Skinfaxi - 01.11.2008, Page 6
Nú er brýnt að við
stöndum þétt saman
íþrótta- og æskulýðsstarf hefur
aldrei verið mikilvægara en nú.
Á þeim þrengingatímum, sem
þjóðin gengur í gegnum nú, er
afar brýnt að við hlúum að
þessum þætti í samfélaginu. Við
verðum að standa vörð um hann
af fremsta megni og gæta þess
sem aldrei fyrr að börn og ungl-
ingar hafl greiðan aðgang að
íþróttum og öðru æskulýðs-
starfl. íþróttastarf hefur sannað
sig sem ein öflugasta forvörnin.
Stjórnvöid hafa ekki legið á liði
sínu við að skapa börnum og
unglingum gott umhverfi og
góðan aðgang að íþróttum og ekki
má slá slöku við í þeim efn-
um. Það skiptir sköpum að við
stöndum öll þétt saman og vinn-
um að því að koma okkur á rétta
braut að nýju.
Árið 2008 rennur brátt sitt
skeið á enda. Árið var í senn við-
burðaríkt og gæfuríkt hjá ung-
mennafélagshreyfingunni. Þegar
litið er um öxl má hreyfmgin vera
afar stolt og getur horft bjart-
sýnisaugum til framtíðar. í okkar
hraðfleyga þjóðfélagi, þar sem
hlutirnir breytast fljótt, eru mögu-
leikarnir endalausir. Styrkur og
máttur UMFÍ er mikil! og þessi
fjölmennu samtök munu hér eftir
sem hingað til vinna að góðum
málum fyrir land og þjóð. Spenn-
andi tímar blasa við á nýja árinu
og krafturinn og áræðnin hefur
aldrei verið meiri.
UMFl stendur fyrir stórum verk-
efnum á næsta ári. Annars vegar
Landsmótinu á Akureyri og hins
vegar Unglingalandsmótinu í
Grundarfirði. Þarna gefst lands-
mönnum kjörið tækifærið til að
hittast og eiga skemmtilegar
stundir saman. Þessi mót hafa
svo sannarlega sannað gildi sitt í
gegnum tíðina. Margt fleira mætti
nefna, en hreyfíngin vinnur mikið
með ungu fólki og eldri borgur-
um í ýmsum verkefnum.
Það er von okkar allra að nýja
árið gefi okkur tækifæri til að
horfa björtum augum til fram-
tíðarinnar. íslenska þjóðin hefur
staðið frammi fyrir þrengingum
áður, en með baráttuvilja, sam-
heldni og bjartsýni að vopni höf-
um við ávallt rétt úr kútnum á
nýjan leik. Það munum við
einnig gera núna.
Skinfaxi óskar ungmennafélög-
um sem og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári.
Jón Kristján Sigurðsson,
ritstjóri
HSÞ fékk hvatningarverðlaun UMFÍ
Á 36. sambandsráðsfundi UMFf,
sem haldinn var í Stykkishólmi 11.
október sl., var tilkynnt hverjir
hefðu hreppt hvatningarverðlaun
UMFÍ fyrir árið 2008. Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFl,
gerði grein fyrir verðlaununum og
tilkynnti að þau hefðu komið í hlut
Héraðssambands Þingeyinga, HSÞ.
Arnór Benónýsson, formaður HSÞ,
tók við viðurkenningunni úr hendi
formanns UMFÍ.
Skinfaxi 4. tbl. 2008
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFl.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson o.fl.
Forsíðumynd: Pjetur Sigurðsson.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Prentmet.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Björg Jakobsdóttir, formaður, Anna R.
Möller og Sigurður Guðmundsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFl,
Laugavegi 170-172,105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi og
verkefnisstjóri forvarna,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóriSkinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri.
Sigurður Guðmundsson, fræðslumál.
Stjórn UMFI':
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Ásdís Helga Bjarnadóttir, varaformaður,
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri,
Örn Guðnason, ritari,
Hringur Hreinsson, meðstjórnandi,
Einar Haraldsson, meðstjórnandi,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, varastjórn,
Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn,
JóhannTryggvason, varastjórn,
Einar Jón Geirsson, varastjórn.
Forsíðumynd:
Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnu-
kona og íþróttamaðurársins 2007.
Margrét Lára hefur skipað sér á bekk á
meðal bestu knattspyrnukvenna í heim-
inum. Á dögunum skrifaði hún undir
atvinnumannasamning við sænska liðið
Linköping. I viðtali við Skinfaxa segir hún
frá ýmsu og gefur unglingum góð ráð.
6 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands