Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Page 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Page 47
Guðjón Benediktsson, vélstjórí Veiðiferð á Ilulamíð Eftirfarandi frásög’n er skráð af Guðjóni Benediktssyni vélstjóra, Hafnarfirði, en hann var 1. vélstjóri á b/v Ver, og einmitt á vakt í vélarúmi er atburður sá skeði, er hann segir frá. Fyrir nokkru var ég að blaða í gömlum minnisblöðum sem ég átti í fórum mínum og rakst þar á frásögn af atburði þeim sem hér ve'rður sagt frá í stuttu máli. En hann skeði um borð í b/v Tryggva Gamla árið 1924. Skip- stjóri á skipinu var Snæbjörn Ólafsson, landskunnur aflamað- ur og farsæll skipstjóri. B/v Hryggvi Gamli hafði verið í viðge'rð í Reykjavík um mán- aðartíma, en lagt var af stað í veiðiferð þá sem hér segir frá 22. desember 1924, en þá var ekki verið að bíða heima til jólanna, sem enda sjaldgæft er um þá sem starfa á sjónum. Við héldum í dálitlum SV kalda, sem leið liggur út Faxa- flóa, og fyri'r Jökul, því ferðinni var heitið á svonefnd Halamið, sem fundizt höfðu sumarið 1921. Þegar komið var fyrir Snæfells- jökul var kominn talsverður strekkingsvindur af ANA, sem er hin versta veðurátt á Halamið- um vegna straums og krappra stórsjóa sem þá myndast. Ferð- inni var þó haldið áfram fyrir Látrabjarg, en haldið með landi Guðjón Benediktsson vélstjóri. til athugunar á veð'ri, hvort ekki færi batnandi svo hægt væri að sinna togveiðum. Þegar komið var á Patreks- f jarðarflóa var komið rok af NA, svo ekki var nokkurt viðlit að hugsa um fiskveiðar, va'r því haldið áfram með landi og farið inn til Flateyrar á Önundarfirði og lagzt þar við bryggju. Þar var legið til klukkan 8 á jóla- dagskvöld, en þá var lagt af stað til hafs, og komið út á Halamið klukkan tvö um nóttina, og kast- að trolli í leiðindaveð'ri, svo að með naumindum var hægt að toga. Þó var þraukað við að toga þar til klukkan f jögur aðfaranótt þriðja í jólum, en þá var komið NA rok og stórsjór eins og þeir þekkja, sem á þeim miðum hafa verið í slíkum veðrum. Trollið var tekið inn og bund- ið upp, og síðan var skipið látið reka, en slóvað uppí öðru hve’rju eins og venja var. En á þeim tíma var það trú manna að svo voldug veiðiskip sem togarar gætu ekki farist af völdum storms og sjáva'r á opnu hafi. Þrátt fyrir storminn og stórsjó bar skipið vel af sér, og allt virt- ist í bezta lagi. En klukkan hálf tvö þann 27. des. skall hrika- legur brotsjór yfi’r skipið, þar sem það lá flatt fyrir vindi. Sjór þessi var svo krappur og þungur, að hann lagði skipið al- veg á hliðina, þannig að bak- borðssíðan var alveg upp úr og hálft dekkið, eða með öðrum orðurn, að skipið lagðist á lúgur. Allt kastaðist til í skipinu, saltið og kolin þeyttust yfir í stjórn- borðssíðu, svo að skipið gat ekki rétt sig við sjálfkrafa. Toghleri sem var í forgálga stjb.-megin kastaðist út, en hékk í ttengsl- um og barðist sífellt í skipssíð- una. Einn skipverja, sem var fram á, lét binda sig í tóg, og fór með exi til þess að höggva tengslin af hleranum, því að stór hætta var á því, að hlerinn mölv- aði gat á skipshliðina. Skipstjóri hringdi og spurðist fyrir um hvernig ástatt væri í vélarúmi, um leið og hann ósk- aði eftir fullri ferð áfram á vél- inni, til þess að reyna að ná skipinu upp að vindi. Nú var að- eins að duga eða drepast. Var honum sagt, að ekki væri gott ástand í vélarúminu, því að öll kol hefðu kastast til í kolabox- unum og ekki væri hægt að kynda ketilinn nema að nokkru leyti þar sem skipið lægi svo mikið á hliðinni. Ljósavélin gæti tæp- lega gengið fyrir vatni af katl- VIKINGUE 167

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.