Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 20
„Svei mér þá, Jósef“, segir kokkurinn, sem hafði glápt lengi á eina þeirra, „þarna er lögu- legur kvenmaður — og fjörleg. Sjáðu bara!“ Hann kyssti á óhreina krumluna á sér — og það er meira en ég hefði gert, hefði það verið krumlan á mér — og veifaði henni og stúlkan snéri sér undan og hristi höfuðið. „Svona, þetta er nóg“, segir Jósef afar gremjulega. „Þetta er stúlkan mín; Emily mín“. E—he? „segir kokkurinn. „Nú, hvernig átti ég að vita það? Þar að auki, þú ætlar að hætta við hana“. Jósef svaraði ekki. Hann starði á Emily, og því lengur sem hann starði, því fallegri varð hún. Hún var sannarlega óvenju falleg stúlka, sem fleirum en kokknum varð starsýnt á. „Hvaða náungi er það, sem stendur við hlið- ina á henni?“ segir kokkurinn. „Það er einn af leigjendum móður hennar", segir Jósef, sem virtist í afar slæmu skapi. „Ég hefði gaman af að vita, hvaða leyfi hann hefur til að koma hér og bjóða mig velkominn heim. Ég kæri mig ekkert um hann“. „Ef til vill lízt honum vel á hana“, segir kokkurinn. „Það get ég mætavel skilið“. „Ég skal fleygja honum í sjóinn ef hann gætir sín ekki“, segir Jósef rauður í framan af reiði. Hann veifaði til Emily, sem ekki var að horfa í þá átt í svipinn, en leigjandinn veifaði til hans kæruleysislega og talaði við Emily, og svo veifuðu þau bæði til Bills gamla, sem studdi sig við hækjurnar aftar á þilfarinu. Þegar búið var að leggja skipinu að bryggju, var orðið dimmt, og Bill var ekki viss um, hvort hann ætti að fara með kokkinn heim strax eða bíða næsta dags. Að lokum ákvað hann að ljúka því af, fékk sér vagn og svo var lagt af stað. Bert Simmons, leigjandinn, varð að sitja hjá ökumanninum, og Bill tók svo mikið pláss með hækjunum, að Emily sá þann kost vænstan, að sitja á hnjánum á Jósef, og um það er þau komu að húsinu, var honum orðið ljóst hversu hrap- allega honum hafði skjátlast. „Haltu þér saman um þennan draum, þangað til ég hef ákveðið mig“, segir hann við kokk- inn, meðan Bill og ökumaðurinn rifust um far- gjaldið. „Bill ætlar að tala fyrstur", hvíslar kokk- urinn. Emily og leigjandinn voru farin inn, og Jósef stóð þarna sem á glóðum, meðan ökúmaðurinn spurði Bill vinsamlegast, hversvegna hann hefði ekki borgað tíu aurum meira fyrir andlitið á sér, og Bill eyddi tímanum í að reyna að hugsa upp eitthvað, sem gæti sært tilfinningar öku- mannsins. Svo tók hann í handlegginn á Bill og sagði honum að minnast ekki á drauminn því að hann ætlaði að hætta á þetta. „Bull og vitleysa,“ segir Bill. „Ég ætla að segja Emily frá honum. Það er skylda mín. Til hvers er að giftast og verða svo drepinn?" Hann hökti inn við hækjurar áður en Jósef fengi sagt fleira. Það var matur og bjór á borð- um, og þegar hann hafði frætt systur sína um fótbrotið, settust þau öll að kvöldverði. Bert Simmons sat á aðra hönd Emily, Jósef á hina, og kokkurinn gat ekki annað en vor- kennt henni, er hann sá, að stundum voru báðar hendur hennar kreistar samtímis undir borð- inu svo hún gat varla laumað upp í sig munn- bita. Bill kveikti sér í pípu eftir matinn, fékk sér aðra ölkrús, og sagði síðan frá því, hvernig kokkinn hafði dreymt fyrir slysinu þremur dög- um áður en það skeði. Þau trúðu því varla fyrst í stað, en þegar hann hélt áfram og sagði þeim frá öllu hinu, sem kokkinn hafði dreymt fyrir, mjökuðu þau sér öll sem fjærst kokknum og sátu og störðu á hann opnum munnum. „0g þetta er ekki það versta“, segir Bill. „Þetta er nóg í kvöld, Bill“! segir Jósef, sem sat og starði á Bert Simmons, eins og hann ætlaði að eta hann með augunum. „Auk þess álít ég þetta bara tilviljun. Þegar kokkur sagði þér drauminn varðst þú taugaóstyrkur og datzt þessvegna“. „Taugaóstyrkur, ég“! segir Bill; og svo sagði hann frá draumnum, sem hann hefði heyrt, þegar hann lá í rekkju sinni fótbrotinn. Systir Bills æpti upp yfir sig, og Emily, sem sat við hliðina á Jósef, stóð á fætur með hrolli og settist við hliðina á Bert og hélt sér í hand- legginn á honum. „Þetta er eintóm vitleysa“! segir Jósef upp- vægur. „Og þó svo væri ekki, myndi sönn ást ekki láta það á sig fá. Ég er ekki hræddur“! „Það er ekki hægt að ætlast til þessa af neinni stúlku“, segir Bert Simmons og hristir höfuðið. „Mér kæmi það aldrei til hugar“, segir Emily. „Til hvers er að giftast fyrir eina viku? Lítið á fótinn á frænda — það er mér nóg“! Þau töluðu öll í einu, og Jósef gerði allt hvað hann gat til að sannfæra Emily um, að draum- ar kokksins rættust ekki alltaf, en árangurs- laust. Emily sagðist ekki vilja giftast honum þó hann væri margfaldur milljónamæringur, og móðir hennar og frændi tóku í sama streng — svo ekki sé minnst á Bert Simmons. „Ég ætla upp og sækja gjafirnar frá þér, Jósef“, segir hún; og með það fór hún. 156 V í K I N O U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.