Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1971, Síða 16
Árni: „Má bjóða þér í nefið?“
Klæðskerinn: „Jú takk fyrir, þeg-ar
þú ert búinn að borga reikninginn.
Síðast, liljópstu í burtu, meðan ég: var
að hnerra“.
*
Túristinn sneri sér að einum „inn-
fæddum“. „Ég held, að þið ættuð nú
að fá dómkirkjuklukkuna ykkar leið-
rétta. Hún geng’ur snarvitlaust."
„Hvers vegna ættum við að gera
það“, sagði maðurinn hugsandi. „Við
hér kunnum á klukkuna eins og hún
er. Þegar hún sýnir hálf tólf slær hún
sjö, og þá vitum við að klukkan er
þrjúkortér gengin í tvö.
*
„Ert þú ekki grasæta?"
„Jú, það passar“.
„En þú ert að borða buff“.
„Já, en ég lít á það, sem forboðinn
ávöxt.
*
Fjármálanefnd Norðurlandaráðstefnunnar.
Vinir mínir!
Næst á dagskránni er: samræming á ferðakostnaði, fjölda þátttakenda — og
þjórfé. Með tilliti til þcirra frænda okkar, sem lengst eru að komnir.