Skinfaxi - 01.11.2008, Qupperneq 8
Vímuvarnavika 2008
Vímuvarnavika var nú í haust
haldin fimmta árið í röð, dagana
19.-25. október, eða í 43. viku ársins.
Framvegis verður 43. vika ársins
notuð til að kynna málefni vímu-
varna á íslandi og heitir þá verkefn-
ið framvegis „VIKA 43“.
Vika 43 er vettvangur 20 félaga-
samtaka sem vilja leggja forvörnum
lið og/eða hafa forvarnir að mark-
miði starfs síns, til þess að vekja
athygli á forvarnastarfi og áfengis-
og vímuefnamálum, með því að:
- skapa vettvangfyrir samstarf
félagasamtaka um að vekja athygli
á stefnumörkun í áfengis- og vímu-
efnamálum, einkum forvörnum.
- varpa Ijósi á viðfangsefni forvarna
og það starf sem unnið er á vett-
vangi félagasamtaka.
- vekja athygli landsmanna á mikil-
vcegi forvarna, einkum forvörnum
gagnvart börnum og unglingum.
- virkja þekkingu, styrk og samstöðu
grasrótarsamstarfs til eflingar
forvarnastarfs.
Hvers vegna?
Neysla áfengis og annarra vímu-
efna raskar uppvexti og ógnar vel-
ferð margra barna. Sum bíða ævar-
andi tjón. Það er bitur reynsla for-
eldra og annarra aðstandenda að sjá
barn sitt lenda í íjötrum vímuefna-
neyslu og villast út á brautir glæpa
og ofbeldis. Það er átakanleg fórn
sem snertir okkur öll.
Forvarnastarf gegn áfengis- og
vímuefnaneyslu er liður í að skapa
börnum þroskavænleg skilyrði. Með
því að styðja börn og ungmenni í að
hafna neyslu áfengis og annarra
vímuefna er stuðlað að velferð þeirra
og lífshamingju.
í forvarnastarfi er lögð höfuð-
áhersla á að ná til barna og unglinga,
í ljósi þess að í æsku er lagður grunn-
ur að framtíð hvers einstaklings.
Þá mótast mikilvægar forsendur
lífssýnar, þroska og heilbrigði síðar
á ævinni. Ungt fólk er veikara fyrir
gagnvart neyslu vímuefna en full-
orðnir og rannsóknir sýna að því
seinna sem ungt fólk byrjar neyslu
áfengis og tóbaks því minni líkur
eru á að það leiðist út í neyslu vímu-
efna, hætti í skóla eða lendi í öðrum
erfiðleikum. Þá verður að hafa í
huga að börn og ungmenni eru ber-
skjölduð fyrir áróðri og hvatningu
til neyslu áfengis og annarra vímu-
efna. Með fræðslu, upplýsingarstarfi
og hvatningu til heilbrigðra lífshátta
er leitast við að sporna gegn vímu-
efnaneyslu barna og ungmenna.
Vika 43 árið 2008
beinir sjónum að opinberri stefnu-
mörkun í forvörnum. Opinber
stefna er mikilvægur rammi, sam-
komulag um hvert beri að stefna.
Stjórnvöld eru hvött til að:
- lcekka ekki aldursmörk til áfengis-
kaupa.
- skerpa á reglum um áfengis-
auglýsingar.
- standa gegn sölu áfengis í
almennum verslunum.
Vika 43 verður kynnt í fjölmiðl-
um þegar nær dregur en auk þess-
ara áhersluatriða vikunnar í ár verð-
ur vakin athygli á framlagi félaga-
samtaka, skóla og annarra aðila í
vímuvörnum.
Samtöksem eigaaðild
að Viku 43:
Bandalag íslenskra skáta, Biskups-
stofa, Brautin - bindindisfélag öku-
manna, FÍÆT - félag íslenskra
æskulýðs- og tómstundafulltrúa,
FRÆ, Heimili og skóli. IOGT á
íslandi, fSÍ, ÍUT-forvarnir,
KFUM-K, Krabbameinsfélag
Reykjavíkur, Kvenfélagasamband ís-
lands, LIONS-hreyfingin, Samstarf
um forvarnir SAMFO, SAMFÉS,
Samtök foreldra gegn áfengisaug-
lýsingum, Samtök skólamanna
um bindindisfræðslu SSB, UMFÍ,
VÍMULAUS ÆSKA - Foreldrahús,
Vernd - fangahjálp
Aðsetur Viku 43 er í Brautarholti 4a
í Reykjavík og síminn er 511 1588.
8 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands