Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Blaðsíða 29
an er í apríl og nær hrygningin þá hámarki. Þó að hrognasekkirnir nemi meir en þriðjungi heildarþung- ans, er grásleppan ekki frjósam- ur fiskur. Eggjafjöldinn er frá 70.000 til 200.000 egg og fer það eftir stærð hrygnunnar. Þegar seiðin koma úr egginu eru þau um 5 millimetrar á lengd og vaxa hratt næstu mánuðina. Fyrst halda þau sig í þarabeltinu, en þegar líða tekur á haustið fara þau dýpra. Stundum soga þau sig föst á ýmsa fljótandi hluti og berast þannig langt á haf út. Næsta sumar halda þau sig mikið uppsjávar, oft á 30—80 metra dýpi, innan um aðra ung- fiska, að því að rannsóknir okk- ar gefa til kynna. Það sumarið ná þau 10—12 sentimetra lengd. Eftir það verður lítið vart við hrognkelsin fyrr en þau eru orð- in kynþroska, þriggja til fjögurra ára gömul. Hrygnurnar eru þá orðnar að minnsta kosti 35 senti- metra langar, en hængarnir, sem vaxa hægar, eru um 27 sentimetr- ar að lengd. Elztu hrognkelsi, sem hér hafa verið aldursgreind, eru aðeins sjö ára gömul og virð- ast þau ekki verða miklu eldri. Fyrsta sumarið nærast hrogn- kelsin aðallega á smákrabbaflóm, en úr því fer að gæta meiri fjöl- breytni í fæðunni, burstaormar, sandsíli og smáhvelja, ásamt krabbaflóategundum fylla nú matseðilinn. Um fæðu kynþroska hrognkelsa er ekki mikið vitað. Oftast er magi þeirra tómur um hrygningartímann, þann tíma sem þau veiðast helzt. Hinn hluta ársins kemur það fyrir, að áður- nefnd fæða finnist í þeim, jafn- vel ljósáta og rækja, en hitt er þó VlKINGUR oftar að í maganum er nær ein- göngu maukkenndar, ennþá óþekktar leifar, sem minna einna helzt á skyrhræring. Athuganir á hrognkelsastofn- inum hér við land eru enn skammt á veg komnar, en ráðgert er að auka þær til muna á næstunni. Til dæmis hafa hrognkelsi aldrei ver- ið merkt hér og göngur þeirra því óþekktar. Eina þjóðin, sem fengist hefur við merkingar á hrognkelsum eru Danir. Þeir merktu í apríl 1966 hátt á annað þúsund hrognkelsi í dönsku sund- unum. Mest endurheimtist næsta mánuð á svipuðum slóðum og merkt hafði verið. 1 júní, júlí og ágúst veiddust örfáir merktir fiskar og enn í dönsku sundun- um. 1 september veiddist svo að- eins ein merkt grásleppa og náð- ist hún í Skagerak, líklega á leið út í Norðursjó. Eftir það veidd- ust engin merkt hrognkelsi fyrr en í marzmánuði, vorið eftir. Endurheimtur það árið voru fáar eða tæpur 1 af hundraði. Merk- ingatilraun þessi sýnir að hluti af hrognkelsastofninum kemur öðru sinni til hrygningar og þá aftur á sama svæðið. Fyrir nokkrum árum sendi Fiskifélag Islands grásleppukörl- um, aðallega á Norðurlandi afla- skýrslueyðublöð til útfyllingar. Þessi tilraun bar allgóðan árang- ur og er það von mín, að þegar farið verður aftur af stað með aflaskýrslugerð, að allir þeir sem grásleppuveiði stunda, láti ekki sitt eftir liggja frekar en fyrri daginn og sendi skýrslur og eins fiskmerki. Þær upplýsingar, sem aflaskýrslur og merkingar gefa, eru ómetanleg hjálp við útreikn- inga á stofnstærð, veiðiþoli og dánartölu. Síðast en ekki sízt gefa merkingar upplýsingar um göng- ur og vöxt fiskanna. ooooooooooooooooc>ooc>o<c>ooooooo<>ooooooo Séð yfir Sundin í átt til Esju. 81

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.