Skinfaxi - 01.05.2008, Qupperneq 29
FRÉTTIR ÚR HREYFINGUNNI
Ragnar Þórir Guðgeirsson
endurkjörinn formaður Fjölnis
Aðalfundur Ungmennafélagsins Fjölnis
var haldinn í Egilshöll 27. mars sl. Ragnar
Þórir Guðgeirsson var endurkjörinn for-
maður en tvær breytingar urðu á stjórn-
inni. Stjórn Fjölnis er skipuð sem hér
segir: Ragnar Þórir Guðgeirsson, for-
maður, Jón Karl Ólafsson, Ingibjörg
Óðinsdóttir, Sigurður H. Leifsson, Guð-
mundur Lúðvík Gunnarsson, Jón Þor-
björnsson og Bjarney Sigurðardóttir. Úr
stjórninni gengu þau Snorri Snorrason
og Sigrún Ragna Ólafsdóttir.
I máli formanns kom fram að starf-
semi félagsins hefði verið umfangsmildl
á síðasta ári og framtíðin væri björt. Jón
Þorbjörnsson, sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri í mörg ár, ákvað fyrir
skömmu að hætta störfum. Hefur Mál-
fríður Sigurhansdóttir verið ráðin fram-
kvæmdastjóri og hóf hún störf 1. apríl.
Málfríður hefur starfað lengi innan
Fjölnis og var um tíma formaður sund-
deildar félagsins. Málfríður hóf störf um
síðustu áramót sem íþróttafulltrúi en lét
af því starfl þegar hún hóf störf sem fram-
kvæmdastjóri.
í lok fundarins var Guðlaugur Þór
Þórðarson gerður að heiðursformanni
Fjölnis, en hann var formaður félagsins
í nokkur ár. Við það tækifæri voru hon-
um þökkuð góð störf fyrir félagið í gegn-
um tíðina.
Örn Guðnason, stjórnarmaður í Ung-
mennafélagi Islands, flutti ávarp á þing-
Ragnar Þórir Guð-
geirsson, formaður
Fjölnis, afhendir
Guðlaugi Þór Þórð-
arsyni, heiðursfor-
manni félagsins,
viðurkenningu.
inu. Örn fór yfir helstu verkefni UMFI
og þá þjónustu sem hreyfmgin veitir
félögum. Sagði hann að ánægjulegt væri
að sjá hve kröftugt félag Fjölnir væri og
að gaman hefði verið að fylgjast með
vexti þess frá stofnun fyrir 20 árum.
Sigrún Brá Sverrisdóttir, sundkona
í Fjölni, á Ólympíuleikana
Sundkonan Sigrún Brá Sverris-
dóttir í Fjölni er á leiðinni á
Ólympíuleikana í Peking í sum-
ar. Hún tryggði sér keppnisrétt
á Ólympíuleikunum þegar hún
setti Islandsmet í 200 metra
skriðsundi á móti í Mónakó í
Frakklandi í júní. Sigrún Brá
synti 200 metrana á 2:03,35
mín. og sló íslandsmetið sem
hún setti sjálf í undanrásum
sundsins.
Sjö íslenskir sundmenn hafa
náð lágmörkum og keppnisrétti
á Ólympíuleikunum í Peking
sem verða settir 8. ágúst nk.
Auk Sigrúnar eru Örn Arnar-
son, Jakob Jóhann Sveinsson,
Ragnheiður Ragnarsdóttir, Erla
Dögg Haraldsdóttir, Árni Már
Árnason og Hjörtur Már
Reynisson búin að tryggja sér
þátttökurétt á leikunum.
Bjartsýni ríkjandi og hugur í fólki á
ársþingi UDN í Búðardal
87. ársþing UDN var haldið í Dalabúð í
Búðardal 21. apríl sl. Þingið var starfsamt
og gengu þingstörf vel. Mættir voru full-
trúar frá 6 aðildarfélögum af 8. Finnbogi
Harðarson er formaður sambandsins. Á
þinginu var kosið í sundnefnd, frjáls-
íþróttanefnd, knattspyrnunefnd, ungl-
ingalandsmótsnefnd og badmintonráð.
Fyrir þinginu voru til afgreiðslu marg-
ar tillögur og í framlögðum reikningum
kom fram að fjárhagsstaðan er góð, hagn-
aður er af rekstri. Mikil bjartsýni var
ríkjandi á þinginu og mikill hugur í fólki
að efla starfsemi sambandsins. Fram kom
að UDN verður þáttakandi í skipulagn-
ingu bæjarhátíðarinnar „Heirn í Búðar-
dal“ sem verður haldin þann 12. júlí nk.
Hugmynd er uppi um að koma m.a. á
öldungamóti í frjálsum íþróttum og safna
saman gömlum kempum til keppni.
1 skýrslu stjórnar var ýmislegt áhuga-
vert að skoða. Sambandið stóð fyrir
tveimur ráðstefnum í héraði um íþrótta-
og æskulýðsmál þar sem mæting var góð
og virkni ráðstefnugesta mikil. Lauga-
íjör er hátíð sem haldin var í fyrsta skipti
Svana Hrönn
Jóhannsdóttir
var kjörin íþrótta-
maður ársins á
ársþingi UDN i
Búðardal.
síðastliðið haust í samstarfl UDN og
Ungmenna- og tómstundabúðanna að
Laugum, fyrir nemendur úr 5.-10. bekk
úr þremur skólum sem eru á sambands-
svæðinu. Markmið Laugaíjörs er að auka
félagslega færni þátttakenda og leyfa
þeim að njóta samveru með jafnöldrum
án námsbóka. Hér gefst ungu fólki af
öllu sambandssvæðinu færi á að kynn-
ast betur og engum ætti að þurfa að
leiðast.
Á þinginu var kjörinn íþróttamaður
ársins hjá UDN og fyrir valinu varð
Svana Hrönn Jóhannsdóttir, glímu-
drottning Islands.
Fulltrúar UMFÍ og ÍSl á þinginu voru
þau Helga G. Guðjónsdóttir, formaður
UMFl, og Viðar Sigurjónsson, sviðs-
stjóri fræðslusviðs hjá ISÍ.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 29