Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Blaðsíða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Blaðsíða 2
Afmœlískvebjur til Víkingsins Bárður Jakobsson Fyrir tuttugu árum hóf sjó- mannablaðið „Víkingur" göngu sína. Voru þar einkum að verki forustumenn og áhuga í F.F.S.I., sem var það ljóst, að samtök- unum var óhjákvæmileg nauð- syn að eiga málgagn. Ekki verður annað sagt en að ráðizt hafi verið í útgáfuna af mikilli bjartsýni. Má segja að vantað hafi flest, sem til þurfti. Fé af skornum skammti, sam- bönd fá, reynsla engin, en auk þess var þessu tiltæki F.F.S.l. engan vegin tekið af skilningi allstaðar og sætti jafnvel úlfúð frá þeim, sem sízt skyldi. Þetta lagaðist þó fljótlega allt, og má þakka það því, sem líka hefur haldið „Víkingi“ gangandi fram á þennan dag, en það var ódrep- andi áhugi, elja og dugnaður for- svarsmanna blaðsins. Eru mér í því sambandi minnisstæðir: Ás- geir Sigurðsson, Hallgrímur Jónsson, Þorsteinn Árnason, Þor- varður Björnsson, Konráð Gísla- son, Grímur Þorkelsson, Sigur- jón Einarsson; en dugnaður þeirra Guðmundar H. Oddsson- ar, Henrý Hálfdanarsonar og síðast en ekki sízt Friðriks heit- ins Halldórssonar um starfrækslu og útbreiðslu blaðsins, var ein- stakur. Þykir mér líklegt að „Víkingur“ búi að einhverju leyti ennþá að fyrstu gerð þess- ara manna og fleiri, þótt ekki séu hér nefndir. Hlutverk mitt við „Víking“ var heldur fátæklegt, og vegna flutnings á annað landshorn varð ég að láta af ritstjórn blaðs- ins. Við það tækifæri lét ég svo um mælt um þá menn, sem stóðu að F.F.S.l. og „Víkingi", en þeir voru flestir starfandi sjómenn og tóku á sig kauplaust eril og áhyggj ur: „Ég geri varla ráð fyrir, að ég eigi eftir að hitta fyrir jafnstór- an hóp manna, sem við örðugar aðstæður vilja betur og vinna betur, heldur en nær hver og einn þeirra, er ég hefi haft kynni af í þessu starfi mínu“. Spámaður er ég ekki né hefi verið, en þessi ummæli mín standa óhögguð enn í dag, og hefi ég þó víða farið og margt starfað síðan þau voru viðhöfð. Um form og verksvið blaðs má lengi deila. Var mér í upphafi ljóst, enda kom það fram í ræðu og riti, að ekki myndu allir ánægðir með „Víking“, og mun svo vera enn í dag. Þetta er göm- ul saga, og þó alltaf ný og líka nauðsynleg og ber vott um líf og hugsun. Sá sem er ánægður með sig er nær alltaf annaðhvort fífl eða á grafarbakkanum, og þessa óska ég „Víkingi“ sízt af öllu. Hvað sem þessu líður munu flest- ir játa að „Víkingur" hafi haft hlutverki að gegna og gert það eftir atvikum vel. Tuttugu ár eru í raun og veru skammur tími, og það sem miður fer eða aflaga í uppvexti getur breytzt og lagast. Nú, þegar „Víkingur" hefur slit- ið barnsskóm og komizt yfir þrengingar gelgjuskeiðsins, ó- vanalega margar og miklarvegna stórkostlegra þjóðlífsbyltinga, ætti hann að geta tekið á sig byrðar þroskaáranna. Ég er sannfærður um að svo verði. Mér kemur í hug júnímorgunn fyrir tuttugu árum. Kvöldinu áð- ur hafði verið lokið við prentun „Víkings", og var upplagið í kompu þeirri, sem blaðið hafði þá til umráða í Ingólfshvoli. Þá var ekki búið að skipuleggja dreifingu „Víkings" að marki, og varð að búa um blöðin til hvers einstaks áskrifanda. Rista pappír, límbera, brjóta utan um blaðið, og skrifa loks með penna á allan búnkann. Ég var einn að dunda við þetta kvöldið og nótt- ina, og gekk heimleiðis um sólar- upprás. Leið mín lá meðfram „Tjörninni“ og var morguninn einstaklega fagur og bjartur. Þessi fallega endurminning; er órjúfanlega tengd „Víkingi“. Á ég ekki aðra betri ósk honum til handa, en að jafnbjart verði yfir „Víkingi" og verkum hans í allri framtíð, og mér fannst og finnst enn hafa verið yfir hans fyrstu göngu. Óska ég svo sjómannablaðinu „Víkingi“ og F.F.S.I. heilla og til hamingju með afmælið. Hallgrímur Jónsson Komdu, „Víkingur", heill, þú átt trúnað og traust þeirra, er takmörkin velja sér há. — Láttu vakningar-rödd þína viðstöðulaust benda verkefnin framundan á. Þannig kvað Frið'rik Halldórs- son loftskeytamaður í öðru tölu- blaði Víkings, sem kom út í ágúst 1939, og betur gat hann naumast túlkað hug þeirra, sem stóðu að VÍKINGUE 122
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.