Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1954, Blaðsíða 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1954, Blaðsíða 25
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR Ótgefandi: Farmanna- og fiskimannasamband íslands. Uitstjóri og ábyrgðarm.: Gils Guðmundsson. Uitnefnd: Júlíus Kr. Ólafsson, Henry Hálfdanarson, Magnús Jensson, Halldór Jónsson, Sveinn' Þorsteinsson, Birgir Thoroddsen, Theódór Gíslason. — Blaðið kemur út einu sinni í mánuði, og kostar árgangur- inn 50 krónur. Bitstjórn og áfgreiðsla er í Fiskhöllinni, Ueykjavík. Utanáskrift: „Víkingur", pósthólf 425, — Reykjavík. Sími 5653. Frentað í ísafoldarprentsmiðju h.f. var kominn kvöldverðartími. Á leiðinni heim til sín þurfti hann að fara gegnum dálítið skógarkjarr. Þegar hann var kominn inn í kjarrið, gekk að honum skugga- legur maður og miðaði á hann riffli. Hatturinn slútti niður í augu hans, svo að mestur hluti andlitsins sást ekki. „Komdu með peningana þina“, sagði skuggalegi mað- urinn orðalaust. „Ég er taugaveiklaður, og hver veit nema ég komi óvart við gikkinn". „Ég á ekki nema f-f-f-fimm dollara“, sagði fógetinn og tók seðilinn upp úr vestisvasanum sínum. „Vefðu seðilinn upp og settu hann inn í hlaupið á rifflinum". Seðillinn var nýr, og það var auðvelt fyrir hvaða klaufa sem var að vefja hann upp og stinga honum inn í hlaupið. „Nú geturðu haldið áfram“, sagði ræninginn. Fógetinn hélt áfram og fór ekki hægt. * * * Daginn eftir dró litli rauði tarfurinn vagninn að skrifstofu fógetans. Benaja Widdup fógeti var með skóna á fótunum, því að hann bjóst við heimsókn. I viðurvist hans rétti Ransie Bilbro lconu sinni fimm dollara seðil. Fógetinn athugaði seðilinn vandlega. Hann virtist vefjast dálítið upp, eins og honum hefði verið stungið inn í byssuhlaup. En hann sagði ekkert, því að vel gat verið, að aðrir seðlar hefðu tilhneigingu til að vefjast upp. Hann rétti hvoru hjónanna um sig skiln- aðarúrskurðinn. Þau þögðu bæði og voru dálítið skrít- in. Konan leit feimnislega á Ransie. „Nú fei'ðu víst aftur upp eftir í vagninum“, sagði hún. Brauðið er í dunkinum á hillunni. Ég setti svína- kjötið í pott, svo að hundarnir næðu ekki í það. Gleymdu ekki að draga upp klulckuna í kvöld“. „Þú ætlar til Ed, bróður þíns?“ spurði Ransie og reyndi að vera kæruleysislegur. „Ég ætlaði að reyna að komast þangað fyrir kvöldið. Ég býst nú varla við, að það verði slegið upp stórveizlu til þess að bjóða mig velkomna, en ég get ekki farið neitt annað. Það er annars bezt að fara að koma sér af stað. Ég ætla að kveðja þig, Ransie, ef þú annars vilt það“. „Ég veit ekki hvaða ástæðu ég ætti að hafa til þess að vilja ekki kveðja þig“, sagði Ransie, „nema þér liggi þá svo lífið á að komast burt“. Ariela þagði. Hún kreisti fimm dollara seðilinn í lófa sér og stakk honum svo í vasann á kjólnum sínum. Benaja Widdup horfði með sorgarsvip á seðilinn hverfa. „Verður nú ekki daufleg vistin hjá þér, Ransie?“ spurði hann. Ransie Bilbro horfði út um gluggann í áttina til heimilis sins. Hann leit ekki á Arielu. „Það verður líklega dálítið dauflegt“, sagði hann. „En þegar manneskjur verða reiðar og vilja skilja, þá er ekki hægt að halda aftur af þeim“. „Það voru aðrir, sem vildu skilja“, sagði Ariela.' „Svo krerði sig enginn um, að nokkur yrði kyrr“. „Enginn sagði nokkurn tíma, að hann vildi það ekki“. „Enginn sagði nokkurn tíma, að hann vildi það. Það er bezt fyrir mig að leggja af stað til Ed bróður“. „Énginn getur dregið upp gömlu klukkuna“. „Viltu, að ég komi heim með þér í vagninum, Ransie, og dragi hana upp fyrir þig?“ Það var ekki mikið um geðshræringar hjá fjallabúan- um, en hann rétti úr stóra höndina og huldi litlu hönd- ina á Arielu í henni. „Ég vil vera í kofanum hjá þér, Ransie“, sagði hún, „og hvergi annars staðar. Ég ætla aldrei að verða reið aftur. Nú skulum við leggja af stað, Ransie, svo að við verðum komin heim fyrir sólsetur". Nú skarst Benaja Widdup fógeti í leikinn. Hjónin höfðu gleymt nærveru hans. „í nafni Tennessee-ríkis“, sagði hann, „fyrirbýð ég ykkur að hafa lögin að engu. Það er réttinum sannar- lega gleðiefni að sjá ský sundurlyndis og misskilnings greiðast frá tveim elskandi hjörtum, en lögin verða að hafa sinn gang. Rétturinn vill minna ykkur á, að þið eruð ekki lengur hjón, en eruð skilin samkvæmt laga- legum úrskurði og njótið þvi ekki réttinda hjúskapar- laganna“. Ariela tðk í handlegginn á Ransie. „Þýddu þessi orð það, að nú yrði hún að missa hann, þegar þau væru nýbúin að ná saman aftur?“ „En rétturinn er fús“, hélt fógetinn áfram, „til að ryðja úr vegi þeim hömlum, sem skilnaðai'úrskurðurinn setur. Rétturinn er reiðubúinn til að framkvæma hjóna- vígslu og koma þannig á lagalegum sættum, sem blómg- ist í farsælu og löglegu hjónabandi. Gjaldið fyrir hjóna- vígsluna verður fimm dollarar". Ariela hugsaði sig ekki lengi um. Hún fór niður í vasann á kjólnum, tók upp fimm dollara seðilinn og rétti fógetanum hann. Hún var rjóð í kinnum, þar sem hún stóð og hélt í hendina á Ransie, meðan fógetinn gaf þau saman að nýju. Ransie hjálpaði henni upp í vagninn og klifraði upp á eftir henni, og svo lögðu þau af stað upp til fjalla og héldust í hendur alla leiðina. Benaja Widdup fógeti settist á þröskuldinn og tók af sér skóna. Enn einu sinni handfjatlaði hann seðilinn í vestisvasa sínum. Enn einu sinni reykti hann pípuna sína. Enn einu sinni vaggaði hæna niður stíginn og gargaði kjánalega. V I K 1 N G U R 119

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.