Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Page 49

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1959, Page 49
Bjarni Jónsson skipstjóri, 70 ára Bjarni Jónsson skipstjóri varð sjötugur 3. júní sl. Bjarni er Reykvíkingur í (húð og hár, sonur Jóns Þórðarsonar fiskimats- manns frá Vigfúsa'rkoti og konu hans, Guðrúnar Bjarnadóttur. Hálfrar aldar sjómennsku- afmæli. Bjarni fæddist í Fisdhersundi 1. Þá var allt opið til sjávar, seg- ir hann, og fja’ran við Vestur- götuna. Þar lékum við okkur. Bjarni sagðist alltaf hafa ver- ið ákveðinn í því að verða skip- stjóri. Þegar hann var 8 ára, kom strax í ljós, að sjórinn var hans ástríða: — Þá stalst ég til Hafnar- fjarðar og gekk alla leiðina. Svo kom Reykjavíkin, sem var flóa- bátur hér á Faxaflóa og faðir minn lóssaði oft, þegar með þurfti, og ég faldi mig um borð í skipinu, þangað til það va'r far- ið á stað. Þetta var fyrsta sjó- íerðin mín og þótti nú heldur sigling í þá daga. Annars fór ég á verzlunarskipið Hóla 2. eða 3. júní 1909, svo ég á einmitt hálfr- ar aldar sjómennskuafmæli um þessar mundi'r. — Hvenær fórstu til Eim- skips? — Það var 1915. Þá fór ég með Gullfossi að sækja Goðafoss fyrsta. Júlíus skipstjóri var úti og þar hitti ég hann. Júlíus er elztur af níu skipstjórum Eim- skips sem komni'r eru í land. Ilann er á níræðisaldri — Dró til tíðinda í förinni? — Nei, ég lærbrotnaði bara á Raufarhöfn í fyrstu ferðinni og átti í því í níu mánuði. Það er góð tala. Svo fó'r ég aftur á Goð- ann, en var ekki með, þegar hann strandaði. Þá var ég kominn á Ceres gömlu og var háseti á henni, þegar hún var skotin nið- ur á Atlantshafinu í fyrra stríði, 1917 va'r það víst. Fariþegar voru um borð í skipinu, þau Thor Jen- VÍKINGUR sen og Ritíhard sonur hans, og fröken Thora Friðriksson. Þau björguðust öll, eins og kunnugt er, en tveir af áhöfninni fórust í sp'rengingunni. Þeir voru báðir niðri í vél, þegar tundurskeytið hitti skipið. Þetta er eina havarí- ið, sem ég hef komizt í á sjó. Við vorum 52 klukkustundir í björgunarbátnum til Hebrides- eyja og var það talsvert volk. — Svo hefu’rðu komið aftur til Eimskips. — Já, ég var nokkur ár háseti hjá Eimskip. Þegar mér bauðst stýrimannsstarf á Sterling, fór ég þangað. Það var 1918. Það vantaði menn á skipin eftir spönsku veikina, sumir höfðu ekki náð sé'r almennilega, aðrir lágu og enn aðrir höfðu dáið úr veikinni. Það var ekki eins auð- velt að verða stýrimaður þá og nú, því skipin voru fá og sjald- gæft, að pláss losnaði. Um það bil áratug síðar varð ég fyrsti stýrimaður á Gullfossi og leysti þá stundum Sigurð Pétursson af. Sigurður var ágætur maður, traustur og öruggur skipstjóri. Þá var skemmtilegt! — Þú kant hvergi við þig nema á sjónum? — Mér leiðist í landi. Dag- arnir eru langir. Svo er ekkert að gera, þegar maður er kominn í land, því alli'r segja: — Þessi var hjá Eimskip. Hann fær eft- irlaun. Ég hætti 1952, en hef stundum leyst af síðan. Það hef- ur haldið í mér líftórunni. Ég hef farið með útlendinga kring- um landið, svo hef ég farið út með Tröllið, Reykjafoss, Tungu- foss, Kötlu, Litlafell og Kyndil. Tvö stríð. — Þú hefu’r siglt tvö stríð? — Já, ég hef siglt tvö stríð. Og mér datt aldrei í hug, að neitt kæmi fyrir mig. Þeir eru margir skyggnir, sjá fyrir veð'rabrigði og svoleiðis. — Ert þú skyggn, Bjarni? — Mér hefur lánazt allt vel og það eru allir góðir í kringum mig. Ég fann aldrei (til ótta, það má ekki koma fyrir á sjónum. Og það þýðir ekki að vera að hugsa um, þó loftvogin falli á leiðinni til Ameríku. Eins og þú veizt, sótti ég Tröllið 1948 og var á því, þangað til ég hætti hjá Eimskip. f einni ferðinni lentum við í þoku um 300 mílur Bjarni Jónsson, skipstjóri, í íbúð sinni í Tröllafossi. Málverk af foss- inum er á veggnum, mynd af konunni á borðinu. 169

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.