Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Blaðsíða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Blaðsíða 48
MAGNUS E. SIGURÐSSOIM SKIPSTJORI m inninaai'orc Hann andaðist á Landsspítalanum 2. febrúar síðastliðinn. Magnús heitinn var Vestfirðingur að ætt, fæddur á Suðureyri við Súgandafjörð 12. júlí 1918. Foreldrar hans voru Sigurður Hallbjörns- son skipstjóri og útgerðarmaður og Ólöf Guð- mundsdóttir kona hans. Var Magnús elstur barna þeirra. Magnús hóf snemma sjómennskuna. Sumarið 1923 var hann á reknetaveiðum með föður sín- um á vélbátnum Skírni, þá aðeins 10 ára að aldri, og sumarið eftir á m.b. Hermóði, en Sig- urður hafði þá tekið við skipstjórn á þeim bát. Árið 1927 fluttist Magnús heitinn með for- eldrum sínum að Akranesi, þá á fermingaraldri. Var hann það sumar á síldveiðum við Norður- land með föður sínum, og upp frá því til árs- ins 1934, er hann tók við skipstjórn á m.b. Báru. Var hann þá rétt um tvítugt. Magnúsi fór skipstjórnin vel úr hendi, og minnist ég sér- staklega hinnar stöku reglusemi lians, sem var öðrum til fyrirmyndar. Fyrir fjórum árum kenndi hann sjúkleika, sem varð þess valdandi, að hann varð að hætta við sjóinn. Gerðist hann þá verkstjóri hjá föður sínum og gegndi þeim starfa meðan heilsan leyfði. 1 ti Ijj ■Ef; • 3 Magnús var einn af stofnendum Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Hafþór á Akranesi. Var hann traustur og góður félagi, og þökkum við félagar hans fyrir samstarfið. Árið 1934 kvæntist Magnús eftirlifandi konu sinni, Fanneyju Tómasdóttur, og eignuðust þau fjögur börn, sem öll eru á unga aldri, hið elzta 13 ára en hið yngsta 6 mánaða. Magnús var sér- staklega góður og umhyggjusamur heimilisfað- ir. Hefur því sorgin orðið sár á heimili hans, þar sem hann var kallaður svo skjótlega á brott. En guð læknar allt og einnig sorgar sárin. Blessuð sé minning þín. Þökk fyrir samstarfið. B. G. Þjóðverjinn glotti og sneri sér frá. Bragðið liafði heppnast. En áhættan hafði verið mikil, því enginn hinna frönsku verkamanna sem viðstaddir voru, gat komizt hjá að heyra hve frönsku-framburður hani var hræðilegur. En smátt og smátt komst hann sér til hug- arhægðar að raun um að engir svikarar höfðu verið meðal vinnufélaga hans. Þeir strituðu í þrettán langar klukkustundir sam- fleytt. Þegar vinnan loks tók enda hafði Cain fengið hroðalegan bakverk, og húðin á höndum hans var tætt í sundur. En hans verki var ekki enn lokið. Það leið að kvöldi. Kapteinninn beið unz almyrkt var orðið. Hann reikaði um úti og skoðaði sig um. Það var hættulegt, því sérstakt útgöngubann gilti á eynni. En frá ieyniþjónustunni hafði honum borizt heimiiisíang manns nokkurs. Þann mann varð hann að finna. Loksins tókst honum það. Það var læknir bæjarins, franskur föðurlandsvinur, y sem mikið hafði starfað fyrir Bandamenn, og var fús að halda því starfi áfram. Lækninum var kunnugt um allar ráðstafanir Þjóðverja á eynni. Sá hlutur var ekki til, sem hann vissi ekki skil á. Þegar Cain fór frá hon- um, skömmu eftir miðnætti, haf<5i verk hans heppnast vonum framar. Hann læddist niður til strandar, blés upp gúmmíbátinn og reri frá landi, þangað sem turn kaf- bátsins grillti í haffletinum. Fimm mínútum seinna var Refsinornin á heimleið. Þrem dögum eftir þetta lét löng runa af tundur- spillum, togurum og landgöngubátum úr enskri höfn, og héldu til Sark. Tundurduflasvæðunum kringum eyna var nú nákvæmlega lýst á sjókortunum, og vandalítið var fyrir flotann að komast gegnum þau, meðan flug- herinn hélt Þjóðverjum í skefjum. Árásin heppnaðist fullkomlega. Það var ekki ætlunin að „hreinsa" eyna, en virkjunum og kafbátahöfnunum var gereytt, kafbátunum sökkt, og tóku Englendir.gar yfir 100 manns til fanga, þar á meðal þýzka höfuðs- manninn, og fjölda franskra Kvislinga. Þannig var flotahöfnin Sark eyðilögð fyrir Þjóðverj- um. nz V í K I N □ U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.