Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Blaðsíða 52

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Blaðsíða 52
lí í — VaknaSu, maður! Þíi átt eftir að talca svefn- meðalið. Sigfús Sigfússon frá Eyv^ndará var einhver eljur mesti og merkasti þjóðsagnasafnari okkar. Eft- ir hann liggur geysimikið safn hvers konar alþýðu- fræða. Var útgáfa þess hafin fyrir allmörgum árum, en féll niður um skeið. Nú hefur Víkingsútgáfan keypt útgáfuréttinn og eru þegar komin frá hennar hálfu þrjú bindi, V., VI. og VII. bindi. Sjötta bindi safns þessa hefur að geyma svonefndar náttúrusögur. Er þar allmikið sagt frá lagardýrwm margs konar, og kennir í þeim þætti ýmissa grasa, sumra næsta furðulegra. Hér á eftir verður birt lítið eitt af því, sem Sigfús Sigfússon segir um seli. Koma þar glögglega fram til- raunir alþýðu til skýringa á margvíslegum fyrirbærum náttúrunnar. ★ Sagt er, að selir séu hefnigjarnir, og ærið eru þeir grimmir og gráðugir, og er trú manna, að þeir sæki mjög á óléttar konur, einkum ef þær ganga með svein- börnum, og það sjá þeir að sögn. — Þeir eru vitrir og afar forvitnir, einkum ef þeir sjá rauðan lit á bát, þá nálægjast þeir. Margar sagnir eru af grimmd þeirra og slægð. ★ Einu sinni var ólétt stúlka að þvo við sjó. Sér hún þá mjög stóran sel þar nærri. Hann syndir í land og hleyp- ur uppréttur á hreifunum að henni, því að hann hafði hreifafylli. Hún hefur undan á rás eftir sandinum. En svo var hann fljótur, að hann var alltaf á hælum hennar og smáhrifsaði til hennar með fi'amhreifunum. Hún þykist sjá, að hún hefur eigi undan honum á sand- inum og beygir af stefnu upp á gróna jörð. En þar fór selsa að síga larður, svo að stúlkan slapp heim og sýndi þar rifin föt sín máli sínu til sönnunar. Kvað hún hann hafa verið engu líkari en manni, þegar hann hljóp á afturhreifunum. ★ Á FRÍVA Sagt er, að selir sækist svo gráðugt eftir sveinbörn- um, að þeir hlaupi á land, þegar kona, sem gengur með sveinbarni, kemur svo nærri, að hún verður í sjónhæfi þeirra, og ráðist á konuna. Bóndi einn á Mýrum í Skaftafellssýslu hafði þann sið, að ginna seli á land með konu sinni til að drepa þá. Einu sinni fer hann til sævar og kallaði hátt að vana: Kópur, kópur, kom þú hér. Kona mín er á gangi, með sveinbarn í fangi!“ eða Kona mín liggur á sandi. Hún ætlar að ala þér fríðan svein á landi.“ í sömu andrá kom stór selur á land og skyggndist um. En bóndi drap hann. Hafði bóndi aldrei þurft annað en kalla svo, því að selir skilja mannamál. ★ Bóndi í næsta hreppi, Suðui'sveitinni, hafði líkan sið, að kalla með sér konu sína til sævar, þegar hún var ólétt, og sýna hana selunum og drepa þá svo hrönnum saman. „En kennir hver sín, þótt klækjóttur sé“. Selsar skildu bragð hans og hugðu á hefndir, svo að einu sinni, er konan fór með bónda, vissu þau eigi fyrri til en fjöidi seia umkringdi þau af ýmsum teg- undum, stórir og smáir, og helrifu konuna. En bóndi komst nauðulega undan. ★ Bóndi nokkur var á róðri heim til'sín með konu sína ólétta í skutnum. Allt í einu óð uppi stór selur og fór að ásækja konuna. Konan reyndi að verjast, en bóndi reri lífróður, unz hann var nærri kominn að landi. En þá kippti selurinn konunni útbyrðis. Sá bóndi í gegn- um glæran sjóinn, hvar selsi reif hana á hol og bruddi fóstrið. Varð bóndi aldrei samur maður. ★ Ég er kominn að raun um það, að hattarnir eru orsök þess, hvað hárið gránar fljótt á okkur karlmönn- unum. — Hattarnir? — Hvaða vitleysa er þetta. — Ekki hattamir okkar, heldur hattarnir sem sitja á kollinum á kvenfólkinu. — Geturðu verið án hundrað króna til morguns? — Ég ei' víst neyddur til þess. Eg á ekki túskilding með gati. ★ Nikulás frændi: Hvers vegna ertu svona þögull, Grímsi litli. Grímsi (sex ára) : Mamma ætlar að gefa mér krónu ef ég minnist ekkert á skallann á þér og rauða brenni- vínsnefið. ★ 116 V í K I N G U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.