Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 57

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 57
KTKNNI Stjórnarkænan. Stjómarkænan mastra mjóa, mjakast ögn á lilið. Þegar éinn vill áfram róa annar leggur við. Þetta skeði á „halelúja-samkomu: — Og að lokum, elskulegu bræður og systur, bið ég ykkur að Ijúka þessari samkomu með ferföldu svei fyrir hinum vonda. Svei! Svei! Svei! Svei' Ekki er von það flæða flaustur fái byr í traf. Sumir vilja sigla austur, sumir vestur í haf. Jóhann J. E. Kúld. Kreppa. BíSur bundinn í höfn, stór floti fiskiskipa. Sjómenn settir i land, arður sagöur enginn. — Littu á manninn þarna. A síðari árum hefur enginn maður hér á landi skrifað önnur eins kynstur af bulli. — Er hann rithöfundur? — Nei, hann hefur verið þingskrifari í tiu ár! Við höfnina hundruð manna atvinnulausir, albúnir híma. í hreysum gráta hungruð börn, sem vantar mjólk og mat. Kaupgeta þverr; krambúð full. Reynt er að lifa á lánum. Við tekur sveitin og sultaról, beygðum, brotnum mönnum. Klakahögg á köldum vetri, það eru úrræði eignastéttar, til handa févana fátækling, sem i biðröð hennar bíður. V I K I N □ U R 193

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.