Skinfaxi - 01.11.2008, Page 14
um í farteskinu. Megininntakið
var hugmyndavinna, hvernig
byrjað er mjög vítt á háleitum
markmiðum og þeim síðan komið
niður á jörðina til framkvæmda.
Námskeiðið endaði á kynningu
þar sem við létum ljós okkar skína
á dönsku. Líka Gunnar sem fram
að því hafði ýmist gert allt vitlaust
eða spurt hina íslendingana hvað
hefði verið sagt.
Hippapartý
Námskeiðið endaði á hippa-
partýi heima hjá formanni FUR.
Við nældum okkur í hippaföt í
Reyða krossinum þar sem Jóhann
var sérlegur tískuráðgjafi hópsins
og sagði hippatískuna það heitasta
í Eyjunum. Ingu og Guðjóni þótti
Iítið til fatanna koma en nýtingar-
sinninn Gunnar harðneitaði að
henda fötunum sem hann keypti.
Þau hvíla nú vel geymd inni í fata-
skáp.
Kaffiboð í Sandavági
Seinasti dagurinn var útsýnis-
ferð undir stjórn Jóa. Við fórum
yfir í Gásadal, stað þar sem 13
manns bjuggu þegar opnuð voru
jarðgöng þangað í janúar. Bærinn
stendur við þverhnípi niður í sjó,
fossinn úr dalnum fellur hátt í 100
metra niður í sjó og ferðir niður
tröppurnar niður í fjöru eru á eigin
ábyrgð. í bænum sáum við tvo
menn og fjóra hunda á gangi.
Jói dró okkur líka í tvö kaffiboð í
Sandavági, hið fyrra hjá formanni
íþróttafélagsins, það seinna hjá
vinafólki. Sandavágur er vinabær
Fjarðabyggðar og Þróttur og íþrótta-
félagið í Sandavági hafa lengi verið
í samstarfi.
Kvöldið enduðum við á ljúfri
kvöldstund í keilu þar sem stuð-
tónlistin „Kafajól, kafajól," var
bauluð af rammfölskum, færeysk-
um barnakór.
Við þökkum UMFÍ kærlega fyrir
að bjóða okkur í ferðina. Þið megið
bjóða okkur sem fyrst aftur. Við
lærðum ýmislegt í ferðinni. Við
kynntumst nýju fólki, lærðum ný
vinnubrögð og ekki síst sáum við
Færeyjar. Jói tryggði einstaka menn-
ingarupplifun okkar af þeirn.
Takk fyrir okkur
Gunnar, Guðjón og Inga Rún
Góð kynning og frábærar móttökur í Grundarfirði
Fulltrúar á sambandsráðsfundi
UMFÍ, sem haldinn var í Stykkis-
hólmi 11. október sl., heimsóttu
Grundarfjörð, en þar verður 12.
Unglingalandsmót UMF( haldið dag-
ana 31. júlí til 2. ágúst næsta sumar.
Gestirnirfengu höfðinglegar mót-
tökur og Guðmundur Ingi Gunn-
laugsson, bæjarstjóri í Grundarfirði,
upplýsti gestina um undirbúning-
inn fyrir mótið sem miðar vel áfram.
Ljóst má vera að aðstæður allar
eiga eftir að verða til fyrirmyndar
og er óhætt fyrir keppendur og
gesti að fara að hlakka til Unglinga-
landsmótsins. Mikil eftirvænting er
í Grundarfirði vegna mótsins og
metnaður hjá heimamönnum að
halda glæsilegt mót.
Framkvæmdir í Grundarfirði
standa yfir af fullum krafti en unnið
er að gerð frjálsíþróttavallar með
gerviefni og ýmsar aðrar fram-
kvæmdir eru í gangi á mótssvæðinu.
14 SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags (slands