Skinfaxi - 01.05.2008, Page 36
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags íslands:
ísafjörður
Boltafélag Isafjarðar, VallarhúsTorfnesi
Fræðslumiðstöð Vestfjarða,
Suðurgötu 12
ísblikk ehf, Árnagötu 1
Kjölurehf, Urðarvegi 37
Löggiltir endurskoðendur
Vestfjörðum hf, Aðalstræti 24
Menntaskólinn á fsafirði,Torfnesi
Hnífsdalur
Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf,
Hnífsdalsbryggju
Bolungarvík
Bolungarvíkurkaupstaður,
Aðalstræti 12
Fiskmarkaður Bolungarvíkur og
Suðureyrar ehf, Hafnargötu 12
Sparisjóður Bolungarvíkur,
Aðalstræti 14
Súðavík
Súðavíkurhreppur, Grundarstræti 3
Víkurbúðin ehf, Grundarstræti 1-3
Flateyri
VÁ VEST, félag um vímuefnaforvarnir,
Tröð
Patreksfjörður
Albína verslun, Aðalstræti 89
Oddi hf, fiskverkun, Eyrargötu 1
Vesturbyggð, Aðalstræti 63
Tálknafjörður
Miðvík ehf, Túngötu 44
Staður
Allinn, veitingahús,
Gránufélagsgötu 10
Bæjarhreppur, Hlaðhamri
Hólmavík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar,
Höfðagötu 3
Kjörvogur
Hótel Djúpavík ehf, Árneshreppi
Hvammstangi
Stýrihópur um forvarnir Húnaþing
vestra, Hvammstangabraut 5
Blönduós
Húnavatnshreppur, Húnavöllum
Skagaströnd
Elfa ehf, Oddagötu 22
Skagabyggð, Örlygsstöðum II
Sveitarfélagið Skagaströnd,
Túnbraut 1-3
Sauðárkrókur
Fisk - Seafood hf, Eyrarvegi 18
Guðrún Kristín Kristófersdóttir,
Borgarflöt 1
Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1
Náttúrustofa Norðurlands vestra,
Aðalgötu
Tannlæknastofa Páls Ragnarssonar ehf,
Sæmundargötu 31
Verslun Haraldar Júlíussonar,
Aðalgötu 22
Vinnuvélar Guðmundar og Skúla sf,
Borgarröst 4
Varmahlíð
Akrahreppur Skagafirði
Hofsós
Vesturfarasetrið
Guðmundur Haukur Sigurðs-
son kosinn formaður USVH
67. ársþing USVH var haldið að Staðar-
flöt í Hrútafirði þann 22. apríl sl. Þingið
tókst ágætlega og gengu þingstörf vel.
Mættir voru fulltrúar frá öllum aðildar-
félögum, samtals 22 þingfulltrúar. Þing-
forseti var Gunnar Sæmundsson og
fundarritari Anna María Elíasdóttir sem
jafnframt er framkvæmdastjóri sam-
bandsins í 25% starfi.
Már Hermannsson, sem hefur verið
formaður sambandsins í 4 ár, gaf ekki
kost á sér áfram. Guðmundur Haukur
Sigurðsson frá Hvammstanga er nýr for-
ntaður sambandsins en gaman er að
geta þess að hann sat 8 ár í stjórn UMFÍ.
Aðrir nýir í stjórn eru Magnús Freyr Jóns-
son, ritari, Kolbrún Indriðadóttir, Sigrún
Þórðardóttir og Oddur Sigurðsson.
í skýrslu stjórnar mátti sjá frásagnir
af félagsvist, bingói, spurningakeppni,
gróðursetningu, leikjum, leiksýningum
og skemmtunum fyrir utan hið hefð-
bundna íþrótta- og æskulýðsstarf. I
framlögðum reikningum kom fram að
fjárhagsstaða er góð.
