Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Síða 5
Þessa mynd tók Gunnar frá Reynisdal árið 1930. Þarna sjást í Reykjavíkurhöfn
„Clementína“, sem þá hét „Barðinn“. Auk togarans er þar frönsk fiskiskúta og
svo vitanlega kolaskip. Þau voru daglegir gestir í höfninni í þá daga.
um skipun skólanefndar Mat-
sveina- og veitingaþjónaskólans,
nema að ráðherra skipar einn
mann í nefndina án tilnefningar,
eins og verið hefur, og skal sá
nefndarmanna vera formaður
nefndarinnar, en núverandi
ákvæði voru að ráðherra valdi
einn nefndarmanna sem formann.
Samband veitinga- og gistihúsa-
eigenda, Félag matreiðslumanna,
Félag framreiðslumanna og Mat-
sveinafélag Sjómannasambands
fslands tilnefna hvort einn mann
í skólanefndina.
1 3. gr. er getið um hlutverk
skólans, sem skal vera:
Að veita bóklega fræðslu þeim,
sem nema vilja matreiðslu til
sveinsprófs, sbr. lög nr. 68/1966
um Iðnfræðsiu.
Að veita fræðslu þeim, sem
ætla að gerast matsveinar á fiski-
skipum og flutningaskipum, og
veita fræðslu þeim, sem ætla að
gerast brytar á farþega og flutn-
ingaskipum sbr. lög nr. 50/1961,
um bryta og matreiðslumenn á
kaupskipum og fiskiskipum.
Að starfrækja framhaidsdeild
fyrir þá, sem ætla sér að gerast
umsjónarmenn í veitingasölum
og yfirmatreiðslumenn.
Að veita fræðslu öðru starfs-
fólki á hótelum og veitingahús-
um, en um getur hér að framan,
svo og þeim sem hyggjast starfa
við hliðstæð störf á farþegaskip-
um og flugvélum. Ennfremur er
skólanum heimilt að starfrækja
deild eða efna til námskeiða fyrir
matráðskonur.
Þá er skólanum og heimilt, með
samþykki ráðuneytisins, að veita
fræðslu nemendum skyldra iðn-
og starfsgreina, svo sem í brauða-
og kökugerð og kjötiðnaði.
Skólinn getur, með samþykki
ráðuneytisins haldið námskeið ut-
an Reykjavíkur, ef henta þykir.
I 5. gr. frv. er ráðherra veitt
heimild til að ákveða, að skólinn
starfræki veitingahús og/eða
hótel, af hæfilegri stærð. Nefnd-
in, er frv. samdi, telur að stór-
auka þurfi alla verklega kennslu
í skólanum, en slík kennsla er
mjög kostnaðarsöm, nema hægt
VlKINGUR
sé að selja það, sem framleitt er.
Til þessa hafa möguleikar skólans
verið mjög takmarkaðir í þeim
efnum. Telja verður að við fram-
kvæmd þessarar gr. hljóti skól-
inn að flytjast úr Sjómannaskóla-
húsinu.
f 6. og 9. gr. frv. segir að ráð-
herra skipi skólastjóra að fengn-
um tillögum skólanefndar, og
fasta kennara að fengnum tillög-
um skólastjóra og skólanefndar.
Um menntun skólastjóra og kenn-
ara fer eftir reglugerð, sem ráðu-
neytið setur að fengnum tillög-
um skólastjóra, skólanefndar og
iðnfræðsluráðs, og skal í reglu-
gerðinni vera nánar kveðið á um
starfsemi skólans, kennslutíma,
námsefni og fleira.
Skal hugleiðingum um Hótel-
og veitingaskóla íslands vera lok-
ið að sinni, og sný ég mér að frv.
um Stýrimannaskólann í Reykja-
vík, en það er stjórnarfrv.
Menntamálaráðuneytið skipaði
13. júlí s.l. 3ja manna nefnd til
endurskoðunar á lögum um Stýri-
mannaskólann í Reykjavík. 1
nefndinni áttu sæti þeir Jónas
Sigurðsson skólastjóri, sem var
formaður, Sigurður J. Bríem full-
trúi í menntamálaráðuneytinu og
Garðar Þarsteinsson stýrimaður,
tilnefndur af Farmanna- og fiski-
mannasambandi fslands. Nefndin
samdi frv þetta, sem ætlað er að
koma í stað laga nr. 84/1966 um
Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Aðalbreytingar, sem lagt er til
að gerðar verði, eru fólgnar í því,
að fella niður úr eldri lögum upp-
talningu á námsefni fyrir hin
einstöku próf. Taldi nefndin, að
slík upptalning nægi í reglugerð
eingöngu, enda nauðsynlegt að
hafa svigrúm til breytingar á því
sviði í sérskóla sem þessum, en
eins og kunnugt er, eru breyting-
ar á lögum þyngri í vöfum en
breytingar á reglugerð. Þá er lagt
til að inntökuskilyrði verði hert,
þannig að gagnfræðapróf eða hlið-
stæð próf verði bætt við sem inn-
tökuskilyrði í 1. bekk. Ekki er
ætlunin með þessu skilyrði að úti-
loka neinn, sem sjómennsku
stundar, og ekki hefur lokið slíku
prófi, frá því að sækja skólann
eða skylda hann til að sækja
gagnfræðaskóla til þess að öðlast
slíkt próf. Er gert ráð fyrir heim-
ild fyrir Stýrimannaskólann til
að halda námskeið, og væru þar
kenndar þessar námsgreinar
stærðfræði, eðlisfræði, íslenzka
57