Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Side 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1944, Side 26
Sjómannadagurinn á Patreksfirði 1944. Sjómannadagsins var minnzt hér á Patreksfirði með langri dagskrá, og fór hann hið bezta fram. Dagurinn hófst með því, að klukkan 8,30 f. ,h. voru fánar dregnir að hún á fánastöngum þorpsins, og hafði aldrei annar eins fjöldi fána sést hér við hún í einu. Kíukkan 10.30 var messa í Eyrarkirkju. Sóknar- presturinn, séra Einar Sturlaugsson, messaði, og var fjölmenni sjó- og landmanna. Því miður voru báðir botnvörpungarnir, Gylfi og Vörður, fjarver- andi, annar að veiðum en hinn í Englandsferð. Klukkan 13 hófst skrúðganga sjómanna frá barnaskólanum, og var gengið um þorpið og niður á íþróttavöll. Var þar saman komið mikið f jölmenni. Þar flutti Friðþjófur Ó. Jóhannesson stutt ávarp, en síðan hófst knattspyrnukappleikur á milli sjó- manna og landmanna, og var keppt um silfurbikar, sem vélbátaformenn höfðu gefið Sjómenn höfðu sigrað tvö undanfarin ár, en í þetta skipti sigruðu landmenn með 3 mörkum gegn 0, eftir fjörugan ogr drengilegan leik. Því næst var reiptog milli liðs af togaranum Verði (þeir sem heima voru frá Eng- landssiglingu) og vélbátamanna. Varð harður og skemmtilegur leikur, sem endaði með jafntefli. Þá var kaffihlé til klukkan 4,30. Þá hófst kappróður á tveim bátum, og höfðu 6 sveitir gefið sig fram til þátttöku. Ein sveitin, Út- víknamenn, gat því miður ekki mætt vegna brims hjá þeim, en í þeirra stað buðust nokkrir piltar úr skátafélaginu hér, allir 16 ára að aldri, að mynda sveit og keppa. — Þau óvæntu úrslit urðu, að yngsti flokkurinn, skátadrengirnir, unnu glæsilega, með 4 sek. yfir næsta lið, og þar að auki einróma dæmdur fallegasti róðurinn. Keppt var um silfurbikar, er Verzlun Ó. Jóhannesson h.f. hafði gefið, og höfðu áður unnið hann lið frá b/v. „Gylfa“ og lið frá vél- bátum. Um kvöldið klukkan 19 hófst svo borðhald í sam- komuhúsinu „Skjaldborg", og var þar saman kom- inn mikill fjöldi gesta. Tveir botnvörpungar komu hér þennan dag, annar frá Reykjavík, hinn frá Fær- eyjum, og var allfjölmennt frá þeim báðum í hóf- inu, og létu þeir hið bezta yfir þeim móttökum, sem þeir höfðu fengið, þar sem þeir komu báðir óvænt, en fengu strax boð um að mæta sem flestir. Undir borðum var skemmt með ræðum, upplestri kvæða og söng, og að lokum var stiginn dans fram eftir nóttu, og skemmti fólk sér hið bezta. Veður var all-gott um daginn, en nokkuð hvasst. Fjölmenni var viðstatt alla dagskrárliði, þar á meðal margt manna úr nærliggjandi sveitum. Var það ein- róma álit allra, að dagurinn hefði verið hinn ánægju- legasti, sem vera bar, þar sem hér var um hátíðis- dag vinsælustu stéttarinnar í þjóðfélaginu að ræða. G. P. Einar Sfeíánsson skipstjóri sextugur Það leikur ekki á tveim tungum, að það sem af er tuttugustu öldinni er eitt merkilegasta tímabilið í sögu íslands byggðar. Það verður í annálum ókom- inna alda sennilega kallað viðreisnartímabilið eða einhverju öðru enn glæsilegra nafni. Margt hefir að vísu verið merkilegt um hið fyrra lýðveldistímabil, en séð af sjónarhóli nútímamanns hefir ærið mörgu verið áfátt, svo að manni kemur nálega ósjálfrátt í hug máltækið: „fjarlægðin gerir fjöllin blá.“ En „okkar“ tímabil verður ekki síður sögulegt. Og sögumennirnir munu „grafa upp“ úr annálunum menn og málefni viðreisnartímabilsins og vega allt og meta. Viðreisn sjávarútvegs og siglinga verður þeim óefað hugleikið rannsóknarefni; því um ann- að eins Grettistak finna þeir hvergi áður skrifað á spjöld sögunnar. Þá verður margra mætra manna að minnast, og orð skáldsins: „Feður lands á sætrjám svámu .... o. s. frv.“ verða endurvakin. Margir þeirra manna, sem segja má um, að hafi staðið í fremstu víglínu fyrstu áratugi þesarar ald- ar, eru nú sem óðast að hverfa af starfssviðinu. Einn þessara manna er Einar Stefánsson skipstjóri. Hann varð að láta af störfum fyrir tæpum tveimur árum vegna vanheilsu, og er nú sestur í helgan stein sem kallað er. Einar verður sextugur þann 9. júlí i sumar. Efast eg ekki um, að þeir verða margir meðal sjómanna, sem senda honum hlýjar kveðjur á þesum tímamótum. Einar Stefánsson var fullan aldarfjórðung happasæll skipstjóri á skipum Eim- skipafélags íslands við góðan orðstír og virðingu hinna mörgu samstarfsmanna. Sjálfur á ég margar góðar endurminningar frá 15 ára samstarfsárum okkar Einars. Einar var fyrst og fremst sjómaður, — glöggur, þrekmikill og ósérhlífinn á meðan kraftar entust. Þess vegna varð hann happasæll skipstjóri og öðr- um á margan hátt til fyrirmyndar. Honum ber því virðulegur sess í annálum íslenzkrar sjómanna- stéttar. 178 Hallgr. Jónsson. VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.