Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Síða 4
Svo hagar til, hægt að fyrirskipa siglingu eftir
tiltekinni boglínu að staðnum og annarri frá
honum.
Það liggur í augum uppi, að sendistöðvarnar
verða að starfa allan sólarhringinn, og því mun
margur spyrja, hvort þær muni ekki valda trufl-
unum á hlustunarskilyrðum við aðrar útvarps-
sendingar. Ótti við það mun þó vera ástæðu-
laus, bæði hvað snertir „Radar“ og „Decca“.
„Decca“-stöðvarnar senda á langbylgjum, 3000
metrum og þar yfir, en „Radar“ á svo stuttum
bylgjum, að hvorugt mun heyrast í venjulegum
útvarpsviðtæk jum.
Ekki eru enn fyrir hendi glöggar upplýsing-
ar um verð þessara tækja. Sennilega verða
„Decca“-viðtækin annaðhvort leigð skipum með
svipuðu fyrirkomulagi og talstöðvar Landssím-
ans eru nú leigðar bátum, eða skipin kaupa tæk-
in og greiða visst gjald á ári á sama hátt og
fyrir útvarpsviðtæki. Hvorug leiðin ætti þó
að verða notendum tilfinnanlega kostnaðar-
söm, þar sem um svo nytsaman hlut er að
ræða, sem án efa verður innan fárra ára kom-
inn á markaði í fjöldaframleiðslu. „Radar“-tæk-
in verða að vonum allmiklu dýrari, þar eð þar
þarf bæði sendi- og viðtæki. Verð þeirra er nú
áætlað frá 30—70 þúsund krónur fyrst í stað,
eftir stærð tækjanna.
Mikill áhugi er þegar vakinn hjá siglingaþjóð-
um heimsins um öflun þessara tækja, og þá
fyrst og fremst um samvinnu við að reisa sendi-
stöðvar með hæfilegu millibili meðfram strönd-
um samlægi'a landa. Nokkur lönd liafa einnig
gert ráðstafanir til að fá sér hreyfanlegar sam-
stæður sendistöðva til notkunar við sjómæling-
ar, því aðferðin er svo nákvæm, að hún tekur
langt fram öllum áður þekktum aðferðum við
staðarákvarðanir á sjó. Af sömu ástæðu er álit-
ið, að víða þurfi að endurskoða áður gerðar mæl-
ingár og sjókort, svo að kortin samsvari hin-
um nákvæmu staðarákvörðunum þeirra, sem
þau eiga að nota. Eiga þar allar siglingaþjóðir
mikið verkefni fyrir höndum.
Hvað oss Islendinga snertir, munu stjórnar-
völd landsins og ti'únaðarmenn þeirra að sjálf-
sögðu fylgjast eftir föngum með framvindu
þessara mála. Ekki verður enn sagt um það með
vissu, hve mikið þurfi að reisa af sendistöðv-
um hér á landi eða hve fljótt því verði komið í
framkvæmd. En sé þess gætt, að meðan stóð á
fyrstu prófun „Decca“-tækjanna, voru notaðar
aðeins 2 kw. sendistöðvar og að árangurinn var
mjög góður í allt að 550 sjómílna fjarlægð, má
telja líklegt, að komizt verði af með eina sam-
stæðu fyrir allt landið, þ. e. eina aðalstöð og 3
aukastöðvar.
Um það, að hve miklu leyti þessi nýja tækni
muni á komandi tímum útrýma eldri tækjum og
6B
aðferðum við siglingar í lofti og á legi, verður
engu spáð að svo stöddu. Hitt liggur í augum
uppi, að reynist „Decca“-aðferðin svo sem
fræðimenn telja, verður hún að sjálfsögðu mest
notuð í framtíðinni, bæði vegna þess, hve að-
ferðin er auðveld, og fyrst og fremst vegna
þess, hve nákvæm hún er, þar eð áttavitinn
kemur þar ekki til greina og veður eða hreyf-
ingar skipsins eða flugvélarinnar hafa þar engin
áhrif, gagnstætt því, sem er, þegar um radíó-
miðanir er að ræða, sem teknar eru frá skipi
eða flugvél. Ekki verður heldur hægt að svo
stöddu að svara hér ýmsum nánar tilteknum
spurningum, sem eðlilegt er, að vakni hjá mönn-
um við tilkomu þessara nýju tækja. Aðalatrið-
ið er, að hér eru komin fram ný og áður óþekkt
siglingatæki, sem munu gjörbreyta til batnaðar
aðferðum og öryggi þeirra, sem siglingar hafa
með höndum á komandi tímum.
(Að mestu þýtt og samandregið úr Berl. Tid.
og uppl. frá Decca Record Comp. Ltd.)
VEÐU RFREGIMI R
Gagnlegar eru veðurfregnir og þá sérstaklega
veðurspáin, ef byggt er á traustum grunni, enda
munu margir festa sér hana í minni með það
fyrir augum að athuga hvort hún er rétt eða
getur staðizt í ljósi staðreyndanna. Sjómenn-
irnir veita veðurspánni sérstaka eftirtekt, og er
það að vonum, þar sem starf þeirra er nátengt
öllu veðurfari. Starf veðurspámanna er mjög
vanþakklátt og sjaldan metið eins og skyldi.
Þó munu margir viðurkenna það, sem vel er
gert, í því eins og öðru.
Þessar fáu línur eru skrifaðar til þess að fara
þess á leit við veðurstofuna, að hún sendi út
með veðurfregnunum kvölds og morgna, vind-
hraða og stefnu, miðað við þá hentugustu
staði, sem til næst, t. d. Reykjanes, Vestmanna-
eyjar, Portland, Hornafjörð, Papey, Langanes
(Skálar), Grímsey, Horn, Látra, Snæfellsnes og
Reykjavík.
Það væri mikils virði fyrir okkur sjómenn að
fá tvisvar á dag ýtarlegt veðuryfirlit frá einu
eða tveimur útnesjum í hverjum landsfjórð-
ungi. Ennfremur væri nauðsynlegt að fá fregn-
ir frá skipum á hafi úti, jafnvel þótt þær væru
ekki birtar nema einu sinni á dag.
Slík fréttaskeyti ættu ekki að kosta annað
en örlitla fyrirhöfn viðkomandi aðila.
Að svo mæltu þakka ég starfsmönnum veður-
stofunnar fyrir það, sem þeir hafa vel gert, og
óska þess að aðstaða þeirra megi stórbatna á
næstunni, svo að öryggi veðurfregna geti auk-
izt. Vænti ég þess, að þeir sjái sér fært að
verða við ofanritaðri beiðni. ÓL Magnússon.
V í K l N □ u R