Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Blaðsíða 63

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1946, Blaðsíða 63
Alyktanir 9. fAinyi 5 (Frh.) f7m sófii sjávarafuröa. 9. þing F.F.S.I. lýsir óánægju sinni yfir því að ríkis-í- valdið hefur ekki gefið F.F.S.Í. kost á því að tilnefna mann eða menn til þess að standa að samningum þeim við útlönd, er gerðir hafa verið um sjávarafurðir. Telur þing sambandsins það fjarstæðu, að aðalframleiðend- urnir fái ekkert að segja um þau mál, og virðist mega skoða það sem lítilsvirðingu ríkisvaldsins á sjómanna- stéttinni. Bændum landsins er gefinn óskoraður rétt- ur til að verðsetja sínar afurðir, þó að skapað sé með því ósamræmi í verðlagsákvæðum neyzluvara og aukin dýrtíð í landinu. En sjómaðurinn fær ekki að hafa til- lögurétt um sölu afurða sinna utanlands eða á inn- lendum markaði. Þetta ástand getur ekki ríkt lengur, að dómi F.F.S.Í. og gerir 9. þing F.F.S.I. þær kröfur til ríkisvaldsins að framvegis verði F.F.S.Í. gefinn kostur á að tilnefna mann eða menn í þær nefndir, er fara með samninga- gerðir um sölu sjávarafurða, og annara þeirra mála, er varða sjómannastéttina. Friðun Faxaflóa. 9. þing F.F.S.Í. skorar á ríkisstjórnina og Alþingi að hlutast til um að Faxaflói innan beinnar línu frá Garðskagavita að Malarrifsvita, verði fi'iðaður fyrir botnvörpu- og dragnótaveiðum og öðrum tilsvarandi veiðarfærum. Að séð verði fyrir fullkominni gæzlu á hinu friðaða svæði og vísindalegar rannsóknir verði framkvæmdar á því sviði, í samráði við fiskifræðinga, svo að gengið verði úr skugga um, hvert gildi friðun- in hefur fyrir uppeldi nytjafiska. Ennfremur skorar 9. þing F.F.S.Í. á ríkisstjórn og Alþingi að hlutast til um, að rannsakað verði hvort ekki séu hér möguleikar fyrir hendi um ræktun og uppeldi Jiytjafiska, hliðstæða því, sem fram hefur farið að undanförnu í' Skotlándi. 9. þing F.F.S.Í. álítur nauðsynlegt að Faxaflói verði friðaður nú þegar, innan landhelgi, fyrir dragnót og hverskonar botnsköfu. Ennfremur önnur þau svæði innan landhelgi, verði friðuð um ákveðið árabil, er sérfræðingar okkar álíta beztu uppeldissvæði fyrir ung- viði nytjafiska vorra. Þingsálylctun um sameiginlegan borgararétt á Norðurlöndum. Mótmseli, 9. þing F.F.S.Í. mótmæir því eindregið, að ákvæði það um sameiginlegan borgararétt, sem staðið hefur í sambandslagasáttmálanum við Dani, verði látið gilda framvegis, og skorar á hið háa Alþingi og ríkisstjórn að fela samninganefndinni að fella það burtu. Þingið lýsir því sem ákveðinni skoðun sinni, að íslenzk land- helgi eigi að vera fyrir íslendinga einvörðungu. Matreiðsluslcóli fyrir sjómenn. Áskorun um að stofnaður vei'ði fullkominn mat- reiðsluskóli fyrir sjómenn við hinn nýja Sjómanná- skóla. Tillögur Henrys Hálfdánarsonar, sem fyrir lágu voi'U samþykktar með nokkrum orðbreytingum, í þessari end- anlegu mynd: Við hinn nýja Sjómannaskóla verði stofnaður full- kominn matreiðsluskóli. Skipaður verði skólabryti, er hafi þar með höndum kennslu í sambandi við heimavist- ir nemenda. Aðrir kennarar í þessum fræðum verði skipaðir eftir því sem þurfa þykir. Að matreiðslunemendum við skólann, verði fyrir ut- an allan algengan matartilbúning; kennd næringarefna- fræði, hagnýting matvæla, færzla búreikninga og leið- beiningar um haganleg innkaup á hinum ýmsu nauð- synjum. Einnig verði sárstök áherzla lögð á þrifalega umgengni í búri og eldhúsi og snyrtimennsku við framleiðslu. Radtoskóli Islands. Nefndin tók til athugunar tillögur Henrys Hálfdán- arsonar um Radíóskóla íslands. Tillögurnar samþykkt- ar með nokkrum breytingum, í svohljóðandi mynd: 9. þing' F.F.S.Í. ályktar að skora á hæstvirta ríkis- stjórn og Alþingi að stofnaður verði riú þegar og rek- inn af ríkinu, Radíóskóli íslands. Skóla þessum skal ætlaður staður í hinum nýja Sjómannaskóla, eins og ráð hefur verið fyrir gert. Nú þegar skal svo fyrir séð, að minnsta kosti 1 herbergi í skólanum verði innréttað með þeim leiðslum og öðrum útbúnaði er nauðsynlegur er talinn fyrir slíka kennslu og við skólann ráðinn 1 fast- ur yfirkennari. Sé hann loftskeytafræðingui' að mennt- un eða hafi lokið fyrsta flokks loftskeytaprófi, sam- kvæmt alþjóðalögum og starfað sem loftskeytamaður, að minnsta kosti í 3 ár við viðurkennda loftskeytastöð. Þessi fasti yfirkennari skal jafnrfamt verða skólastjóri skólans. Aðrir kennarar við Radíóskólann skulu ráðnir eftir þröfum, enda hafi þeir til þess fulla reynslu og kunnáttu. Fastir kennarar við Sjómannaskólann skulu eftir því sem við verður komið, kenna í ýmsum sérgreinum skólans, sem sérmenntun þeirra nær til. Pi'ófskilyi'ði loftskeytamanna úr Radíóskólanum séu hin sömu og krafizt er að alþjóða lögum, sem ísland er aðili að. Námstíminn sé miðaður við, að tveggja vetra nám þurfi til að standast próf sem annars flokks loftskeyta- maður,fcen þriggja vetra nám til að útskrifast sem 1. fl. loftskeytamaður, enda verði kennslunni þannig hagað, að nemendur öðlist að námi loknu fullkomin útvarps- virkjáréttindi. Til að fá inntöku í skólann skulu vænt- anlegir nemendur hafa lokið hinu almenna gagnfræða- prófi eða hliðstæðri menntun, eða uppfylla önnur þau skilyrði, sem krafizt er við íslenzka framhaldsskóla. Radíóþjónusta. 9. þing F.F.S.I. beinir þeirri eindregnu áskorun til hæstvirtrar ríkisstjórnar, að hún beiti sér fyrir því, að hraðað verði sem mest framkvæmdum varðandi radíóþjónustuna og hlustvörzluna kringum strendur landsins, á þeim grundvelli er settur hefur verið fram af F.F.S.I., Slysavarnarfélagi íslands ög sem milli- þinganefnd Alþingis, er falið var að semja heildai'kei'fi V I K I N □ y R 127
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.