Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Síða 7
Að síðustu mun ég enda þess-
ar hugleiðingar mínar með því að
ræða tvö frv. um fiskiðnskóla, er
lögð hafa verið fram á Álþingi.
Annað frv. er um fiskiðnskóla,
flutt af Ingvari Gíslasyni og Jóni
Skaftasyni, en hitt er frv. umfisk-
iðnskóla í Vestmannaeyjum, er
Guðlaugur Gíslason flytur. Þar
sem ég tel eðlilegt, eins og fram
kom hér að framan, varðandi
stýrimannafræðsluna, að ákvæði
um sama efni og hér er, eigi að
vera í einum lögum, og ætti því
frv. Guðlaugs Gíslasonar að efni
til að færast yfir til frv. Ingvars
og Jóns, og mun ég því aðallega
ræða frv. þeirra, þar sem það nær
lengra en frv. Guðlaugs.
30. apríl 1964 samþykkti Al-
þingi þingsályktun um stofnun og
starfstilhögun almenns fiskiðn-
skóla í landinu. Var síðan skipuð
nefnd, alls tíu manna, Fiskiðn-
skólanefnd, til að vinna að þessu
máli. Formaður nefndarinnar var
Hjalti Einarsson efnafræðingur,
aðrir nefndarmenn voru: Berg-
steinn Á. Bergsteinsson fiski-
matsstjóri, Margeir Jónsson út-
gerðarmaður, dr. Sigurður Pét-
ursson gerlafræðingur, dr. Þórð-
ur Þorbjarnarson forstjóri Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðarins,
Tryggvi Jónsson forstjóri niður-
suðuverksmiðjunnar ORA í
Kópavogi, Leó Jónsson síldar-
matsstjóri, Sveinn Björnsson
framkvæmdastjóri Inðaðarmála-
stofnunar Islands og alþingis-
mennirnir Jón Árnason og Jón
Skaftason. Fiskiðnskólanefnd
sat að störfum í um tveggja ára
skeið, og skilaði áliti sínu til rík-
isstjórnarinnar í desember 1966,
og var niðurstaða nefndarinnar
aðallega að leggja til við ríkis-
stjórnina að stofna skyldi sér-
stakan fiskiðnskóla, er hefði það
markmið að veita fræðslu í iðn-
VlKINGUE
greinum fiskiðnaðar og útskrifa
fiskvinnslufræðinga. Þetta frv.
þeirra Ingvars Gíslasonar og
Jóns Skaftasonar er óbreytt eins
og tillögur þær, er fiskiðnskóla-
nefnd lagði fyrir ríkisstjórnina.
Hlutverk skólans samkv. frv.
skal vera að veita fræðslu í fisk-
iðngreinum og útskrifa fisk-
vinnslufræðinga. I lögum þessum
nær orðið fiskur, eitt sér og í
samsetningu, yfir allan fisk, þar
með talin síld, en að auki krabba-
dýr og skeldýr. Skólinn skal vera
sjálfstæð stofnun undir yfirstjórn
ráðherra.
Ráðherra skipar 8 menn í
skólanefnd til 4 ára í senn og
jafnmarga til vara, og hefur
nefndin á hendi stjórn skólans.
Sjö nefndarmenn skulu tilnefndir
af þar tilteknum aðilum samkv.
4. gr. frv., en ráðherra skipar
einn nefndarmanna án tilnefning-
ar, og skal hann vera formaður
skólanefndar. Ráðherra skipar
skólastjóra og kennara, að fengn-
um tillögum skólanefndar. Skól-
inn skal vera á Suðvesturlandi.
Um markmið skólans segir í
III. kafla frv., að afloknu prófi
úr skólanum hafi nemendur öðl-
ast undirstöðukunnáttu, bóklega
og verklega, til þess að geta tekið
að sér verkstjórn, eftirlitsstörf,
matsstörf, verkþjálfun, vinnu
hagræðingu, stjórn fiskvinnslu-
véla og önnur hliðstæð störf í
fiskiðnaðinum. Framhaldsdeild-
ir skulu starfræktar í sérgrein-
um fiskiðnaðarins, svo sem nið-
ursuðu, síldar- og fiskmjölsfram-
leiðslu o. s. frv. eftir því sem
skólanefnd telur ástæðu til.
Skólatími skal vera full tvö ár,
þar af sex mánuðir verkleg þjálf-
un í starfandi fiskiðjuveri eftir
reglum, er skólanefnd setur.
Verklega þjálfunin fari fram að
sumri til, þrír mánuðir í upphafi
skólatímans og þrír mánuðir á
milli bekkja.
Umsækjendur skulu vera fullra
17 ára, og hafa gagnfræðapróf
eða hliðstæða bóklega menntun.
Helztu bóklegar námsgreinar
skulu vera: Fiskvinnslufræði, sem
nái yfir greinar fiskiðnaðarins
og vélbúnaðar hans, gæðaeftir-
lit og fiskmat, reikningur og
rekstrarbókhald, efnafræði, eðlis-
fræði, fiskfræði, gerlafræði,
vinnurannsóknir, verzlunarlanda-
fræði, lög og reglur um fisk-
vinnslu og fiskmat, og að auki
aðrar námsgreinar, sem skóla-
nefnd telur ástæðu til að kenna.
Helztu verklegar námsgreinar
skulu vera: Meðferð á nýjum
fiski, ísun, flökun, frysting, sölt-
un, síldarsöltun, herzla reyking,
niðursuða, framleiðsla fiskrétta,
lifrarbræðsla, fiskmat, vinnu-
rannsóknir, og að auki aðrar
námsgreinar, sem skólanefnd tel-
ur ástæðu til að kenna.
Nánari ákvæði um starfsemi
skólans skulu sett með reglugerð,
og allan kostnað við skólann skal
greiða úr ríkissjóði, og fái nem-
endur ókeypis skólavist.
Frv. Guðlaugs Gíslasonar er
ekki eins nákvæmt eins og frv.
þeirra Ingvars og Jóns um starf-
semi skólans. Þó gerir Guðlaugur
ráð fyrir að skólatími skuli vera
3 ár, og að skólanefnd skuli vera
skipuð 3 mönnum, og að skólinn
starfi í Vestmannaeyjum.
Tilgangur minn með hugleið-
ingum þessum var sá að kynna
fyrir lesendum Víkingsins, þessi
lagafrv. sem nú liggja fyrir Al-
þingi, og vona ég að mér hafi
tekizt að upplýsa það sem mestu
máli skiptir, þó sannarlega hefði
þurft að hafa þar um lengra mál,
sem þá mun bíða betri tíma, ef
ástæður kynnu að leyfa.
59