Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Page 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Page 12
Lúga er inn í borðsalinn fyrir aftan, en inngangur- inn í það frá ganginum. Eldavélin er olíukynt. 3. Geymsla fyrir þurr matvæli er sb. megin í þil- farsyfirbyggingu, beint á móti eldhúsi, en köld geymsla með rafknúinni kælivél fyrir matvæli er bb. megin fyrir framan eldhúsið. 4. Fatageymslu, aðallega ætlaðri fyrir hlífðarföt, er komið fyrir sb. megin fremst. 5. Tvö W.C. með sturtubaði eru sb. og bb. megin fremst í þilfarsyfirbyggingunni; er gengið inn í þau frá þilfarsgangi. 6. Gengið er inn í þilfarsyfirbyggingu sb. og bb. megin frá þilfari aftast. Er þessi inngangur lok- aður með tveim hurðum (þ. e .venjulegri hurð og þétti-hurð að utan)); er þéttihurðin til þess að hægt sé að loka ganginum alveg, ef vont er í veðri. Tveir gangar liggja aftur með vélareisn, en sameinast í einn gang þar fyrir aftan. Frá þessum göngum er gengið inn í íbúðarherbergi, matsal, eldhús, geymsl- ur, W.C. og bað, niður til íbúða undir þilfari, og upp á bátaþilfar, einnig inn í vélarreisn. Bb. megin liggur gangur fram þilfarsyfirbygginguna, og úr þeim gangi gengið inn í herbergi 1. vélstj. og 1. stýrim., en áframhald gangsins liggur fram í her- bergi togvinduvéla og upp til -stýrishúss. Þannig er innangengt um allar íbúðir skipverja til mat- salar, vélarrúms og stýrishúss. 7. Auk þeirra þriggja W.C. með sturtubaði, sem talin hafa verið (sb. og bb. fremst á þilfarsyfir- byggingu og hjá skipstjóra) er komið fyrir einu W.C. í stýrishúsi bb. megin og einu í þilfarsreisn sb. megin fremst. Þilfarsvindur: 1. Togvindan. Henni er komið fyrir á þilfarsupphækkun fyrir framan þilfarshús. Það, sem á þilfarinu stendur, er aðeins tromluöxull með tveim tromlum, sem hægt er að kúpla að og frá, og tveir tvöfaldir tog- vindukoppar. Sjálf drifvélin (rafmagnsmótor) stendur inni í þilfarshúsinu fyrir aftan togvinduna, en öxull í þétt lokuðum kassa, er einnig fellur utan um drifás togvindunnar, liggur frá húsinu fram í togvinduna. Hægt er að stjórna rafmagnsmótornum með handföngum sb. og bb. megin á togvindunni, þannig að sá, sem henni stjórnar, getur alveg fylgst með allri hífingu. Rafmagnsmótorarnir inni í þilfarshúsinu eru tveir, hvor um sig ca. 130 HK. og er ætlazt til, að þeir séu notaðir á víxl (kúplað inn til skiptis) eða jafnvel hægt að skilja annan eftir í landi, ef hann þarfnaðist stærri aðgerðar við, þar sem langan tíma eða ca. 10—12 daga tekur að gera við meiri háttar bilanir á slíkum mótorum. Rafmagnsmótor- ar þessir fá orku sína frá tveim hjálparvélum, 160 HK., sem áður er getið. 2. Akkerisvindan. Henni er komið fyrir ofan á hvaibak skipsinS fremst; er þar sama fyrirkomulag og með togvind- una, að rafmagns-drifmótornum er komið fyrir í þéttlokuðu herbergi fremst undir hvalbaknum, en uppi á hvalbaknum eru aðeins tvær keðjutromlur og tveir einfaldir koppar. Gangi vindunnar er stjórn- að frá hvalbak. Keðjutromlum er hægt að kúpla að og frá, svo sem venja er. í sambandi við akkerisvinduna skal þess getið, að akkerin falla algerlega inn í bóga skipsins, þegar þau eru uppi, svo að engin hætta er á að þau rekist í, þótt skipið fari nálægt einhverju. Keðjustoppar- arnir eru fyrir framan akkerisvinduna. Yfir keðju- rörin, sem liggja niður til keðjukassans, er komið fyrir sérstaklega útbúnum gúmmíhettum, sem klemmast utan um rörin og fast að keðjunni til varnar því, að sjór gangi í keðjukassa, sem oft vill koma fyrir. 3. Þilfarsvinda á bátaþilfari. Henni er komið fyrir aftan til við afturmastur, og er hún ætluð til notkunar, þegar verið er að binda skipið með vírum út úr afturkefum sb. eða bb. megin við stýrisvélarhús, einnig til notkunar fyrir bómur í afturmastri, ef með þarf. Þessi vinda er bæði rafknúin og handknúin. Er rafmótor hennar í þéttlokuðum kassa uppi á bátaþilfari. Vindan hefir eina víratromlu og tvo einfalda koppa. Lýsisbræðsla. — Eimketill. 1. Lýsisbræðslutækjum er komið fyrir í herbergi í þilfarshúsi næst fyrir aftan togvindu-vélahús. Er þar komið fyrir þrem bræðslukörum, kæligeymi og skilvindu, einnig lifrarkassa fremst sb. megin. Inn- gangur í húsið er frá sb. hlið. Hús þetta er þétt smíðaður kassi, þannig að ekkert getur lekið frá honum. Þarna er einnig komið fyrir lýsisdælum, röraleiðslum til lýsisgeyma, hvort heldur er fyrir lýsiskvoðu eða lýsi. 2. Eimkatli fyrir lifrarbræðslu og fiskimjölsvéiar er komið fyrir í þilfarshúsi sb. megin fyrir framan vélaruppgang, en bb. megin við ketilinn liggja púst- rör frá vélarrúmi upp í reykháf. Ketill þessi er olíu- kyntur. Netageymsla og áhaldageymsla. Hvalbakur. 1. netalest er svo sem áður er getið fyrir framan fisklest undir þilfari. Einnig er neta- og áhalda- geymsla undir hvalbak á þilfari. Hvalbakurinn er lokaður, en inngangurinn í hann aftan frá. Beggja megin til hliðar og fyrir framan eru geymslur, en niðurgangur til netalestar sb. meg- in undir miðjum hvalbak. 2. Ofan á hvalbak er rekkverk allf í kring, nema fremst, þar eru plötur á ca. 2 m. lengd. Landfesta- kefum er komið fyrir ofan á og í þessa plötu, en festipollar eru aftar á hvalbaknum. Tvö stk. víra- rúllur eru aftast á miðjum hvalbaknum. 164 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.