Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Side 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Side 1
SJÓMANNABLAÐIÐ U I K I H G U R ÚTGEFANDI: FARMANNA- OU FIS KIM AN N AS A M B A N D íSLANDS VI. árg. 6.-7. tbl. Reykjavik, júni-júlí 1944 Fyrsti lýðveldisforsefi Islands fslenzkt lýðveldi stofnað á Þingvelli að Lögbergi við Öxará. Merkustu og ógleymanlegustu dagar í lífi nokkurs núlifandi fslendings, eru liðnir lijá. Allir hefðu forfeður okkar viljað vera í okkar sporum og lifa þessa dýrðlegu daga, þessi aldaskipti í viðreisnarsögu þjóðarinnar. Núlifandi fslendingar hafa öðlast mikið hnoss, sem þeim ber skylda til að gæta vel. Mikið happ er það þjóð vorri, á þessum viðsjártímum, að í mestu virð- ingarstöðu þjóðarinnar skyldi veljast jafn víðkunnur og viðurkenndur sæmd- armaður og Sveinn Björnsson. Allir sanngjarnir og réttsýnir fslendingar hljóta að viðurkenna, að betur gat eigi tekist til, enda svaraði sá hluti þjóðar- innar, sem að Lögbergi var hinn eft- irminnilega dag, er forsetinn var val- inn, með svo ógleymanlegri hrifning, að betra svar gátu þingmenn þeir, er greiddu atkvæði, eigi fengið, um það að þeir hefði valið að vilja fólksins. Þar sló hjarta þjóðarinnar og ótvírætt með hinum nýkjörna forseta og lýðveldinu. í nafni sjómannanna, sem skipa Far- manna- og fiskimannasamband fslands, árna ég herra forsetanum allra heilla, gleði og hamingja verði lilutskipti lians. Heill fylgi störfum lians fyrir okkar kæra föðurland. Á. S.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.