Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 58

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Page 58
útgerðarherramir fengu meiri gróða í lúkurnar en þeir höfðu búizt við, spurðu þeir ekkert frekar um hans ágóðahluta. Nei, allt í lagi, og hann var álitinn maður að meiri eftir þennan leik. Svo hitti ég hann einn góðan veðurdag á krá, þar sem skipstjórar og stýrimenn af skipum félagsins voru vanir af svala þorsta sinum. Hann sezt hjá mér og tekur mig tali, við fáum okkur gias saman og hann segir mér hitt og annað af ævintýrum sínum í skóg- unum norður frá, og að síðustu berst talið að núver- andi starfsemi hans, og ég spyr hann svona rétt laus- lega, hvort hann búist nú ekki bráðum við að ger.a eina brelluna enn. En góði herra, nú megið þér treysta því, að þetta er uppstökkur afglapi, og var litið um gefið að heyra minnst á þessa hluti. Hann þýtur því á fæt- og lemur í borðið og spyr, hvort ég sé að gera gys að honum. Ég tek öllu með ískaldri ró, panta einn svart- an til, og segi honum, að hann skuli bara tyila sér á afturendann. Mér hafi einmitt virzt síðasta brellan hans fjandi sniðug, og hann hljóti að vera skrattans mikill karl í buxunum sínum að líðast svona verkn- aður. Þá varð hann spakur aftur, settist hjá mér og sagði-, að líklegast væri ég rétti maðurinn. Hann vildi því koma með ofurlitla uppástungu. Ég vildi gjarn- an heyra, hvað hann væri nú að brugga, og lét því allt, gott heita, sem hann sagði. Fyrst ræddi hann um það, að nauðsynlegt væri að græða peninga, svo hægt væri að eiga góða daga, og það stæði reyndar alveg á sama á hvern hátt menn græddu. Raunar væru-allir menn jafnmiklir kiækjarefir í eðlinu, aðalatriðið væri að vera nógu kænn fyrir sjálfan sig. Segja mætti, að þá færi hann skynsamlega að ef honum tækist að braska eitthvað fyrir sjálfan sig og græða á því, án þes að útg.fél. hlyti eyri af hagnaðinum. Já, en hvernig mundir þú helzt fara að því? spurði ég. Ég mundi losa mig við skipstjórann í skollans nafni og láta svo sem skútan væri mín eign og aldrei koma með hana aftur til baka. Nú, þetta ætlar þú að gera, sagði ég og barði hann beint framan í svarta smettið, svo hann datt aft- ur á bak á gólfið, og þegar hann brölti á fætur aftur og ætlaði að leggja í mig, gaf ég honum einn vel útilát- inn Helsingeyrarskalla, svo að hann sneri skutnum heint upp í loftið". „Það var skrattans laglega gert, Óli! Varstu svona vel að manni á þínum duggarabandsárum?“ „Já, skallað gat ég vel á við flesta aðra á þeim ár- um, því má herrann treysta“, hélt gestgjafi minn á- fram, um leið og hátíðlegur drýgindasvipur færðist yfir veðurtekið andlitið. „En nú skuluð þér bara heyra framhaldið". „Þegar ég var búinp að skalla durtinn í gólfið tók ég strikið beint á skrifstofu útgerðarinnar, náði í einn af skrifurunum, og sagði honum alla söguna rétt eins og hún gekk, og bað liann að skýra forstjórunum frá því, sem Skógarmaðurinn hefði í hyggju. En þar hitti ég þá líka á rétta manninn! Nei, þeir herrar báðu mig ofur kurteislega að fara til fjandans, og sögðu, að útgerðai-félagið hefði engan duglegri sjómann í þjón- ustu sinni en einmitt Skógarmanninn, og ég skyldi bara láta vera að rægja og klaga félaga mína. Já, já, hugs- aði ég,gerið eins og ykkur þóknast og trúið því sem ykkur líkar, en ég trúi því sem mér sýnist. Nú leið þó