Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1939, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1939, Qupperneq 10
HRAÐSKREIÐASTA MÓTORFARÞEGASKIP í HEIMI % ÖRflNJE. ««!!!!! Ulli ■mmmi:. ...m *«m n « (l , mmmM. Aflmesta og hraðskreiðasta farþegamótorskip sem nú er til eiga Hollendingar, eða Netherland Steamship Co. Er það alveg nýsmíðað og heitir „Oranje“. Skipið er 21.000 smál. og fór á reynsluferð 26,3 sjómílur. Vélaorkan við þann hraða var 37,365 virk hestöfl. I langri grein, sem birtist í „Motorship“, er mikið af því látið, hve skip þetta sé vandað í alla staði. Einkum er vakin athygli á því, hversu vel hiti útblástursgassins frá vélunum sé notað- ur. Með þar til gerðum tækjum, er hægt að framleiða við þennan hita um 300 smálestir af vatni á dag, nothæft til drykkjar og þvotta. — Sparar það um 2800 smál. af burðarmagni skipsins í hverri ferð og tilsvarandi í hafnar- gjöldum. Orkunýting (thermal efficiency) sjálfrar vélarinnar er talin 41,6%, en með hinni fullkomnu nýtingu á útblástursgasinu, verður orkunýting vélbúnaðarins alls um 54,2 %. Er það talið hámark þess, sem náðst hefir á þessu sviði. 1 skipinu eru 3 tvígengis 12 strokka einfald- ar Salzer-vélar, 12,500 hestöfl hver. Auk þess 5 tvígengis 6 strokka einf. Salzer-vélar, 1800 hestöfl, og eru þær í sambandi við 1000 kw. raf- ala, sem veita 230 watta straum til allra vika- véla, þar á meðal skotloftsdælanna, sem eru ó- háðar aðalvélunum. Mundi að öðrum kosti þurfa um 7% af orku aðalvélanna, til þess að knýja þær. VIKINGUlt 10

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.