Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1970, Blaðsíða 22
Síðan 21. maí hafa sex togbát-
um. Að líkindum hefur verkfall
ar landað hér samtals 293,4 tonn-
það, sem nú stendur yfir annars-
staðar, nokkuð mikil áhrif á
framtíðarlöndun hér. Heimabát-
ar eru ekki almennt byrjaðir
veiðar ennþá, nema Björgvin, sem
farið hefur einn túr á handfæra-
veiðar. Afli hans varð 6V2 tonn.
Smátrillubátar, átta alls, hafa
farið nokkra róðra síðan 11. maí.
Tíð hefur verið vond, afli frekar
tregur og misjafn. Það munu
vera komnar á land hér, þegar
þetta er skrifað, af þeim skipa-
stól um 30 smál. síðan á vertíðar-
lokum. Vinna hefur verið hér
mjög góð síðustu daga síðan að-
komubátar byrjuðu að landa hér.
P'orstjórinn Páll leggur nú nótt
við dag og reynir eftir beztu getu
að afla hráefnis, enda byggist af-
koma frystihússins og fólksins
yfirleitt á því. Meira að segja Ól-
afur Friðbei’tsson er nú á Græn-
landsmiðum. Hann fór héðan
28/5. Kemur sennilega ekki aftur
fyrr en eftir sjómannadag. Sif
og Friðbert Guðmundsson eru enn
á ísafirði.
Það má fullyrða, að afkoma
fólks hér hefur verið mjög góð
síðastliðna 18 mánuði, þótt marg-
ir þeirra hafi lagt á sig feyki-
mikið erfiði til þess að afla þeirra
tekna. En verkin sýna nú merkin,
því að nú streyma hér inn í þorp-
ið nýir og notaðir bílar í stórum
stíl. Heyrzt hefur, að hingað
komi — og eru þegar margir
þeirra komnir — 10 fólksbílar.
Verðmæti þeirra mun vera rúm-
ar 2 millj. króna. Mest eru það
reddarar, sem þessa bíla kaupa,
t. d. skipstjórar og stýrimenn,
sem eru líka hluthafar í stórút-
gerð, og svo eru það matsveinar,
ekkjur, vélstjórar 0. fl. stór-
tekjureddarar. Dýrasti bíllinn,
sem þegar er kominn, kostar um
380 þús. kr. Skráðir verða nú hér
í byggðarlaginu um 70 til 75 bíÞ
ar, mestmegnis fólksbílar. Tala
heimilisfastra manna var hér 1
des. 1969 497, en var árið áður á
sama tíma 511. Fólkinu hefur
því fækkað, en bílum fjölgað að
sama skapi.
Aðkomufólk til vinnu í frysti-
húsinu hefur streymt hér að und-
anfarna daga, og húsakynni þau,
sem Fiskiðjan á eða hefur á sín-
um vegum, og eru Kongó, Kat-
anga, White House og Kórea, svo
eitthvað sé nefnt, eru nú að fyll-
ast af aðkomuverkafólki. Eitt-
hvað er hér líka eða hefur verið
af faglærðum mönnum til við-
gerðar á tækjum og vélum —
sem sagt: allt í fullum krafti að
endurbyggja það, sem aflaga fer
eða var farið. 1 mötuneyti staðar-
ins borða nú um þessar mundir
um 20 manns.
Og svo eru það skipakaupin til-
vonandi.
Þann 12. apríl voru undirskrif-
aðir hér samningar um smíði á
skipi fyrir Súgfirðinga. Stálvík
h.f. Arnarvogi, Garðahreppi,
smíðar skip fyrir Ólaf Ólafsson
skipstjóra 0. fl. Ólafur var með
m/s Framnes í vetur. Skipið
verður úr stáli. Stærð þess 176
lestir samkvæmt hinum gömlu
mælingum. Það er um 125 lestir
samkvæmt hinum nýju. Lengd
þess verður 28,80 m, breidd 6.70
m og dýpt 3,35 m. 1 því verða 5
vatnsþétt þil. Skipið verður út-
búið bæði á línu- og trollveiðar.
Verð þess, þegar samningar voru
undirskrifaðir, kr. 24,5 millj., en
þess skal getið, að breytingar
kunna að verða á því verði, þar
eð kaup getur hækkað og annað
sem til þeirra smíða þarf. Skipið
á að vera tilbúið um næstu ára-
mót. Lestarrými þess verður 165
rúmmetrar, kæling verður í lest.
Aðalvél þess verður 565 hö.,
Caterpillar-vél. Hjálparvélar
verða tvær af sömu tegund og að-
alvél, 36 kw hvor stöð, 3ja fasa,
220 V spenna. 11 tonna spil verð-
ur í skipinu, Simrad-talsendir
TB 4, 100 Watta, með 10 krist-
öllum og móttökutæki með sjálf-
virkum neyðarsendi. Simrad-
dýptarmælir með þremur grunn-
skölum, Termaratsjá, 48 sjó-
mílna, Loran-móttakari, A og C
móttaka, miðunarstöð með út-
búnaði, sem gerir Sens-loftnet
óþarft, sjónvarpstæki með 51 cm
skermi og loftnet fyrir sjónvarp,
sem tekur úr öllum áttum. Kojur
verða fyrir 14 manns., ljóskastari
1000 Wött og auk þess sérstakur
ísleitarljóskastari. Og til viðbót-
ar öllu þessu að ofan, sem er vit-
anlega piikið meira en hér er lýst,
verður sjálfstýring af Sharp-
gerð. Þetta skip er það 16. í röð-
inni, sem Stálvík h.f. smíðar, og
nú eru þar 4 skip í smíðum. Mjög
vel hafa þau skip reynzt, sem þar
hafa verið smíðuð, og vonum við
Súgfirðingar það hið sama nú.
Spá mín er sú, þótt mínir fætur
kólni kannski bráðlega, að ekki
líði langur tími þar til að tvö skip
ný bætist í hópinn. Þá fyrst mun
Súgandafjörður verða vel birg-
ur með hráefnisöflun, svo fremi,
að fiskur sé þá til.
Enn um skipakaup.
Þrír ungir Súgfirðingar eru nú
að láta smíða bát hjá Bátalóni,
sem svo er kallað, í Hafnarfirði.
Stærð hans verður um 11 tonn.
226
VlKINGUR