Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 14
gæti orðið prýðileg vara. Það er ekki fátítt yfir síldartímann, að eyjan sé umkringd af skipum, enda er flotinn oft þar lengst af veiðitímabilinu. m ' 1 Mjög mikill bagi er eyjarbúum að því að ekki skuli vera þar smávélaverkstæði, og oft hafa þeir tapað miklu vegna vélabilana. Það hefur líka komið í ljós, að sérstakiega heppilegt væri fyrir fiskibáta að þar væri hægt að framkvæma smáaðgerðir, þvi að oft hafa smábilanir orsakað mikið afla- og veiðarfæra- tjón hjá róðrarbátum, sem orðið hafa að fara í land frá ódreginni línu vegna smábilana. Við bryggju í Grímsey. Þetta hafa margir komið auga á, en lítið útlit er fyrir að það verði bætt að svo stöddu. Samgöngur við land hafa lengi verið erfiðar og stopular fyrir Grímseyinga, einkum að vetr- arlagi, og oft svo að útlit hefur verið fyrir mat- ar- og eldsneytisskort. Þó hefur það ekki komið fyrir á seinni árum. Enda ég svo þetta skrif með von um að Grímsey eigi bjarta framtíð, eins og aðrir byggilegir staðir á landinu. Fjólmundur Karlsson. Sjómannafélags ísfir'Singa 5. febr. 1941. Lag: I dag skein sól. í sátt viS storm og brimsúgsbrag vió lítum yfir WSinn dag. Þeir kunna ennþá áralag, sem þreyta afl vifi Ægi gamla og betur lét að berja en hamla. I sjómanns barmi hugur hlær, er svignar rá og rýkur sœr. Hvar stœSi annars okkar bœr, ef sœkti enginn út á mifiin? — Menn líta um öxl vifi lokuS hliSin. Þó brimi yfir bragna spor og dragi úr sumum dáfi og þor, þá svigna hvergi samtók vor, sem fœrin treystu í fjórSung aldar. — Nei, þá má brœöur, blása kaldar. ViS syngjum engu og engum lof, en blessum sól og byljarof, þaS verSur ýmist van eSa’ of ef nauSbeitt er á loftsins leiSum. — En þúsundfaldar þakkir greiSum. HvaS tákna þessi tímamót? — Einn aldarfjórSúngs óldubrjót, sem heimtar ennþá endurbót, ef ná skal, sjómenn, settu marki, því mórg er viSsjá hafs í harki. ViS skulum allir stíga á stokk og strengja heit viS stag og blokk, aS knýja okkar félagsflokk til fleiri og stœrri fremdarverka. Sjá, allt er veitt þeim viljasterka. ViS eigum drauma og óskalönd, þau hillir út viS hafsins rönd. — Þeim býSur framtíS heila hönd, sem undir frelsisfána mætast. — AS lokum allra óskir rœtast. G u S m. E. G eirdal. 7B V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.