Skinfaxi - 01.11.2008, Síða 3
Formaður UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir
Sýnum starfinu alúð
Gróskumikið ár hjá Ungmennafélagi
(slands er senn á enda. Þegar horft er um
öxl er hægt að gleðjast yfir svo mörgu sem
hreyfingin getur verið stolt af.
Glæsilegt Unglingalandsmót var haldið
í Þorlákshöfn þar sem þúsundir keppenda
og gesta voru saman komnar við frábærar
aðstæður. Þar skemmtu allir sér hið besta
með fjölskyldum sínum í heilbrigðum
félagsskap og góðu veðri. Unglingalands-
mótið hefur skapað sér fastan sess sem eitt
af stærstu íþróttamótunum hér á landi og
þangað stefnir fjölskyldan ár eftir ár. Það er
ekki að ástæðulausu því þarna fær fjöl-
skyldan, jafnt ungir sem aldnir, kjörið tæki-
færi til að verja dýrmætum tíma saman á
uppbyggilegan hátt. Mótin hafa mikilvægu
uppeldis- og menningarlegu hlutverki að
gegna í íslensku þjóðlífi. Á þeim ríkir andi
vináttu og uppskeran er allri auðlegð meiri
fyrir þá sem sækja mótin og taka þátt.
Átak hefur verið gert í félagsmálafræðslu
en verkefnið„Sýndu hvað í þér býr" felur
m.a. í sér námskeið í fundarsköpum, ræðu-
mennsku og að starfa í stjórn. Nú þegar
hafa verið haldin nokkur námskeið og hafa
þau hlotið góðar undirtektir og verið vel
sótt.
UMFf tók fyrsta skrefið með verkefnið
„Gæfuspor" í sumar. Gæfuspor er ætlað
fólki 60 ára og eldra sem er hvatt til að fara
út og ganga sértil ánægju og heilsubótar.
Ungmenna- og tómstundabúðirnar á
Laugum blómstra sem aldrei fyrr. Búðirnar
eru á sínu fjórða starfsári og fjölgar skrán-
ingum með hverju árinu sem líður en í vet-
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFf.
ur eru nítján hundruð nemendur í 9. bekk
grunnskólanna skráðir í búðirnar. Verkefnið
„Flott án fíknar" hefur ennfremur hlotið góð-
ar undirtektir og klúbbar verið stofnaðir
bæði í grunnskólum og framhaldsskólum
vítt og breitt um landið.
Efnahagsástandið, sem helltist yfir nú á
haustdögum, hefur komið við alla lands-
menn. Það hefur hrikt í stoðum samfélags-
ins og ákveðin óvissa hefur skapast. (
ástandi sem þessu skiptir höfuðmáli að við
stöndum saman og komum okkur sem
fyrst á rétta braut á nýjan leik. MóðirTeresa
sagði eitt sinn:„Þeningar eru nytsamlegir,
en kærleikurinn, athyglin og umhyggjan,
sem við berum fyrir öðrum, er það sem
mestu skiptir." Með þessi orð í huga verða
ungmennafélagar að rækta ungmenna-
félagsandann af öllum mætti og hlúa vel
að æsku landsins í þessu árferði. Einn liður
í því er málþingin„Æskan á óvissutímum"
sem Æskulýðsvettvangurinn, UMFf, KFUM
og K og skátasamtökin, hafa undirbúið og
framkvæmt í samstarfi við Æskulýðsráð
ríkisins og Menntamálaráðuneytið. Mál-
þingin voru haldin í öllum landsfjórðung-
um og á dagskrá var fjöldi fyrirlestra sem
ættu að auðvelda fólki, sem starfar með
börnum og unglingum, að vera þeim sá
stuðningur sem þau þurfa á að halda í
þeirri óvissu sem nú ríkir í þjóðfélaginu.
Gildi íþrótta- og æskulýðsstarfs er og
hefuralltaf verið mikið en aldrei sem nú og
þar megum við ungmennafélagar aldrei
slaka á klónni. Starfið hefur ætíð verið líf-
legt og lifandi og við skulum halda því
þannig áfram.Tölum starfið upp en ekki
niður. Látum ekki áhyggjur af peningum
koma niður á því mikilvæga starfi sem við
sinnum. Munum að í öllum erfiðleikum fel-
ast tækifæri og að eitt bros getur dimmu í
dagsljós breytt. Ungmennafélagshreyfingin
hefur ætíð látið sér fátt óviðkomandi sem
varðað hefur heill og hamingju þjóðarinnar
á hverjum tíma enda í anda markmiðs
hennar,„Ræktun lýðs og lands".
Ég óska öllum ungmennafélögum, sem
og öðrum landsmönnum, gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári.
(slandi allt.
Nýtt fólk i ungmennaráði UIVIFÍ
Ungmennaráð UMFI með nýju fólki
átti fyrsta fund sinn að Varmalandi í
Borgarfirði þann 22. nóvember sl.
Fimm ungmenni komu þar saman
ásamt Guðrúnu Snorradóttur, lands-
fulltrúa, og unnu að stefnumörkun
fyrir hið nýskipaða ungmennaráð.
Hópurinn náði vel saman og var
mikill hugur í fólki til stórra verka inn-
an ungmennafélagshreyfingarinnar.
Formaður nýs ungmennaráðs er
Auður Kjartansdóttir frá HSH, en
aðrir fulltrúar í ráðinu eru: Andri Mar
Jónsson, UfA, Gunnar Sigfússon, HSÞ,
Halldóra Guðjónsdóttir, UMSB, og
Sigríður Etna Marinósdóttir, HHF.
®y>Lw;:
Ungmennaráðið sem
fundaði á Varmalandi
í Borgarfirði.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands 3