Skinfaxi - 01.11.2008, Blaðsíða 4
Akuroyt
SÝNDU HVAÐ í ÞÉR BÝR
Fyrsta námskeiðið í félagsmálafræðslu
undir yfirskriftinni „Sýndu hvað t þér
býr“ var haldið í Litlu-Laugaskóla í
Þingeyjarsýslu 30. október sl. Sigurður
Guðmundsson, sem hefur verið ráðinn
til að stjórna félagsmálafræðslunni, sagði
að námskeiðið hefði gengið mjög vel, en
það voru nemendur grunnskólans á
staðnum sem sóttu það.
„Þátttakan var mjög góð og nemend-
urnir mjög áhugasamir og sýndu miklar
framfarir,“ sagði Sigurður.
Síðan var haldið námskeið á Þelamörk
í Hörgárdal sem stóð yfir föstudag og
laugardag. Það námskeið gekk einnig
með ágætum.
Nemendur í Litlu-Laugaskóla sem tóku þátt í námskeiðinu
„Sýndu hvað í þér býr".
Það er Ungmennafélag Islands, í sam-
vinnu við Bændasamtök íslands og
Kvenfélagasamband fslands, sem stend-
ur fyrir félagsmálafræðslu um land allt
í vetur. Hlutverk námskeiðanna er sjá
félagsmönnum fyrir fræðslu í ræðu-
mennsku og fundarsköpum. Þátttak-
endur fá æfingu í framkomu, framsögn
og þjálfun í fundarsköpum.
Áhugasömum, sem vilja fá námskeið
til sín, er bent á að hafa samband við
Guðrúnu Snorradóttur, iandsfulltrúa
UMFÍ, í síma 848-5917 og á gudrun@
umfi.is og Sigurð Guðmundsson í síma
861-3379 og á sigurdur@umfi.is.
Frístundamiðstöd og ungmenna-
hús tekið í notkun á ísafirði
Frístundamiðstöð/ungmennahús
var opnað að Skólagötu 10 á (safirði
föstudaginn 31. október sl. og gafst
bæjarbúum kostur á að koma og
skoða húsið milli kl. 16 og 18.
Opið verður fyrir 16 ára og eldri
á mánudögum og miðvikudögum
milli kl. 20 og 23, fyrst um sinn, frá og
með 3. nóvember.
Margvíslegt starf verður í húsinu
en auk hefðbundinnar starfsemi ung-
mennahússins geta íþróttafélög og
önnur félög, sem vinna að uppbyggi-
legu ungmennastarfi, fengið aðstöðu
í húsinu.
Áhugasömum er bent á að hafa
samband á fristund@isafjordur.is
Varla þarf að taka það fram að
húsið verður algjörlega tóbaks- og
vímuefnalaust.
4 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags fslands