Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Side 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Side 28
jón Kr. ísfeld: Konan, $em situr við glnggann Séra Jón Kr. ísfeld, prestur á Bíldudal, hefur áður ritaö í Sfómannablaðiö Víking. Grein sú, sem hér fer á eftir, fjallar um sjómannskonuna og hlutskipti hennar. Á síðasta sjómannadegi flutti séra Jón erindi um þetta efni, ,er vakti mikla athygli. Hafa ýmsir óskað þess að það yrði birt. Höfundur taldi erindið þó of staðbundið til þess að það birtist óbreytt. Hefur hann því fellt úr þvi kafla. Ritstj. Ég minnist þess, að ég sá eitt sinn mynd af ungri konu, sem sat við glugga og horfði út á æst haf. En þar úti sást bátur undir seglum, auðsjáanlega á landsiglingu, umgirtur freyð- andi brimlöðri. Ást, von og þrá, en þó nokkur ótti lýsti sér á ásjónu konunnar. Neðan undir myndinni stóð: Sjómannskona. Og það var einmitt um sjómannskonuna, sem mig langaði til þess að fara nokkrum orðum. Er hún ekki eitt hið dýrmætasta, sem sjómað- urinn á? Er það ekki vegna ástvinar síns á haf- inu, sem hún svo oft starir út um gluggann sinn, út á hafið? En ég hefi fundið til þess, hversu sjaldgæft það er, að sjá minnst á hana í blöðum og tímaritum sjómanna, hvort sem þau hafa verið íslenzk eða erlend. Sjómaðurinn stundar starf sitt á hafinu, konan hans annast heimilið. Samt eigu þau sameiginlega gleði, sameiginlega baráttu. Sjómaðuririn berst oft við æðisgengn- ar bárurnar, en konan berst oft baráttu örvænt- ingarinnar, sem ást hennar krefur hana svo oft um. Hún sér bátinn umgirtan brimlöðri. Ef til vill berst hann þó aldrei að landi. Sjómaðurinn treystir bátnum sínum betur en hún gerir. Þess vegna er oft ótti á ásjónu hennar. Sannleik- urinn er sá, að ótti sjómannskonunnar er oft ástæðulaus. En af hverju stafar hann? Án þess að misbjóða að nokkru leyti sjómannin- ^ um og sjómannslífinu, sem. ég hefi kynnst frá blautu barnsbeini (svo að segja) eru það ekki eintóm fangbrögð við dauðann í brimlöðri, sem sjómaðurinn er sífellt í. En það má segja, að konunum hafi verið talin trú um þetta. Og, því miður, hafa sjómennirnir alltof lítið gert til þess að draga úr þessari trú. Oftast eru það einhverjar svaðilfarir, sem efst eru á baugi, þegar sjómenn segja frá, hvort sem er í ræðu cða riti. Þeir gera þetta ekki í neinum slæmum tilgangi, síður en svo, en með því eru þeir nokk- uð ógætnir gagnvart konunni, sem horfir vonar- augum út á sjóinn. Hversu margar gleðistundir gæfu þeir konunni sinni og sjálfum sér, ef þeir við og við lýstu sem nákvæmast því sem fram fer á hafinu? Nei, þeim finnst það ekki sögu- legt, af því að það skeður svo oft, að þar sé „fegurð, tign og ró“. Svo eru það þeir, sem stundum tala og rita um sjómennina og sjó- mannslífið. Þeir gera sitt til þess að gera sjó- mennina brjóstumkennanlega með orðum, sem nógu falleg eru álitum, en eru innantóm og sögð af reynsluskorti. „Hetjur hafsins“, „hermenn hafsins" o. fl. slík orð hafa oft ekki annað inni að halda en það, að með því að vera sjómaður, sé hann alltaf á ægilegum vígvelli og berjist — berjist óaflátanlega við æðisgenginn óvin. Og svo er þessum orðum látinn fylgja svo mikill sannfæringarkraftur, að hann nær tökum á þeim, sem ekki þekkja sjómannslífið, eins og það í raun og veru er. Og svo koma í kjölfar þessara orða orðin: aumingja sjómennirnir. Sjómenn eru ekki klígjugjarnir, en mörgum þeirra held ég að verði hálf-flökurt við að heyra þau. Nei, sjómennskan er starf — starf, sem oft útheimtir snarræði, dirfskuogfyrstogfremst kunnáttu. Sjómenn þurfa að kunna til sinna starfa, eins og aðrar stéttir þjóðfélagsins. Þeir þurfa að tyinna að taka erfiðleikum. Slíkir eru sannir sjómenn. Þeir eru virðingarverðir fyrir það, að þeir kunna störf sín, að þeir kunna að yfirstíga erfiðleika, að þeir eru snarráðir og þrautgóðir. Það er þetta, sem þarf að gera sjó- mannskonunni ljóst, en ekki sífelt að nöldra um það, að ástvinur hennar sé alltaf að berjast við brimlþður upp á líf og dauða. Það eru næsta lítil kynni, sem sjómannskonunni eru gefin af starfi manns síns með því að sýna henni hvernig hann, kannske einu sinni á ári, heldur um árar- hlumma eða hvernig hann „splæsir“, að ég nú 92 V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.