgeir ehf, Sólvöllum 7
Hellissandur
Snæfellsbær, Snæfellsási 2
Reykhólahreppur
Bjarkalundur-GistingA/eitingarA/erslun
Reykhólahreppur, Maríutröð 5a
Göngum um ísland - Fjölskyldan á fjallið:
Markmiðið að fá fjölskyldur
í léttar gönguferðir
Göngum um íslam
er landsverkefni
UMFÍ. Verkefnið
er unnið í sam-
starfi við ung-
mennafélög um
land allt, ferða-
þjónustuaðila og
sveitarfélög. ísland
hefur að geyma mikinn fjölda göngu-
leiða og hafa verið valdar heppilegar
gönguleiðir í hverju byggðarlagi. Leiða-
bók með tæplega 300 gönguleiðum fæst
gefins um land allt. 1 Leiðabókinni Göng-
um um Island er lögð áhersla á stuttar,
stikaðar og aðgengilegar gönguleiðir.
Fjölskyldan á fjallið er einn liður í
verkefninu. Settir eru upp póstkassar
með gestabókum á 24 fjöllum víðs vegar
um landið, en öll þessi fjöll eiga það sam-
eiginlegt að tiltölulega létt er að ganga á
þau. Markmiðið er að fá fjölskyldur í
létta fjallgönguferð og stuðla þannig
að aukinni samveru, útivist og um leið
líkamsrækt innan fjölskyldunnar. Á
heimasíðunni www.ganga.is má finna
upplýsingar um 800 gönguleiðir á
íslandi ásamt áhugaverðum fróðleik fyrir
göngu- og útivistarfólk.
Gönguáætlun fyrir sumarið liggur nú
endanlega fyrir hjá nokkrum héraðs-
samböndum. Hjá UMSB verða farnar
níu göngur. Fjórar göngur eru að baki
en eftirtaldar göngur eru fram undan í
sumar:
12. júlí laugardagur kl. 13.00
Gengið upp með Grímsá, að Reyðarvatni
og þaðan yfir að Þverfelli. Vegalengdin
er um 15 km. Þeir sem eru ekki tilbúnir
til að ganga alla leiðina geta gengið hluta
leiðarinnar og gengið sömu leið til baka.
Fjöldi fallegra fossa er á þessari leið.
Mæting er við Oddsstaðarétt.
31. júlí f immtudagur kl. 20.00
Gengið frá Kvíslhöfða í Álftaneshreppi
niður með ströndinni. Áætlaður göngu-
tími er urn 2 tímar. Á svæðinu er fjöl-
breytt fuglalíf. Mæting er á hlaðinu á
Kvíslhöfða.
14. ágúst fimmtudagur kl. 20.00
Gengið um Jafnaskarðsskóg og skoðuð
sýning á listaverkum sem unnin eru úr
skóginum. Mæting við bílastæðið við
Jafnaskarðsskóg.
23. ágúst laugardagur kl. 13.00
Gengið á Skessuhorn. Hátindurinn er
963 m. Heildargöngutími 6-7 klst.
Gönguhækkun 900 m. Mæting er við
þjóðveg fyrir ofan Efri-Hrepp.
25. október kl. 14.00
Náð í gestabók á Þyril. Mæting er ofan
við tanka Olíudreifingar í Litlasandsdal
(fyrir ofan Hvalstöðina).
Nánari upplýsingar um göngurnar er að
finna hjá umsb.is eða í síma 862 6361.
26 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands