Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Síða 38

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Síða 38
Jón Dáason: - GRÆNLAND3FISKI - Hafstraumar. Það er ekki hœgt að ræða um fiski við Grænland, án þess að minnast á aðalhafstraumana við það land. Suður með Grænlandi að austan rennur Pólstraum- urinn, svo sem kunnugt er, og suður og vestur um Drangey, og svo norður með vesturströndinni. Suður- odda Drangeyjar kalla Danir Kap Farvel, og sumir fslendingar halda ranglega, að það sé Hvarf, sem er vestar. Kap Farvel hefur sennilega fyrrum heitir Drangeyjarmúli, sbr. „insula maulant", á landabréfi Cplumbusar frá 1492. Pólstraumurinn er ca. 100 faðma djúpur, og hann breiðir sig yfir fiskigrunnin við Vestur-Grænland norð- ur undir breiddarstig Dyrhólaeyjar á íslandi. Er svo lang er komið norður, hefur hann mist mátt sinn, og gætir ekki úr því sem straums. Gólfstraumurinn klofnar á fslandi. Lítil kvísl úr honum rennur norður um ísland, en meginhluti vest- urálmu hans mun streyma í vestur frá íslandi, rekst á Pólstrauminn við Austur-Grænland, beygir til suðurs fyrir utan (austan) Pólstrauminn suður um Drangey og svo norður með Vestur-Grænlandi utan (vestan) við Pólstrauminn. í Suðurbotninum (Davissundi) fyrir utan Pólstrauminn er því Gólfstraumssjór með-.nálega alveg sama hita og sömu eiginleikum og í hafinu fyrir vestan ísland (Grænlandshafi) allt niður á mörg hundr- uð faðma dýpi. Gólfstraumssjórinn er saltari og heitari, og því þyngri en Pólstraumssjórinn. Þar sem dýpi er meira en 100 faðmar og svo djúpt opið samband er frá því við úthafið, streymir Gólfstraumssjórinn því inn undir Pólstrauminn, svo á það miklu dýpi er heitur botns- sjór, þótt jökulkalt geti verið við botn þar, sem minna dýpi er en 100 faðmar. Á meira en 100 faðma dýpi er því svo til ætíð heitur botnsjór og lífsskilyrði fyrir fisk við Grænland sunnan neðansjávarhryggja þeirra, er liggja milli íslands og Grænlands og milli Græn- lands og Hellulands (Baffinslands). En norðan liggja þessara nefndu neðansjávarhryggja má segja, að það sé kaldur heimskautssjór ofan í botn. Á norðurhveli jarðar hafa hafstraumar, er renna til norðurs, tilhneigingu til að beygja til austurs vegna snúnings jarðarinnar. En hvernig sem á því stendur, þá er það staðreynd, að á breiddarstigum fslands við Vestur-Grænland brýst Gólfstraumssjórinn inn að landi og blandast þar við kaldan heimskautssjó, m. a. úr Pólstraumum. Út af þessum hluta Vestur-Græn- lands eru því bezt lífsskilyrði fyrir fisk. Hafísar. Pólstraumurinn ber miklar dyngjur af haf- ís, svo og borgarísjaka, suður um sundið miili Islands og Grænlands. Er sunnar dregur, breiðir ísinn úr sér, og berst svo með Gólfstraum og Pólstraum suður um Drangey og þaðan norður með vesturströndinni norður undir breiddarstig Dyrhólaeyjar, en ekki lengra norður. Veðurstofan í Kaupmannahöfn (Meteorologisk In- stitut) gefur árlega út kort yfir hafísa við Grænland í öllum mánuðum hvers árs, en auk þess kort yfir meðalísa hvers mánaðar til jafnaðar um alllangt ára- bil. Slík' ískort yfir Grænland eru prentuð í norska sjómanna-almanakinu fyrir alla mánuði ársins. Væri íslenzkum sjómönnum varla meiri nauðsyn á öðru en því, að þessi ísakort fyrir alia mánuði ársins væru prentuð upp í Víkingnum eða einhverju öðru riti, er berst öllum sjómönnum í hendur. Mestur er ísinn við Grænland í maí. ísrek suður og vestur um Drangey er talið að byrji í febrúar eða janúar. í seinni hluta júlí er orðið íslítið við Vestur-Grænland, en þó getur íshrafl haldizt þar lengur. Á breiddarstigum íslands við Vestur-Grænland er talið, að aldrei sé bafís við land, og að hafnir séu þar íslausar allan veturinn. Þó leggur firðina þar — að minnsta kosti öðru hvoru — og sennilega einnig þá voga út við haf, þar sem ekk- ert hafrót er. Fyrir norðan breiddarstig íslands, þ. e. fyrir norðan heimskautsbaug, leggja ekki aðeins hafn- ir á vetrum, heldur og allan sjóinn langt út á haf. Þar kennir heldur ekki áhrifa frá Gólfstraumnum (nema lítillega sem botnstraums allt norður að Króks- fjarðarheiði, norður að ca. 73° nbr.). Á haustin og fyrri hluta vetrar er minnst af ís við Grænland. Og Vestur-Grænland norður að heimskauts- baug má þá heita íslaust. Lífsmöguleikar fyrir fiskinn. Það virðist sannað mál, að þorskseyði alast upp í Pólstraumssjónum í fjörð- um Grænlands. Jafnvel í fjörðum Austur-Grænlands virðast seyði alast upp, er borizt hafa með hafstraum- um frá hrygningarsvæðinu við Island. En einhvern tíma að vetrinum — enn er ekki vitað hvenær — verð- ur Pólstraumssjórinn við Vestur-Grænland of kaldur til þess, að lúða eða þorskur af veiðihæfri stærð uni sér í honum. Ganga þá þessir fiskar af grunnmiðun- um, þ. e. miðum með 100 faðma dýpi eða minna, niður á djúpmiðin, mið með meira en 100 faðma dýpi, og leggjast þar í volga botnsjóinn frá Gólfstraumnum. Hvenær þetta gerist, er enn ókunnugt. Ekkert veiði- skip hefur enn yfirgefið Grænland svo seint, að ekki hafi verið fiskur á grunnmiðunum. Elsa, sem mun 174 V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.