Skinfaxi - 01.05.2008, Page 38
Söluaukning hefur orðið á Lengjunni
Ársfundur fslenskra getrauna var hald-
inn 5. júní sl. í íþróttamiðstöðinni í
Laugardal. í ávarpi stjórnarformanns,
Hafsteins Pálssonar, kom fram að skin
og skúrir skiptust á í starfsemi fyrirtæk-
isins á árinu 2007. Tekjur jukust veru-
lega á árinu, úr 432 milljónum 2006 í
477 milljónir 2007 og mikil þátttaka var
í leikjum fyrirtækisins. Kostnaður jókst
þó vegna Lengjunnar í tengslum við
erlenda samkeppni.
Á síðasta ári var gerður nýr samning-
ur við íslenska getspá um rekstur á
fslenskum getraunum en upphaflegur
samningur félaganna var gerður 1999.
Samningurinn var einfaldaður til muna
til hagræðis. Afar miklar breytingar hafa
átt sér stað hjá íslenskum getraunum og
þá helst á Lengjunni en sá leikur hefur
verið í stöðugri þróun.
Ákveðið var að fjölga leikjum úr 120
á viku upp í 240 á viku. Mæltist þessi
fjölgun vel fyrir meðal tippara þar sem
nú er hægt að bjóða aukið úrval Ieikja á
Lengjunni. Ákveðið var að fjölga stök-
um leikjum á Lengjunni og eru allir leik-
ir í Landsbankadeild karla og í ensku
úrvalsdeildinni stakir. Ákveðið var að
hækka útborgunarhlutfall á völdum
leikjum og þá sérstaklega í ensku úr-
valsdeildinni og Landsbankadeild karla.
Þessar aðgerðir hafa leitt til þess að
söluaukning hefur orðið í Lengjunni en
jafnframt eykst ábyrgð og eftirlitsþáttur-
inn vegna fjölda leikja. Fleiri þættir eru
í bígerð sem koma til framkvæmda á
árinu 2008. Sala getraunaseðla hefur
gengið afar vel það sem af er árinu og er
söluaukning frá fyrra ári um 25%.
Nýverið tóku Getspá/Getraunir í
notkun nýja, sameiginlega heimasíðu.
Með nýrri heimasíðu er leitast við að
fjölga söluleiðum og koma betur til móts
við viðskiptavini. Með aukinni netnotk-
un og netaðgangi skapast ný og spenn-
andi tækifæri til að efla söluna á Netinu
Stefán Konráðs-
son, framkvæm-
dastjóri íslenskra
getrauna, á árs-
fundi fyrirtækisins.
og fjölga áskrifendum enn frekar.
í stjórn íslenskra getrauna eru Haf-
steinn Pálsson, formaður, frá ÍSÍ, Ást-
hildur Helgadóttir, íþróttanefnd ríkis-
ins, Örn Andrésson, ÍBR, Sæmundur
Runólfsson, UMFf, og Geir Þorsteins-
son, KSÍ. Framkvæmdastjóri er Stefán
Konráðsson.
Góð afkoma hjá íslenskri getspá:
Sigurbjörn Gunnarsson gaf ekki kost
á sér til áframhaldandi stjórnarsetu
Sigurbjörn Gunnarsson tilkynnti á aðal-
fundi íslenskrar getspár þann 29. apríl
sl. að hann gæfí ekki kost á sér til endur-
kjörs eftir 21 árs setu í stjórn. Stjórn
UMFÍ þakkar Sigurbirni fyrir frábær
störf í stjórn íslenskrar getspár. Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
tekur sæti Sigurbjörns í stjórn íslenskrar
getspár.
„Þetta er búinn að vera afskaplega
skemmtilegur tími hjá frábæru fyrirtæki.
Ég minnist þess sérstaklega hvað áhug-
inn var gríðarlega mikill þegar íslensk
getspá hóf starfsemi sína og hvað menn
voru tilbúnir að leggja á sig. Það var
gaman að fá að upplifa þessa tíma og sjá
uppganginn sem orðið hefur. Það eru
fram undan mjög spennandi tímar með
breytingunum í 5/40 og Evrópu-lottó-
inu. Það er mikil samkeppni á þessum
markaði frá erlendum netfyrirtækjum
en engu að síður er framtíð fslenskrar
getpár björt,“ sagði Sigurbjörn Gunn-
arsson.
Á fundinum kom fram að rekstur
I'slenskrar getspár gekk framar vonum
á árinu 2007 eftir erfiðan rekstur fyrstu
sex mánuði ársins. Velta íslenskrar get-
spár jókst um rúmlega 20% á milli ára,
fór úr 1.565 milljónum á árinu 2006 í
1.924 milljónir á árinu 2007. Fram kom
að nokkrir stórir pottar á haustmánuð-
um í laugardagslottói og Víkingalottói
juku söluna verulega.
Eignaraðilar að íslenskri getspá eru
Iþrótta- og Ólympíusamband íslands,
Ungmennafélag fslands og Öryrkja-
bandalag íslands. Framkvæmdastjóri er
Stefán Konráðsson.
38 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands