Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Page 6
enska og danska, og náms-
efnið miðað við það, sem
kennt er í þessum greinum
til gagnfræðaprófs. — Þeir,
sem stæðust próf frá þessu nám-
skeiði gætu setzt í 1. bekk að
hausti. Þetta mundi að vísu
lengja námstímann fyrir þá, sem
minni undirbúning hefðu, enda
ekki óeðlilegt, segir nefndin, er
frv. samdi.
1 1. gr. frv. er þess getið að
markmið Stýrimannaskólans sé
að veita fræðslu, er þarf til að
standast fiskimannapróf, far-
mannapróf og próf skipstjóra á
varðskipum ríkisins, og í 2. gr.
frv. er þess getið að skipstjórnar-
nám skuli vera í 4 stigum, og
veiti hvert stig tiltekin atvinnu-
réttindi, eins og þau verða ákveð-
in í lögum um atvinnuréttindi
skipstjórnarmanna. Er 1. stig
farmanna- og fiskimanna með 6
mánaðar námstíma en 2. stig
sömu aðila 7y% mánaðar náms-
tíma. 3. stig farmanna er með
7*4 mánaðar námstíma, og 4.
stig er 4 mánaða námstími fyrir
skipstjóraefni á varðskipum rík-
isins. — Heimilt er að lengja
námstímann með reglugerðar-
ákvæðum eingöngu, en sam-
kvæmt því virðist ekki hægt að
stytta námstímann nema breyt-
ing á lögunum komi til.
1 6. gr. frv. er lagt til að skól-
inn starfi frá 1. okt ár hvert
og eigi skemur en til 15. maí, en
var áður til aprílloka.
1 11. gr. frv. segir að til þess
að geta orðið skólastjóri Stýri
mannaskólans, verði hlutaðeig-
andi að hafa lokið farmannaprófi
skólans og síðar víðtækara prófi
við innlendan eða erlendan skóla.
Fastur kennari í siglingafræði
verður að hafa lokið að minnsta
kosti farmannaprófi 3. stigs, eða
sambærilegu prófi, en þó má veita
58
undanþágu frá ákvæði þessu, en
fastur kennari í siglingafræði
við 3. stig farmannadeildar verð-
ur að hafa lokið prófi frá deild-
inni fyrir skipstjóraefni á varð-
skipum ríkisins, eða sambæri-
legu prófi. Tungumálakennari
skólans verður að hafa lokið há-
skólaprófi í einhverju af þeim
tungumálum, sem kennd eru við
stýrimannaskólann, en þó má
veita undanþágu frá þessu á-
kvæði.
1 14. gr. frv. segir að mennta-
málaráðuneytið fari með yfir-
stjórn skólans, og í þeirri gr. er
það nýmæli, að ráðherra skipar
5 menn í skólanefnd til fjögurra
ára í senn, tvo samkvæmt til-
nefningu Farmanna- og fiski-
mannasambands Islands, annan
úr farmannastétt, hinn úr fiski-
mannastétt, einn samkvæmt til-
nefningu Vinnuveitendasambands
íslands og einn samkvæmt til-
nefningu Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna. Formann
skipar ráðuneytið án tilnefning-
ar. Skólanefndin skal fylgjast
með kennslutilhögun og námsefni
og vera skólastjóra til aðstoðar
í málefnum skólans almennt.
I 8. gr. segir að við próf 1., 2.,
3. og 4. stigs skal auk kennarans,
sem prófar, vera einn prófdóm-
ari í hverri grein, og skipar ráðu-
neytið þá að fengnum tillögum
skólanefndar, eða/og skólastjóra.
1 10. gr. frv. segir að mennta-
málaráðuneytið skipi skólastjóra
við skólann og fasta kennara eft-
ir þörfum að fengnum tillögum
skólastjóra. Hér tel ég tvímæla-
laust að eigi að skipa í tilvitnuð
störf að fengnum tillögum skóla-
nefndar, enda gæti orðið vandséð
hvernig ætti að skipa skólastjóra
eftir þessi ákvæði, t. d. ef skóla-
stjóri hefði látizt, og að settur
skólastjóri væri meðal umsækj-
anda um skólastjórastöðuna.
115. gr. frv. er getið um námskeið
er veiti þá fræðslu sem um getur
fyrr í frv. svo og þá fræðslu, sem
þarf til að standast fiskimanna-
próf 1. stigs og jafnframt til
að setjast í 2. bekk í stýrimanna-
skóla. Skal skólastj. Stýrimanna-
skólans í Reykjavík láta halda
námskeið árlega á eftirtöldum
stöðum, þegar næg þátttaka er að
dómi ráðuneytisins: Akureyri,
Isafirði og í Neskaupstað. Nám-
skeiðin skulu haldin á sama tíma
og kennsla fer fram í samskonar
deildum Stýrimannaskólans í
Reykjavík. Inntökuskilyrði skulu
vera hin sömu og í hliðstæðar
deildir í Reykjavík. Heimilt er
að halda námskeiðin á öðrum
stöðum en að ofan greinir, að til-
skyldu samþykki ráðuneytisins.
I 16. gr. frv. segir að lög þessi
öðlist þegar gildi, þó skulu á-
kvæði laga nr. 84/1966 (þ. e. nú-
verandi lög um Stýrimannaskól-
ann í Reykjavík) gilda um þá, er
hafa hafið nám í skólanum áður
en lögin taka gildi. Hér vantar
ákvæði um að lögin nr. 84/1966
skuli falla úr gildi við gildistöku
hinna nýju laga, en verður að
telja nauðsynlegt að taka slíkt
fram.
Ekki mun ég hugleiða meir að
sinni um frv til laga um Stýri-
mannaskólann í Reykjavík, en
vil leyfa mér að spyrja, hvort
ekki væri rétt að hafa í einum
lögum öll ákvæði um stýrimanna-
fræðslu, þannig að ákvæði laga
um Stýrimannaskólann í Reykja-
vík, og ákvæði laga um Stýri-
mannaskólann í Vestmannaeyjum
væru í einum lögum. Það ætti að
skapa meira öryggi í framkvæmd,
og vera öllum þeim, sem hlut eiga
að máli heppilegra. Þetta er að-
eins smá innskot til athugunar.
VÍKINGUR