nokkur tími, Skipið, sem Skógarmaðurinn var á, hafði siglt til einhverra suðurhafna, hlaðið dýru timbri. Þetta var á stormatimanum. Nokkur af skipum félagsins höfðu farizt. Flest voru það gamlir kláfar, hátt vátryggðir. Gamli bókhaldarinn var einmitt að núa saman höndunum og reikna út í huganum hvað félagið græddi á þeim skiptöpum. Ég átti að sigla þennan dag og var staddur á skrifstofunni til þess að taka við ein- hverjum fyrirskipunum. Á meðan ég er að tala við full- trúann kemur maður, sem spyr okkui', hvort við höfum heyrt fréttirnar af Skógarmanninum. Og svo segir hann okkur, að til hafnar sé komið skip, sem bjargað hafi háseta af skipinu þar sem Skógarmaðurinn var stýrimaður. „Nú“, segi ég, „er þá hrappurinn loksins drukkn- aður?“ „Já, svona hér um bil það!“ segir maðurinn. „Nei, ó, nei, Skógarmaðurinn hefur, að sögn hásetans, svikizt að skipstjóranum og tveimur eða þremur hásetum, sem honum fylgdu, og kastað þeim útbyrðis, og nú siglir hann skipinu með aðstoð hins hluta áhafnarinnar, og selur væntanlega allt, bæði skip og skipverja við fyrsta tækifæri, ef hann hefur þá ekki gerzt sjóræningi." Ég hleyp strax niður að höfninni og næ í hásetann, og hann segir mér alla sólarsöguna eins og hún gekk og var. Að því búnu fer ég rakleitt til forstjóranna og spyr þá, hvað þeir hafi í hyggju að gera. Þetta voru hyggnir karlar og reyndir, og vissu því upp á hár, að ef þeir vísuðu málinu til yfirvaldanna, myndi geta liðið bæði dagur og vika, þangað til nokkurt herskip færi út eða að boð kæmust til varðskipanna, sem voru að gæzlu. Þeir spurðu mig því, hvort ég vildi taka málið í mínar hendur. Nú vildi svo til að félgið átti lítið en prýðis gott skip, reglulegan hraðsiglara, sem lá seglbúið. Þetta skip sagði ég þeim að láta mig hafa ásamt vopnum og skot- færum. Sjálfur skyldi ég sjá um áhöfnina, og merki- legt mætti það heita, ef ég hefði ekki fljótlega hendur í hári snáða. Þeir féllust strax á tillögu mina, og næsta ,moi'gun lét ég í haf með tuttugu harðduglega sjómenn á skipinu, allt gamla kunningja frá fyrri ferðum, sem brunnu í skinninu af löngun 'til þess að veiða Svarta skógarmanninn. Að morgni dags nokkru síðar vorrra við staddir und- an Kap Hatteras. Við höfðum siglt . eð ströndum fram og allsstaðar haldið spurnum fyrir u:n skipið en hvergi fengið þær upplýsingar, sem að ha di komu. Síðustu dagarnir höfðu verið stormasamir og við höfðum átt fullt í fangi með að verjast áföllum og höfðum því ekki staðið vörð til að njósna um skipið að staðaldri. Nú hafði storminn lægt, við höfðum uppi flest segl, skipið valt og hjó á kröppum öldunum. Ég stóð í lyftingunni og skimaði út yfir hafið. Fljá mér stóð piltur, sem ég hafði miklar mætur á. Hann var lista-skytta og var einmitt að sýna hásetunum hvernig hann léki sér að því að hæfa alla þá hluti, flöskur, krítarpípur og hvað eina, sem þeir fleygðu útbyrðis. Já einmitt þá kom ég auga á eitthvað út við sjóndeildarhringinn. Ég segi piltunum frá því, og nú komu allir sjónaukar á loft, og við leiddum ýmsar getur að því, hvað þetta gæti ver- ið. Ég ákvað.að breyta stefnunrii lítið eitt til þess að athuga þetta nánar. Hálftíma síðar vorum við allir sannfærðir um, að þetta væri skipsflak, og meira að segja álitu sumir, að þetta væri einmitt skipið, sem 122 V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.