Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 25
og glæsilegum skipum, sem táknrænan menningar- vott friálsborinnar þjóðar? allir sem einn, að þessi árshátíð okkar verði ávallt haldin þannig, að stétt okkar megi verða til sóma. Stýrimenn e/s. Selfossi. Sjómannadeginum 1944 bárust heillaóskaskeyti víðsvegar að, eins og að undanförnu, er sýnir hve dagurinn á orðið ríkan þált í hugum manna, enda þótt þeir séu fjarverandi. í gegnum utanríkismálaráðuneytið barst svohlj. skeyti frá London: Vinsamlega framsendið eftir- farandi til skemmtinefndar sjómannadagsins: Beztu hamingjuóskir með daginn og kærar kveðjur. Frá skipshöfninni Brúarfossi. Fleetwood: All our best wishes, from crew of Geir. Aðalfundur Eimskipafélags íslands sendir sjó- mannastéttinni hugheilar heillaóskir. Benedikt Sveinsson fundarstjóri Tómas Jónsson ritari. Mínar beztu hamingjuóskir í tilefni af sjómanna- deginum. Breytilegt skapast skýjafar, er skundar um djúpið blátt. — Með kærri kveðju. María Maack. Á þessu okkar hamingjuári.þar sem okkar helg- ustu óskir rætast, þökkum við vel unnið starf og óskum ykkur allra heilla. Skipverjar Óla Garða. Okkar beztu hamingjuóskir með daginn. Skipverjar b/v. Kári. Við sendum þér, sjómannadagur, símskeyti utan af sjó. Vaxi þér virðing og hagur, velvild, og unaður þó. Skipverjar Surprise. Innilegustu hamingjuóskir með daginn. Skipverjar Skallagrími. Við sendum ykkur beztu hamingjuóskir með daginn. Skipverjar Rán. Innileg hamingjuósk með sjómannadaginn, sjó- mennina alla og alla velunnara þeirra. Friður sé með þeim látnu. Oddur Valentínusson leiðsögum. Stykkishólmi. Beztu hamingjuóskir með daginn. Skipverjar b/v. Snorri Gpði. Grande bretagne — Congratulations — Bjarni Jónsson. Grande bretagne — Good cheer — Haraldur Ólafsson. ÚTI UM LAND Hátíðahöld sjómannadagsins í Úlafsfirði. Sjómannadagurinn 4. júní s. 1. var hátiðlegur haldinn í Ólafsfirði, og voru allir bátar við land þann dag. Venja hefir verið, að hátíðahöld sjómannadagsins hafa byrjað með sjómannaguðslþjónustu, en vegna fjarveru sóknarprestsins, sem staddur var í Gríms- ey í embættiserindum, féll guðsþjónustan niður að þessu sinni. Kl. 1,30 e. h. hófust hátíðahöld dagsins með skrúð- göngu sjómanna og annarra Ólafsfirðinga frá kirkju að íþróttavelli, þar sem fram fór knattspyrnukapp- leikur og reiptog. Vegna kulda og kalsaveðurs var ekki hægt að hafa útisamkomu, sem þó hafði verið ráðgert. En síðar um daginn, eða kl. 5,30 hófst skemmti- samkoma í samkomuhúsinu. Voru þar fluttar ræður, lesið upp og sungin gamankvæði. Ræður fluttu þar: Gunnlaugur Jónsson, sem setti samkomuna, Þor- steinn Símonarson lögreglustjóri mælti fyrir minni sjómanna, Þorvaldur Þorsteinsson las einnig upp, Sigurður Baldvinsson útgerðarmaður og Sigurður Jóhannesson skósmiður. Að lokum söng Axel Pét- ursson sjómaður nokkur gamankvæði. Samkoma þessi var ánægjulega vel sótt og hin virðulegasta. Um kvöldið var fjölsótt og ágæt dans- skemmtun, sem stóð fram á nótt. Slysavarnasveit Ólafsfjarðar hefir jafnan staðið fyrir hátíðahöldum sjómannadagsins í Ólafsfirði. Fréttir af hátíðahöldum sjómannadagsins víðs vegar af landinu bera vott um vaxandi virðingu sjó- manna og alls almennings fyrir deginum og tilgangi hans. Sjómannadagurinn þarf líka að vera sjómönnun- um til ánægju og uppörfunar, hann þarf að vera þeim til skemmtunar og umíram allt þeim til sóma. Að því eiga sjómennirnir að vinna alls staðar á landinu, að sjómannadagurinn verði virðulegur há- tíðisdagur í þjóðlífi íslendinga, er sýnt getur þann sæmdarsess, sem sjómannastéttin á með réttu að skipa í þessu voru sægirta landi. Sendum öllum sjómönnum hugheilar hamingju- óskir í tilefni af sjómannadeginum. Störfum að því, Ólafsfirði, 6. júní 1944. Þorv. Þorsteinsson. VÍKINGUR 177
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.