Eitt af sambandsaðilunum, Ungmenna-
félagið Dagsbrún, hyggst gefa út 80 ára
sögu félagsins. Á þinginu voru fáar en
umdeildar tillögur til afgreiðslu. Kröft-
ugar en málefnalegar umræður fóru
fram. Samþykkt var að setja á stofn rit-
nefnd sem hefur það verkefni að undir-
búa ritun á sögu USVH en sambandið
verður 80 ára 2011. Einnig var sam-
þykkt tillaga um að USVH sækti um
Unglingalandsmót. Á þinginu voru
einnig samþykktar breytingar á reglu-
gerð um val á íþróttamanni ársins.
fþróttamaður USVH 2007 er Helga
Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona.
Gestir þingsins voru þau Helga G.
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
Sæmundur Runólfsson, framkvæmda-
stjóri UMFÍ, og Sigríður Jónsdóttir úr
framkvæmdastjórn ÍSf. Formaður UMFf
sæmdi Má Hermannsson, fráfarandi
formann USVH, starfsmerki UMFf.
Það voru ánægðir og sáttir þingfull-
trúar sem héldu heim af þinginu í góðu
veðri með sólroða á himni.
U.S.VH.
Íslandsglíman:
Pétur Þórir og Svana Hrönn
glímukóngur og glímudrottning
Nítugasta og áttunda Islandsglíman fór
fram 19. mars sl. í íþróttahúsi Glerár-
skóla á Akureyri. Þetta var sannarlega
skemmtilegur íþróttaviðburður og fjöl-
margir áhorfendur urðu vitni að spenn-
andi keppni frá upphafi til enda.
f glímunni um Freyjumenið sigraði
Svana Hrönn Jóhannsdóttir, GFD,
nokkuð örugglega. Svana gerði þó jafn-
glími við systur sína, Sólveigu Rós, en
aðrar glímur voru stuttar og sigraði hún
andstæðinga sína á sniðglímu og hæl-
krók á hægri.
I glímunni um Grettisbeltið var
keppnin mjög jöfn og gríðarlega spenn-
andi og voru aukaglímur um bronsið og
einnig beltið góða. f glímunni um brons-
ið hafði Stefán Geirsson betur á móti
félaga sínum, Ólafi Oddi Sigurðssyni, en
þeir eru báðir í HSK. f úrslitaglímunni
mættust Pétur Eyþórsson, þrefaldur
glímukóngur KR, og Pétur Þórir Gunn-
arsson í HSÞ. Glíman stóð í rúmar 5
mínútur og fékk Pétur Eyþórsson tvö
gul spjöld og þar með rautt. Pétur Þórir
sigraði þar með glímuna og varð glímu-
kóngur fslands í fyrsta sinn en hann varð
tvítugur í byrjun maímánaðar. Sigur
Péturs Þóris verður að teljast mjög
óvæntur en hann er þriði yngsti glímu-
maðurinn sem verður glímukóngur frá
upphafi. Sá yngsti var Ólafur V. Davíðs-
son og sá næstyngsti Ármann J. Lárus-
son.
Hér að neðan má sjá úrslit mótsins.
Freyjumenið
1. Svana Hrönn Jóhannsd., GFD, 4,5 v.
2. Sólveig Rós Jóhannsdóttir, GFD, 4 v.
3. Sylvía Ósk Sigurðardóttir, HSÞ, 3,5 v.
4. Laufey Frímannsdóttir, UÍA, 2 v.
5. Áslaug Ýr Bragadóttir, HSK, 1 v.
6. Guðrún Heiður Skúladóttir, UÍA, 0 v.
Grettisbeltið
1. Pétur Þórir Gunnarsson, HSÞ, 4+1 v.
2. Pétur Eyþórsson, KR 4+0, v.
3. Stefán Geirsson, HSK 3+1, v.
4. Ólafur Oddur Sigurðss., HSK 3+0, v.
5. Snær Seljan Þóroddsson, UIA, 1 v.
6. Steinar Bjarki Marínósson, Herði, 0 v.
Svana Hrönn
Jóhannsdóttir,
glímudrottning,
og Pétur Þórir
Gunnarsson,
glimukóngur.
36 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands