Skinfaxi - 01.11.2008, Blaðsíða 25
til dyranna. Ekki láta undan þrýstingi, lifa
heilbrigðu lífl, sofa vel. Iþróttir eru ómiss-
andi þáttur í að halda unglingum frá óhollu
líferni. Iþróttir eru tvímælalaust að mínu
mati sterkasta forvörnin. Góður félags-
skapur er einnig mikilvægur."
- Það er draumur hjá tnörgum knatt-
spyrnumönnum aðfara í atvinnumennsku.
Var það alltaf markmið hjá þér?
„Ég gekk ekki með atvinnumanninn í
maganum. Að komast í atvinnumennsku
í kvennaknattspyrnu var bara alls ekki í
boði fyrir svo löngu. Dyrnar í þeim efnum
hafa síðan verið að opnast smám saman
og margar konur hafa verið að gera góða
hluti á Norðurlöndunum. Það má segja
það alveg hiklaust að það eru viss forrétt-
indi að fá að komast í atvinnumennsku og
fá laun fyrir að æfa og leika knattspyrnu."
- Nœsta ár er líklega mikil áskorun fyrir
Margréti Láru og íslenska kvennaknatt-
spyrnu?
„Það er óhætt að segja það. Ég er að fara
að leika með nýju félagi og er svo spennt
að ég get varla beðið. Ég fer út í febrúar og
hef þá æflngar og undirbúning fyrir næsta
tímabil. Það verður síðan stórkostlegt að
leika með íslenska landsliðinu í úrslita-
keppni Evrópumótsins í Finnlandi. Þegar
því móti lýkur hefst undankeppni fyrir
heimsmeistaramótið og það yrði alveg
meiriháttar ef okkur tækist að komast í
úrslit á því móti. Það er geysilegur sam-
hugur í liðinu og við erum staðráðnar í
því að standa okkur vel í þeim verkefnum
sem fram undan eru,“ sagði Margrét Lára
Viðarsdóttir.
Margrét Lára Viðarsdóttir er án efa í
hópi bestu knattspyrnukvenna í heimin-
um í dag. Hún er markaskorari af Guðs
náð og framganga hennar á knattspyrnu-
vellinum hefur farið út um víðan völl og
mörg bestu knattspyrnulið hafa falast eftir
kröftum hennar. Þessi áhugi hefur ekki
komið neinum á óvart, enda hér á ferð
leikmaður sem myndi sóma sér vel í bestu
félagsliðum heims. Eftir tímabilið í haust
var ljóst að Margrét Lára myndi leggja land
undir fót og reyna fyrir sér á erlendri
grundu. Félög í Svíþjóð, Þýskalandi, Italíu
og í Bandaríkjunum vildu fá hana í raðir
sínar. Nú fyrir stuttu varð ljóst að Margrét
Lára myndi leika í Svíþjóð, nánar tiltekið
með Linköping, sem er félag í fremstu röð.
Hún skrifaði undir eins árs samning við
félagið og heldur utan alfarin til æfinga hjá
liðinu í febrúar.
„Ég get varla beðið, tilhlökkunin að leika
með þessu félagi er mikil. Ég er búin að
stefna að þessu um tíma að fara erlendis
og nú er það orðin staðreynd. Þetta er góð-
ur klúbbur með flotta umgjörð og góðan
metnað. Það verður ofsalega gaman að fara
inn í þetta umhverfi og vonandi mun ég
standa undir þeim væntingum sem gerðar
eru til mín,“ sagði Margrét Lára í viðtali
við Skinfaxa á dögunum.
Frammistaða Margrétar Láru á knatt-
spyrnuvellinum hefur vakið verðskuldaða
athygli og það kom því kannski fáum á
óvart að hún var kjörinn íþróttamaður
ársins 2007. Þetta var í fjórða sinn sem
konu hlotnaðist þessi heiður en það eru
Samtök íþróttafréttamanna sem standa að
kjörinu og hafa gert allar götur frá 1956.
Margrét Lára var ekki há í loftinu þegar
hún hóf að æfa knattspyrnu í Vestmanna-
eyjum en fimm ára gömul mætti hún á
fyrstu æfinguna. Hún segist hafa æft lengi
vel, eða til 15 ára aldurs, bæði fótbolta og
handbolta og að auki á tímabili kom hún
einnig nálægt frjálsum íþróttum. Hún átti
um tíma sæti í tveimur yngri landsliðum
Islands í knattspyrnu, svo snemma var
hún farin að vekja athygli.
„Þegar ég var 15 ára gömul tók ég
ákvörðun um að helga mig alfarið fótbolt-
anum. Það var samt mjög gaman í hand-
boltanum en sú stund hlaut að renna upp
að maður þyrfti að ákveða sig hvaða
íþróttagrein yrði fyrir valinu."
- Það hlýtur því að hafa verið stundum
nóg að gera hjá þér.
„Já, það var það, en ég naut þess fram í
ftngurgóma að vera í íþróttum. Lífið sner-
ist að mestu um skólann og íþróttir. Þetta
var ofsalega góður tími í frábærum félags-
skap. Ég lék lengstum með Tý og síðan
með ÍBV, en þegar ég fluttist upp á land
gekk ég í raðir Vals. Þar hef ég líka á'tt frá-
bæran tíma, eignast góðar vinkonur og
andinn í Val hefur ekki verið neinum líkur.
Fram undan eru breytingar, áskoranir sem
verður gaman að takast á við,“ sagði
Margrét Lára.
Það eru eflaust margar ungar knatt-
spyrnukonur sem líta upp til Margrétar
Láru og eru stoltar af henni. Þegar hún var
spurð hvort hún sjálf leggi ekki mikið upp
úr því að lifa heilbrigðu og skynsamlegu
lífi svaraði hún því svo:
„Að sjálfsögðu legg ég ofsalega mikið
upp úr því að borða hollan mat og sofa vel.
Svefninn er rosalega mikilvægur í mínum
huga, ekki síst íþróttamönnum. Ef maður
hefur ekki fengið nægan svefn er maður
einfaldlega ekki tilbúinn að takast á við
verkefnin sem bíða manns dags dagslega.
Mataræðið leikur einnig stórt hlutverk og
það er ekki sama hvað maður setur ofan í
sig. Svona heilt yfir borða ég hollan mat og
hef gert frá því að ég man eftir mér en auð-
vitað bregður maður út af vananum, það
er bara eðlilegt. I dag gera íþróttamenn sér
æ meira grein fyrir því hvað mataræðið
skiptir miklu máli,“ sagði Margrét Lára.
Talið berst síðan að íslenskum ungling-
um og segist Margrét Lára ekki vera í nein-
um vafa um að þeir standi sig vei.
„Mér flnnast íslenskir unglingar flottir.
Þeir eiga vera þeir sjáifir og koma þannig
Margrét Lára Viðarsdóttir, landsliðskona í k
íþróttir
tvímælalaust
besta forvörnin
SKINFAXI - tímarit Ungmennafélags íslands 25