Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.11.2008, Qupperneq 12

Skinfaxi - 01.11.2008, Qupperneq 12
Vest Norden Ungdomsforum (VNU): KYNNTUMST NÝJU FÓLKIOG LÆRÐUM NÝ VINNUBRÖGÐ Vest Norden Ungdomsforum (VNU) er verkefni á vegum samtaka ung- menna í Færeyjum og á Grænlandi og Islandi sem UMFÍ tekur þátt í. Fyrir ári hélt það námskeið í Fær- eyjum sem á fóru Guðjón Bjarni Hálfdánarson, Hveragerði, Gunnar Gunnarsson, UÍA, og Inga Rún Sæmundsdóttir, Reykjavík. Farar- stjórar þeirra voru fulltrúar UMFÍ í VNU-samstarfinu, Jóhann Tryggva- son, UÍA, og Ásdís Helga Bjarna- dóttir, UMSB. Gunnar, Guðjón og Inga Rún héldu dagbók um það sem á daga þeirra dreif í ferðinni. Jói hreinlega þekkti alla „Ég er búinn að steingleyma hvað flugvöllurinn heitir. Ég man ekki hvar námskeiðið verður og ég veit varla hvað ég er að fara að Iæra,“ var það fyrsta sem við hugsuðum þegar við vorum lent í Færeyjum. Við höfðum hist í fyrsta sinn þrem- ur tímum fyrr - á flugvellinum í Reykjavík. Jóhann Tryggvason, far- arstjóri og stórskáld, var öllu kunn- ugri. Hann hreinlega þekkti alla eyjarskeggja; flugstjórann, tollar- ann, manninn á öryggisbílnum og þann sem keyrði töskunum okkar úr vélinni. Kinduríbakgarðinum Borgarbörnin ráku upp stór augu þegar þau sáu að þorpsbúar í Sanda- vági voru með kindur í bakgarðin- um hjá sér. Þær tipluðu um bæinn óheftar. Hinum megin við húsið var gömul kona að stinga upp í kartöflu- garði. I Þórshöfn blasti við okkur Reyði krossinn sem átti eftir að koma að góðum notum. Gestgjafar okkar buðu til tónleika og danssýningar í Norræna húsinu og síðan settumst við á kaffihús þar sem hópurinn var hristur saman. Nema Gunnar. Hann hafði mikil- vægara hlutverki að gegna. Honum var boðið á undirbúningsfund fyrir stofnun Stuðningsmannaklúbbs Manchester United í Færeyjum þar sem honum var tekið sem konungi. Sögur af Klóakvíkingum Annar dagurinn hófst á göngutúr í færeyskri slyddu. Guðjón var mætt- ur í leðurjakkanum og mokkasíun- um og ekki alveg jafnánægður og aðrir. Á göngunni hittum við merkis- mann, eiganda Straujárnsins, pínu- 12 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.