Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 37
hleðslu og affermingu. Skipin þurfa fullkominna aðgerða
við á níu mánaða fresti og jafnan þarf að viðhalda
vélum og geymum. Þá þurfa mismunandi olíutegundir
sérstakrar meðferðar við. Þykka olíu þarf að hita upp
til að hún geti runnið. Hvít olía orsakar meira ryð í
geymunum en svört, svo skipta þarf um farmtegundir
við og við. Eru þessi atriði tekin fram til að sýna hve
mjög vel stjórn skipanna verður að virka.
M annslcapur.
Sjómenn yfirleitt og- þar með taldar áhafnir olíu-
flutningaskipa þurfa meiri umhyggju viö en farmurinn,
sem þeir flytja. Þótt vindlingar séu ódýrir um borð
og nœg tækifæri gefist til sparnaðar, þá hafa mennirnir
engin leikhús, knattspyrnukeppnir eða konur og fjöl-
skyldu til að fara heim til á kvöldin. Mönnunum í
Lundúnum, sem stjórna ferðum olíuskipanna, er þetta
að sjálfsögðu ljóst, enda hafa margir þeirra eytt fjölda
ára í siglingum. Getur það verið ástæðan fyrir því að
skilyrði áhafnanna um borð í olíuflutningaskipum eru
iafngóð því sem bezt gerist hvar sem er í heiminum.
Öll skip, sem nú eru byggð fyrir Shell, bafa einka-
káetu fyrir hvern skipsmann, jafnvel messadrengi,
bjartar og stórar setustofur og beit og köld steypiböð.
Matur er nægur og tilbreyting mikil. Skipin gela verið
í Persíuflóa um 6.000 mílur frá Lundúnum, en þegar
heim kemur fær áhöfnin langt frí. Þetta er vissulega
áhættusamt ábyrgðarstarf, en margir taka það fram
yfir skrifstofustörf og stórborgarlíf. Sé spurt hvort
áhafnir olíuskipanna sýni sömu hreysti og áræði og
fyrirrennarar þeirra, er hægt að sjá lista sem heitir
„Heiðursmerki veitt yfirmönnum og sjómönnum Shell
olíuskipaflotans í heimstyrjöldinni síðari“. Á listanum
eru 560 nöfn.
Fljólandi eign.
Sextíu ár eru liðin síðan Marcus Samuel, meðstjórn-
andi Shell, pantaði fyrsta olíuflutningaskipið fyrir fé-
lagasamsteypuna. Þótt hann væri fljótur að sjá fyrir
möguleikana á því að flytja olíu í heilum förmum, hefir
honum vart dottið í hug að olíuflutningafloti félaganna
mundi vera orðin stærsta skipaútgerð í heimi árið 1950.
Það sem aðallega hefir orsakað þessa öru þróun, er stór-
aukin notkun allra tegunda á fyrri helming aldarinnar.
Þó má einnig þakka það fjölda ágætra skipstjóra,
yfirmanna og sjómanna, sem gert hafa þjónustuna
verðuga, svo og framkvæmdastjórum og tæknilegum
ráðunautum, sem kunnað hafa að meta nýjungarnar
og ekki hefir skort kjark eða framsýni til að ráðast í
framkvæmdir, ef sannfæringin bauð svo við að horfa.
Allt frá því Shell tók fyrsta mótorskipið í olíuflutninga,
en það hét „VULCANUS", hefir félagið unnið braut-
ryðjandastarf við vísindalegar rannsóknir í sambandi
við olíuflutningaskip. Sérstök deild innan félagsins
starfar án afláts að athugunum varðandi umbætur á
vélorku skipa og er þar með talin notkun jafnstraums
við diesel rafvélar og gastúrbínur. Flokkur sérfræðinga,
sem starfa undir stjórn hr. John Lamb, hefir gert árang-
ursríkar tilraunir við notkun ódýrari eldsneytistegunda
í stað venjulegrar diesel-olíu, sem notuð er á diesel
vélar, en það mundi spara skipi með 4.000 hestafla vél
um £7.000 á ári
S* ' 1 • / ^
j omannal joo
ort daginn sem björgunarbáturinn
Oddur V. Gíslason var vígöur.
Sjómenn Islands sýna í verki
sanna hetjulund,
þeir eru þjóöarstofninn sterki
með starfsins þrek í mund,
út í liafsins æstu róti
afreksverkafjöld
s þeir hafa unnið, þó á móti
þmimaði hylgjan köld,
þeir hafa unnið þó & móti
þrumaði bylgjan myrk og köld.
Föngin lieim að feðra ströndum
flytur gifturíkt
fleyið sem af hraustum höndum
hetju dáð er vígt.
Ægir hefir auðinn borið
okkar keeru þjóð,
hún á dug og drengja þorið
að draga gull í sjóð,
liún á dug og drengja þorið
að draga gull úr Ránar-sjóð
Margar dýrar fórnir færir
framgjörn drengja sveit
ættarlandsins arfar kærir
öðlast votan reit,
samtök sterk að stríða á móti
slysum hafi á
xðstan manndóms heiður hljóti
hugsjón styðjið þá,
æðstan manndóms heiður hljóti
hugsjón allir styðjið þá.
Sjómanns dádir Drottinn blessi
drafnar leiðum á,
stýrimann í stjórnarsessi
slysum verndi frá
sannar hafsins hetjur eiga
hrós sem aldrei deyr
llf í hættu leggja mega
lætur enginn meir,
líf i hættu leggja mega
lætur enginn, enginn meir.
Ingibjörg Sigurðardóttir.
V I K I N G U R
173