Skinfaxi - 01.05.2008, Side 32
FRÉTTIR ÚR HREYFINGUNNI
Starfsamt ársþing HSÞ í Skjólbrekku
Björg Jakobsdóttir, stjórnarmaður í UMFÍ, Haraldur Bóasson, for-
maður frjálsíþróttadeildar HSÞ, og Arnór Benónýsson, formaður HSÞ.
Ársþing HSÞ var haldið í Skjólbrekku í
Mývatnssveit 12. apríl sl. Þetta var um
leið framhaldsstofnþing Héraðssam-
bands Þingeyinga og er þá sameiningar-
ferli Héraðssambands Suður-Þingeyinga
Hafdís Sigurðardóttir, frjálsíþróttamaður HSÞ. Bjarni Þór Gunnarsson, glímumaður HSÞ.
og Ungmennasambands Norður-
Þingeyinga endanlega gengið í gegn.
Sambandssvæðið nær frá Langanes-
byggð í austri að Grýtubakka í vestri.
Að sögn Arnórs Benónýssonar, for-
manns HSÞ, var þingið starfsamt og
þingstörf gengu vel. Arnór sagði að
marga hluti yrði að hugsa upp á nýtt i
tengslum við sameininguna og hann
væri bjartsýnn á framhaldið. Fjárhags-
staðan væri góð og nú yrði stefnt að því
að opna þjónustumiðstöð á Húsavík.
Björg Jakobsdóttir var fulltrúi Ung-
mennafélags Islands á þinginu og var
Haraldur Bóasson, formaður frjálsíþrótta-
deildar, sæmdur starfsmerki UMFÍ.
Arnór Benónýsson er formaður HSÞ
en aðrir í stjórn eru Linda Baldursdótt-
ir, Jóhann R. Pálsson, Einar Ingi Her-
mannsson, Svandís Sverrisdóttir, Soffía
Björgvinsdóttir og Jóhanna Dögg
Stefánsdóttir.
Á ársþinginu voru íþróttamenn HSÞ
heiðraðir. Hafdís Sigurðardóttir er frjáls-
íþróttamaður HSÞ og íþróttamaður
HSÞ, Bjarni Þór Gunnarsson er glímu-
maður HSÞ, Ásgerður Ólöf Ásgeirsdótt-
ir sundmaður HSÞ og Hafrún Olgeirs-
dóttir knattspyrnumaður HSÞ.
Verkefnið„Fjölskyldan á fjallið"
19 manns og einn hundur tóku þátt
í fjölskyldugöngu HSKá Litla-Meitil
19 manns og einn hundur tóku þátt í
fjölskyldugöngu HSK á Litla-Meitil í
Ölfusi 2. júní sl. Gott veður var en þoka
á íjallinu þegar upp var komið. Göngu-
stjóri var Ólafur Áki Ragnarsson, bæjar-
stjóri Sveitarfélagsins Ölfuss. Eins og í
Frá fjölskyldu-
gönguHSKá
Lltla-Meltll í
Ölfusi 2. júní sl.
öðrum fjölskyldugöngunr HSK var farið
með póstkassa og gestabók á tind íjalls-
ins. í haust verður farið og náð í gesta-
bókina og fá heppnir göngugarpar, sem
verða dregnir út, óvæntan glaðning frá
HSK og UMFÍ. Þeir sem ganga á fjöllin
í sumar eru beðnir að skrifa nafn og
símanúmer í gestabókina.
Eins og undanfarin ár tók Guðni
Guðmundsson á Þverlæk í Holtum þátt í
göngunni og hann var að sjálfsögðu með
vísur í farteskinu og ritaði þær í gesta-
bókina. Hér eru vísur Guðna:
Mér hentar ekki kyrr að hanga.
Hreyfingarleysi er rnitt grand.
Á Litla-Meitil er létt að ganga
og líta yfir Suðurland.
Frjósamt land að fótum liggur.
I framtíðina aðeins spái.
Til búsetu á svæðinu margur hyggur.
Smjörið drýpur af hverju strái.
I huganum greini gripafans.
Get hér um auðlegð slíka.
Suðurland getur brauðfætt milljón manns.
Og megavöttin streyma héðan líka.
Valafell á Landmannaafrétti er hitt fjall-
ið sem sambandið tilnefnir í verkefnið.
HSK-gangan með póstkassann á Vala-
fell var farin sunnudaginn 29. júní.
32 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands