Skinfaxi - 01.11.2008, Qupperneq 23
►
\
Forvarnardagurinn haldinn í þriðja sinn:
Niðurstöður úr hópastarfi ungmenn-
anna á forvarnardeginum verða teknar
saman og gefnar út í sérstakri skýrslu
sem verða kynnt á vettvangi sveitar-
félaga, íþrótta- og æskulýðssamtaka og
víðar innan tíðar.
Skýrsla með niðurstöðum umræðna
á forvarnardeginum í fýrra er aðgengi-
leg á heimasíðunni forvarnardagur.is.
Þar er einnig að finna ýmsar upplýsing-
ar í tengslum við þetta brýna og áhuga-
verða verkefni.
Forvarnardagurinn var haldinn í
grunnskólum landsins þann 6. nóvem-
ber sl. Það eru nemendur í 9. bekk sem
taka þátt í deginum sem haldinn var nú
í þriðja sinn. Þeir sem standa að degin-
um eru Ungmennafélag (slands, ÍSf,
skátahreyfingin og Samband íslenskra
sveitarfélaga. Forvarnardagurinn er
styrktur af lyfjafyrirtækinu Actavis.
Fulltrúar þeirra sem standa að degin-
um fóru í heimsóknir í skólana um
morguninn og kynntu aðaláherslur
verkefnisins. Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands, heimsótti m.a. Húsaskóla
og Varmárskóla í Mosfellsbæ. Hanna
Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, heim-
sótti nemendur í Réttarholtsskóla.
Dagskráin innan skólanna er byggð á
þremur heilræðum, samveru, þátttöku í
íþrótta- og tómstundastarfi og seinkun
þess að hefja áfengisneyslu sem rann-
sóknir hafa sýnt fram á að dugi best sem
forvarnir gegn fíkniefnum.
Á forvarnardeginum er einnig lögð
megináhersla á að koma því til skila
sem áratugalangar rannsóknir íslenskra
fræðimanna við Háskóla íslands og
Háskólann i Reykjavík hafa sýnt að skili
mestum árangri í forvörnum gegn
fíkniefnum:
Unglingar sýna verk-
efninu mikinn áhuga
1. Að foreldrar og ungmenni verji sem
mestum tíma saman.
2. Að börn og unglingar taki þátt í skipu-
lögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi.
3. Að ungmenni frestiþvísem lengst
að hefja neyslu áfengis.
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 23