Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Blaðsíða 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Blaðsíða 1
EFNISYFIRLIT: bls. .................................. 53 G. Jensson Nokkur atriði um sjávarútvegsmál • R'óövar Steinþórsson Hugleiðingar um fræðslumál 56 • Ilin aldna kempa 60 IJelgi Hallvarðsson Pinro og starfsemi hennar 64 Rannsóknarstöðin í Lyngby Frá Siglingamálastofnuninni 72 • Ævintýramaðurinn EDWARD Moseby 74 Hallgrímur Jónsson þýddi • Veiði hörpudisks er arðsamur atvinnuvegur 78 Eftir: dr. James Mason • Um Hrognkelsin 80 Dr. Sigfús A. Schopka Félagsmálaopnan 82 Framhaldssagan Mary Deare 83 Frívaktin o. m. fl. • Forsíðumyndin er af skipverjum á e.s. Gullfossi. Myndin var tekin árið 1919 og er í eigu Hallgríms Jónssonar fyrrverandi vélstjóra. • VÍKIIMGUR Útgefandi F. F. S. 1. Ritstjórar: Guð- mundur Jensson (áb.) og örn Steinsson. Ritnefnd: Böðvar Steinþórsson, formað- ur, Ingólfur S. Ingólfsson, varaformaður, Anton Nikulásson, Hafsteinn Stefánsson, Henry Hálfdansson, Ólafur V. Sigurðs- son, Sigurður Guðjónsson. Blaðið kemur út einu sinni í mánuði og kostar árgang- urinn 500 kr. Ritstjórn og afgreiðsla er að Bárugötu 11, Reykjavík. Utanáskrift: „Víkingur“, pósthólf 425, Reykjavík. Sími 156 53. Prentað í ísafoldarprent- smiðju h.f. S/Oi yjomannat LfaSií VÍKINGUR UgefanJl: 3c armanna- °9 3uL imannaðanv i an J JJanJs Ritstjórar: Guðm. Jensson áb. og Örn Steinsson. XXXIII. árgangur. 2. tbl. 1971. ^OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOO Guðm. Jensson: NOKKUR ATRIÐI UM SJÁVARÚTVEGSMÁL Hvar liggja framtíðaráætlanir í sjávarútveginum um endurnýj- un og uppbyggingu fiskiskipa- flotans og vinnslustöðva? Þessum spurningum velta landsmenn fyrir sér í vaxandi mæli. Sérstaklega þó, þegar að fyrir liggja nokkurnvegin, niðurstöð- ur um aflamagn og útflutnings- verðmæti sjávarafurðanna árið 1970, en þá nam verðmæti þeirra rúmlega 10 milljörðum króna. Árið 1969 færðu þær 7.7 millj- arða í þjóðarbúið. Það, sem athyglisverðast er, má óhætt telja þá hagstæðu verð- þróun, sem átt hefir sér stað á sl. ári: Hækkunin nemur um 80 % frá árinu áður, sem þótti þó sýna mjög hagkvæma þróun frá 1968. Verðmætisaukning frystra sjáv- arafurða á sl. ári nam rúmum 40%, en þá fór magnið í fyrsta sinn í sögu þjóðarinnar yfir 100 þúsund smálestir. Þessi gleðilega hagþróun í sjávarútveginum hefir að vonum vakið eðlilega bjartsýni í hugum landsmanna. Sérstaklega þegar þeir 2 mán- uðir, sem liðnir eru af þessu ári, gefa fulla ástæðu til að spá áframhaldandi velmegun til sjávarins á yfirstandandi ári, og jafnvel um lengri framtíð. Hinn glæsilegi árangur, sem náðst hefir í okkar sjávarútvegi undanfarin misseri hefir, eins og raunar alltaf áður byggst á dugn- aði og afkastagetu íslenzkra sjó- manna. Hins vegar hefir það hörmu- lega ástand skeð að fjölgun í þessari stétt hefir minni en engin orðið þrátt fyrir tuga marg- fallt aflamagn og engu síður harða sjósókn. Þegar íslenzka þjóðin taldi 100 þúsund manns, átti hún 5000 sjó- menn. Þá voru 19 manns í landi til að skipta með sér þeim uggum, sem hver þeirra færði að landi. Nú er þjóðin yfir 200 þúsund, en tala sjómanna innan við 5000, og nú skipta um 40 manns upp með þeim, margfallt meira magni, en áður þekktist. En hlutur sjómanns er tiltölu- lega fyrir neðan þennan saman- burð. Tölurnar gefa þó smávegis mynd af ríkjandi ástandi. 1 ófriðarlok stóð sjómanna- stéttin sterkt að vígi. Það sýndi bezt áhrif hennar og aðgerðir í endurnýjum skipaflot- ans. Mennirnir á forsíðumynd blaðsins eru, sitjandi í miðröð: Guðbjartur Guðmundsson, 3. vélstj., Hallgrímur Jónsson, 2. velstj., Haraldur Sigurðsson, 1. vélstj., Sigurður Pétursson, skipstjóri, Þór- ólfur Beck, 1. stýrimaður,Ásgeir Jónasson, 2. stýrimaður. Aftast: Oddur Guðmundsson, yfirkyndari, Haraldur Ólafsson, há- seti, Guðmundur Guðjónsson, Óþekktur, Óþekktur, Hjörtur Nielsen, bryti, Elías Dagfinnsson, þjónn, Óþekktur, Jón Axel Pétursson, há- seti.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.