Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Qupperneq 11
BRÉF TIL
Víkingsins
Af Selfossi fór Egill skipstjóri
á Fjallfoss I, síðan tekur hann
við (ítalíu) Reykjafossi þar til
hann tók við Tröllafossi 1951 og
var með hann þar til hann hætti
sjómennsku fyrir aldurs sakir.
Af Tröllafossi var Egill sérstak-
lega hrifinn. Hann gekk í góðu
veðri 12 sjómílur, en var fljótur
að missa ferð ef eitthvað blés á
móti.
Egill minnist þeirra daga eins
og þegar hann var á Lagarfossi.
Þá var rútan þeirra að utan beint
upp á Djúpavog og þaðan austur
og norður um á 32 hafnir allt að
Ingólfsfirði á Ströndum. Þá var
á flestum stöðum lítið um bryggj-
ur og flutningabátar í hávegum
hafðir. Þeir urðu að vinna að allri
uppskipun um borð og þá var oft
lítið um svefn. En þó það væri
oft erfitt, þá var sá erfiðleiki ekk-
ert á móts við það að taka hafn-
irnar í ýmsum veðrum, því þá
var ekkert nema handlóðið til að
átta sig á og þá var gott og mikill
lærdómur að sigla með góðum og
traustum skipstjórum, sem allan
stýrimennskutíma Egils á Lagar-
fossi, voru um borð.
Egill telur það mjög ánægju-
legt að hafa upplifað það á þess-
um 52 árum, sem hann var til sjós,
að sjá þær stóru framfarir sem
orðið hafa á aukningu skipaflot-
ans og á öllum útbúnaði hans.
Helgi Hallvarðsson.
VlKINGUR
Akureyri, 19. d'es. 1970.
Ritstj. Víkingsins Reykjavík.
Vinsamlegast birtið þessar línur ef ykkur finnst þær
þess verðar. Þetta mál hefur talsvert verið rætt hjá okkur
togaramönnum hér á Akureyri, og er okkur áhugamál að
þetta komi fraip. — Beztu kveðjur.
Eins og mönnum er sjálfsagt kunnugt, hefur Lands-
sími íslands á undanförnum árum unnið að bættum við-
skiptamöguleikum milli skipa og lands. Hafa til dæmis
nýlega Isafjörður radio, Siglufjörður radio og Horna-
fjörður radio fengið nýja og aflmeiri senda en áður, og
betur staðsetta. Notagildi þeirra hefur þannig stóraukist.
Hér á ég við svokallaða bátabylgju, tíðnirnar 1605 —
4000 Kc/s.
Samt mætti nú bæta þjónustuna enn frekar. Eins og
er vantar góðan sendi á langbylgju sem yrði þá á Siglu-
firði. Þegar skip eru djúpt útaf Vestfjörðum norðarlega,
er samband á langbylgju við Reykjavík radio ekki gott,
og stundum ónothæft. Siglufjörður radio hefur móttöku
á langbylgju, og er mér kunnugt um að þar er góður
hlustvörður haldinn, en þar er enginn starfhæfur lang-
bylgjusendir núna, og hefur ekki verið undanfarið. Einnig
er nauðsynlegt að auka sendiorku stöðvarinnar í Neskaup-
stað.
En það sem mér finnst einna mest aðkallandi nú, er að
setja upp örbylgjutæki (VHF) á Akureyri. Þannig er, að
sendi og móttökuloftnet loftskeytastöðvarinnar á Siglu-
firði eru á Sauðanesi, sem er vestan Siglufjarðar eins og
mönnum er kunnugt. Þegar skip eru á Eyjafirði ber allan
fjallgarðinn á milli, og er erfiðleikum bundið að afgreiða
samtöl við Siglufjörð radio þaðan, sökum lélegrar móttöku
á báða bóga.
Úr þessu yrði bætt ef VHF stöð yrði sett upp á Akur-
eyri. Langdrag VHF milli lands og skips er h.u.b. 40-50
sjómílur, og myndi það nægja til viðskipta þar til Siglu-
fjarðar radio heyrðist vel á hinum tíðnunum.
Oft þarf að hafa samband við land skömmu fyrir komu
til Akureyrar, og eins skömmu eftir brottför þaðan. Hafa
þarf samband við hafnaryfirvöld, umboðsmenn og fleiri.
Sumir erlendir skipstjórar telja siglingu á Eyjafirði ekki
auðvelda þar sem fara þarf framhjá tveimur grunnum,
sem eru í firðinum.
Þætti þeim örugglega bót að því að geta haft öruggt
samband við land inn og út fjörðinn. Allt yrði þetta létt-
ara skipstjórnarmönnum og öðrum þeim sem hagsmuna
hafa að gæta í þessu sambandi, ef VHF stöð yrði komið
upp á Akureyri, en flest hin stærri skip eru nú búin þess-
um tækjum.
Það er því ósk mín að tækjum þessum verði komið upp
á Akureyri hið fyrsta. Stefna Landssímans hefur greini-
lega verið í þá átt að bæta þjónustuna við skipin, og trúi
ég ekki öðru en þetta mál verði athugað gaumgæfilega.
Þeim peningum sem til þess fara, að bæta samband sjó-
manna við land er vel varið.
Birgir Aðalsteinsson,
loftskeytamaður.
63