Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 41

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Blaðsíða 41
Gísli Gíslason skipstjóri Héðinshöfða Gísli Gíslason skipstjóri, Héðinshöfða er fæddur að Svínafelli í Öræfum 25. maí 1867. Átta ára gam- all fluttist hann til Ingimundar Eiríkssonar, móður- bróður síns á Seyðisfirði. Gísli Gíslason. Sjó byrjaði Gísli að stunda svo fljótt sem hann gat árinni valdið, þá var ekki um aðra útgerð að ræða en áraskip. Skömmu eftir fermingaraldur tók hann við formennsku og lánaðist ágætlega. Varð hann, er tímar liðu, kunnur um Austfirði fyrir fyrir heppni og dugnað. Til marks um heppni hans vil eg segja frá einu atviki. Eitt sinn var Gísli að sigla til lands í vondu veðri. Á undan honum sigldi bátur með þrem mönnum, formaður á þeim bát var Elías Sigurðsson. Allt í einu sér Gísli, að báturinn hverfur, og skilur strax hvað um er að vera; segir hann við menn sína, að nú sé ekki um annað að gera en sigla á staðinn og bjarga því, sem bjargað verði, og biður þá að vera viðbúna. Innan stundar er hann kominn á slysstaðinn. Þeir, sem frami í bátnum voru, náðu i tvo þeirra, er í sjónum lágu, en í þann þriðja náði Gísli um leið og báturinn rann framhjá. Að sjálf- sögðu varð hann að hafa aðra höndina á stýrinu og gat því ekki innbyrt manninn fyr en félagar hans komu honum til hjálpar. Atvik þetta sýnir allt í senn: heppni, traust hand- tök og góða stjórn. Margt fleira mætti í letur færa um sjómennsku Gísla Gíslasonar, enda mun hann hafa haft með skipstjórn að gera á stærri og smærri skipum um 40 ára skeið. Um aldamót átti Gísli mikla útgerð, eitt þilskip, sem hann sjálfur hafði skipstjórn á, og fjóra ára- báta, fiskinn saltaði hann og staflaði í pakkhús, sem hann átti. Þar hafði hann alla sína útgerð, og að haustinu setti hann skip sitt í naust rétt hjá pakkhúsinu. Þá vildi honum til það óhapp, að snjó- flóð féll á pakkhúsið, og þar missti hann alla sína útgerð, húsið hálffullt af fiski, skip og báta. Engu varð bjárgað. Allt óvátryggt. Hingað til ísafjarðar fluttist Gísli árið 1910, og stundar hann nú algenga daglaunavinnu, og þrátt fyrir sinn háa aldur, heldur hann þar fyllilega sín- um hlut fyrir þeim, sem yngri eru. Enn geislar af gamla manninum þrek og kjarkur, auðkenni hins aldna sjómanns, sem staðist hefir hin hörðu fangbrögð Ægis, og stendur nú reiðubú- inn að bjóða Elli gömlu byrginn. ísafirði, 12. maí 1944. Sigurgeir Sigurðsson. hlustað’u á raddir smáar, harmanna þerraðu tár. Skipinu lýstu að landi, lausnarans mikli andi, blessa þú alit vort starf. Islandi gefðu gróður, vertu, ó, Guð minn góður, lands vors og lýðs athvarf. Faðir, við fætur þínar, fram flyt eg bænir mínar, smár em ek íslands son. Lát oss ó Guð ei gleyma gæðunum hérna heima. Það er mín ósk og von. VÍKINGUR Lífsins og Ijóssins faðir, vér lútum þér, frjálsir, glaðir, og föllum að fótum þér. Lýstu landinu kæra, lát oss þá vizku læra, að lifa svo líki þér. XII. Synir og dætur af stofninum sterka, stórhuga verum til þjóðlegra verka. Nú öll verum eitt, vinnum Islandi allt, vertu einhuga þjóð, og þá sigra þú skalt. Þorvaldur Þorsteinsson, Ólafsfirði. 193
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.