Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Side 29
>•>
Ki
Hallgrímur Jónsson
Stórir Dieselmótorar
Blaðið ,,Information“ getur
þess nýlega, að hin mikla mótor-
verksmiðja Burmeister & Wain
í Kaupmannahöfn hafi haft boð
inni er stóð í þrjá daga. Boðs-
gestirnir voru fulltrúar þeirra
fyrirtækja í ýmsum löndum
heims, 14 alls, sem fengið hafa
leyfi (licens) til þess að smíða
dieselvélar af B&W gerð, licens-
haverkongres, kallar blaðið þessa
samkomu. Þarna voru meðal
annara fulltrúar frá Vestur-
Þýskalandi og Sóvét- líðveldun-
um, svo og Svíþjóð og Japan, en
þeir eru kallaðir aðal-leyfishafar.
Leyndarmálið sem afhjúpað
var við þetta tækifæri, var
hvorki meira né minna en sýn-
ing á dieselvél með stærsta
strokkþvermál sem enn hefir
verið smíðaður. Smíði þessarar
vélar er ný lokið í vélasmiðjum
firmans í Strandgötu í Kaup-
mannahöfn.
Er þetta 6 strokka vél, og
hver strokkur gefur 1730 virk
hestöfl við 110 snúninga á mín-
útu. Til samanburðar er þess
getið, að það sé eins mikið og
611 vélaorkan í mótorknúna haf-
skipinu „Selandíu" en B&W
aði mjög hvaliðnað Norðmanna.
Allur hvalveiðifloti þeirra lá
bundinn í höfn á á’rinu 1931—
1932. Flotinn var þá 28 verk-
smiðjuskip um 230 000 tonn og
158 veiðibátar samtals 26 000
tonn.
Norska verksmiðjuskipið ,,Ad-
miralen“ var 1500 lestir að
stærð. Það sigldi árið 1905 til
Suðuúheimsskautsins og gat bor-
ið 500 föt, þ. e. 830 tonn af hval-
lýsi. Verksmiðjuskipið Kosmos
III., sem e'r í eigu norska út-
gerðarmannsins Anders Jahres,
er 22 000 tonn og getur borið
þetta magn af hvallýsi eða sam-
tals 123 000 föt.
Stærri verksmiðjuskip eru nú
í smíðum.
verksmiðjurnar urðu frægar fyr-
ir smíði þess skips á sínum tíma.
Hver strokkur í þessari vél
er 84 cm í þvermál og leyfir
1,8 m slaglengd. Gerð þessarar
vélar er sögð í aðalatriðum ein
5 og ein þeirra sem verksm. hóf
smíði á fyrir nokkrum árum. En
hún var þá á undan öðrum verk-
smiðjum í nýtingu á orku blást-
urgassins til þjöppunar á skol-
lofti í hæggengum tvígengis
stórmótorum. Jók þetta stórlega
orkunýtingu þessara véla. Ekkert
er talið því til hindrunar að
fjölga megi strokkum í þessari
gerð véla, og með því fá stærri
vélaeiningar. Tólf strokka vél
þessarar tegundar mundi þá
gefa yfir 20,000 hestorkur.
Þessi 6 strokka vél sem B&W
verksm. hafa nú lokið smíði á,
er ætluð í skip sem Austurasíu-
félagið danska á nú í smíðum.
Það félag lét á sínum tíma smíða
„Selandíu“. Hefir framsýni og
stórhugur þessara tveggja fyrir-
tækja, þó að hjá smá þjóð sé,
haft mjög örfandi áhrif á smíði
stórmótora um allan heim, og
orðið dönsku þjóðinni ómetan-
leg fjárhagsleg auglýsing.
Af nýútkomnum enskum blöð-
um má sjá, að áhugi útgerðar-
félaga sem eiga stór hafskip,
beinist nú í þá átt að fá smíð-
aða all miklu stærri dieselmótora
en áður. Lengi héldu menn sig
við vélar nokkuð innan við 10,000
hestorkur í einni vél. En eftir að
verksmiðjunum tókst að nýta
orku blásturgassins í hverflum
til þess að auka þjöppun skol-
loftsins í hinum stóru tvígengis-
vélum, var hægt að brenna meiri
olíu í hverjum strokk aðóbreyttu
rúmmáli hans, og þar með fá
stórum meiri orku. Fæst með
1/3 orkuaukning miðað við sömu
vélastærð, og að auki betri nýt-
ing á olíunni. Segir svo um þessa
nýjung í „Motorshipp“ aprílhefti
þ.á.: „Hverfilorkablásturgassins
(turbocharging) er notuð með
góðum árangri í svo að segja
öllum gerðum tvígengis skipa-
véla. Kostirnir eru óumdeilan-
legir, og gallana hefir tekist að
yfirvinna svo að segja kerfis-
bundið. Menn geta aðeins harm-
að það að þessi þróun hófst ekki
fyr.
Þá er þess getið í sama blaði
að ekki mnni verða staðar num-
ið- við það sem unnist hefir eða
um 33 og Ys%. Næsta skrefið
verði að vinna eftir sömu leiðum
að 50% aukningu eða meir. Þá
verði ekki heldur numið staðar
við umbætur á hæggengum tví-
gengis vélum. Fjórgengis vélar
verði þar einnig með, enda hefir
turbocharging einnig verið not-
uð í þeim með góðum árangri.
Yfirleitt er það hitaþol efnis-
ins í vélastrokknum sem mest
hindrar framvinduna í þessum
efnum. Er þar svipað viðhorf
eins og með brunahólfin í gas-
hverflinum sem mikið hefir ver-
ið skrifað um að undanförnu, en
hann e'r nú á tilraunastiginu
í nokkrum skipum.
Stærsti dieselmótorinn sem
smíðaður hefir verið í Stóra
Bretlandi var reyndur nýlega í
Skotlandi. Er það 12 strokka
tvígengis Sulzer vél. Smíðuð hjá
Alexander Stephen and Sons Ltd.
með leyfi frá Sulzer Bros.
Strokkþvermál er 76 cm og slag-
lengd 1,55 m. Framleiðir hún
allt að 20,000 virk hestöfl, en er
gefin upp fyrir 18,000. Daglega
er henni ætlað að vinna með
15,000 virkum hestorkum. Þungi
þessarar vélar er 720 smálestir.
Miðað við 18,000 h.ö. er það 77
lbs. á hvert h.a.
I Mótorship frá maímánuði
s.l. er þess getið, að Sulzer verk-
smiðjurnar hafi nú í smíðum
tvígengisvél með 90 cm strokk-
þvermál. Og geti 9 strokka vél
framleitt 16,500 virk hestöfl eða
1830 h.ö. á strokk, en það er
100 h.ö. meira en í hinni nýju
vél B & W sem minst er á hér
að framan. Sýnilegt er að þarna
er samkeppnin í fullum gangi.
VÍKINGUE
149