Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 62

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1950, Page 62
Óttuðust þeir, að skipið mundi brotna á flúð- um við eyjuna, en það varð þó ekki. Þeir bræð- ur höfðu hjá sér haldfæri, röktu það niður í stóran hring, bundu stein í endann og köstuðu honum út á skipið. Vildi þeim til lífs, að hann festist undir stafnlokinu á skipinu, svo að þeir gátu dregið það til sín. Varð það óumræðilegur fögnuður. Bjuggu þeir nú betur urn það og tóku að veiða fuglinn (langvíu) og safna eggjum í blíðaveðri. Þeir vaðbáru eyjuna og mældist hún 400 faðma á lengd, en á breidd 80 faðma, og nálægt 60 föðmum á hæð (ávalahæð), þar sem hún var hæst. öll er eyjan með gjám og gjótum, grastó engin, en grýtt mjög. Af fuglategundum sáu þeir: svartfugl (Langvíu) og geirfugl höndluðu þeir. Frá Kolbeinsey var allt land horfið nema eins og þrjár þúfur, sem eru hæstu fjöll norðanlands. Höfðu þeir með sér til lands um 800 af fugli, ógrynni af eggjum, og nokkuð af fiski. Sjö daga dvöldu þeir í eyjunni og fengu hagstæðan byr til lands. Lentu á Siglunesi á þingmaríumessu (2. júlí). Eins og áður er getið, orti Jón prestur Einarsson brag um ferð þeirra 50 árum síðar, kallaðar „Kolbeinseyjarvísur“. Jón prestur var í Árskógi, drukknaði í Ballará 1674. Foreldrar þeirra bræðra þóttust hafa heimt þá úr helju við heimkomu þeirra. Urðu þeir frægir af för þessari. En er frá leið, spunnust miklar sögur um för þeirra, meðal annars, að þeir hefðu misst lífið á Kolbeinsey. Bendir til þess vísa þessi, er öldruð kona af Vestfjörðum sagðist hafa lært af afa sínum: „Kveður við kaldan steininn, Kolbeinsey, norður í sjó. Hvítna nú bræðra beinin í berginu mínu í ró!“ Þau urðu afdrif Bjarna Tómassonar Kol- beinseyjarfara, að hann drukknaði 65 ára að aldri 1617.10) Mun hann hafa farið þá Kolbeins- eyjarför, sem ort er um, árið 1580. Ólafur Olavius getur Kolbeinseyjar í ferða- bók sinni („Oeconomisk Reise“, á bls. 323). Segir þar, að selir séu svo spakir, að megi þá með höndum taka, en þó þetta"'standi í hinni frægu ferðabók, munu það öfgar vera, og um Jón bónda stólpa Jónsson í Grímsey (frá Bás- um) getur hann, og segir, að hann muni þá síðastur hafa á þeim tíma verið er fór þangað að sækja fugl og egg.* 11) 10) Hann drukknaði á Skagafirði, eftir því sem segir í Annál Björns frá Skarðsá. Espólín telur, að þeir bræð- ur hafi farið þrjár ferðir til Kolbeinseyjar. 11) Stólpa-nafnið fékk hann af því, að þá er hann Jón stólpi fór nokkrar ferðir til Kolbeinseyj- ar á opnum skipum árin 1700—1730. En svo er það ekki fyrr en á 19. öld, eftir að farið var að stunda hákarlaveiðar á þilskipum, að menn komu oft til Kolbeinseyj ar. Jón stólpi fórst við sjötta mann við Húnsnes á Skaga þann 17. september 1730, eftir ægi- legan hrakning úr fiskiróðri frá Grímsey. Ber ekki saman um mánaðardaginn, er slysið varð. Espólín telur hann 11. september 1730, Hítar- nesannáll 25. september, Mælifellsannáll 19. september, Vallaannáll 11. sept., en Hvamms- annáll dagsetur ekki slysið, en ártalið er þar hið sama. En áreiðanlegasta heimild um slysið eru þingbækur Hegi’anessýslu frá þessum tíma, er þar skiptapinn talinn 17. september 1730. Ut af honum risu stórkostleg málaferli og hýðing- ar, því að Jón fannst lifandi, en var farið svo illa með hann, að hann dó af því.12) Hafa þá verið taldir þeir Kolbeinseyjarfarar, sem sagnir eru til af, fram til ársins 1730. Frá þeim tíma, og þar til um miðja 19. öld, að farið var að stunda hákarlaveiðar á þilskipum, munu engar ferðir hafa verið farnar þangað norður af hálfu íslendinga til eggjatöku, sels eða fugla. Sökum þess, hvað illt er að komast að landi við Kolbeinsey, mun mönnum yfirleitt ekki hafa geðjast að því, að stefna þangað norður í hafs- auga til fanga, og sízt á opnum bátum. Segja hákarlamenn, að stundum sé svo vikum saman, að ekki sé hægt að lenda þar fyrir sjávarylgju, þótt sjór sé nokkurn veginn sléttur á hafinu. I 15. tölublaði „Ingólfs" 1853, 1. árg. bls. 71 —72, er Kolbeinseyjar getið. Segir þar úr bréfi frá ísfirðing (skrifað 15. og 16. sept. 1853): „Hákarlaafli og í bezta lagi, 300 tunnur mest. Hafa þeir í sumar fengið mestallan aflann út af Húnaflóa og í kringum Grímsey og Kolbeins- ey. Ari nokkur Eyfirðingur kom að henni á bát og vildi skjótast þar upp, en komst ekki sökum brims við eyjuna. Var eyjan þá svo þakin sel og fugli, að ekki sá til jarðar. Hefur mönnum verið síðan tíðrætt um hana. Þykir það eitt til fór fyrstu ferð til Kolbeinseyjar, reisti hann tvítuga stöng á svonefndum Stóra-Bratta, sem er norðan til á Grímsey. Stöng sú var með hvítri veifu. Sagði hann, að þegar hún hyrfi, sæist Kolbeinsey, ef veður væri heiðskírt. Jón var talinn fjölkunnugur og afburðamaður mikill. 12) Samanber þingbók Hegranessýslu nr. 794 í Þjóð- skjalasafninu. Herþrúður Þorbjarnardóttir frá Neðra- Nesi á Skaga fann Jón fyrst undir marbakka, var hann þá búinn að liggja þar í 3 dægur og ósjálfbjarga. Skar hún alla silfurhnappa úr skyrtu hans. Kölluð síðan „Guðlausa-Þrúða“, kona Einars Halldórssonar. 19B V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.